Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 20

Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 20
Aðalfundur Félags rafeindavirkja verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl 2018 kl. 17:30 á Stórhöfða 27, gengið inn að neðanverðu. (Grafarvogs megin) Dagskrá: ¥ Venjuleg aðalfundarstörf. ¥ Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Birtu, lífeyrissjóðs. ¥ Önnur mál. Reykjavík 7. apríl 2018 Stjórn Félags rafeindavirkja AÐALFUNDUR Félags rafeindavirkja Miðvikudaginn 25. apríl 2018 kl. 19:30 er boðað til aðalfundar Íþróttafélagsins Fylkis í samkomusal Fylkishallar. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundastörf samkvæmt lögum félagsins Önnur mál. Aðalstjórn Fylkis. Aðalfundur Fylkis 7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r20 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð FótBolti Íslenska kvennalands- liðið í knattspyrnu vann öruggan 2-0 sigur á Slóveníu ytra í gærkvöldi og náði toppsæti riðilsins í undan- keppni HM 2019 í bili með tíu stig að fjórum umferðum loknum. Var þetta þriðji útileikur Íslands í riðl- inum en Stelpurnar okkar mæta Færeyjum á þriðjudaginn kemur í síðasta útileiknum áður en þær ljúka keppninni á fjórum heima- leikjum í röð. Ísland missir toppsæti riðilsins til Þýskalands eða Tékklands þegar liðin mætast í dag en þegar öll liðin hafa leikið fjóra leiki er Ísland efst í riðlinum með tíu stig. Sterk byrjun Líkt og þegar liðin mættust á sama stað í undankeppni EM árið 2015 byrjaði íslenska liðið af krafti og voru þær ákveðnar í að brjóta ísinn snemma. Eftir að hafa stýrt leiknum komst Ísland yfir með marki Gunn- hildar Yrsu Jónsdóttur, hennar þriðja í undankeppninni, á 15. mín- útu eftir langt innkast. Tuttugu mínútum síðar bætti Rakel Hönnudóttir við marki af sport Undankeppni HM 2019 Slóvenía 0-2 ísland (0-2) 0-1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (15.), 0-2 Rakel Hönnudóttir (37.). Byrjunarlið Íslands (3-5-2): Guðbjörg Gunnarsdóttir; Glódís Perla Viggós- dóttir, Sif Atladóttir, Ingibjörg Sig- urðardóttir; Selma Sól Magnúsdóttir (67. Elín Metta Jensen), Sara Björk Gunnarsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Hallbera Gísladóttir; Agla María Albertsdóttir (62. Harpa Þorsteinsdóttir), Fanndís Friðriksdóttir. Haukar - Valur 23-22 Haukar: Ragnheiður Sveinsdóttir 5, Marie Pereira 5, Þórhildur Braga Þórðardóttir 5, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 2, Sigrún Jóhannsdóttir 2, Karen Helga Díönudóttir 1, Alexandra Líf Arnardóttir 1. Valur: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5, Kristín Guðmundsdóttir 5, Diana Sat- kauskaite 3, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Morgan Marie Þorkelsdóttir 2, Kristín Arndís Ólafsdóttir 2. Staðan er jöfn 1-1. Þriðji leikur liðanna fer fram í Valshöllinni á mánudaginn. Nýjast Olís-deild kvenna, undanúrslit Skallagrímur - Haukar 64-75 Skallagrímur: Carmen Tyson-Thomas 40/13 fráköst, Jóhann Björk Sveinsdóttir 8, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6/13 fráköst, Jeanna Louis F. Sicat 5, Bríet Lilja Sigurðardóttir 5. Haukar: Whitney Michelle Frazier 26/15 frá- köst, Helena Sverrisdóttir 21/13 fráköst/9 stoðsendingar, Rósa Björk Pétursdóttir 10, Anna Lóa Óskarsdóttir 5, Sigrún Björg Ólafs- dóttir 4, Þóra Kristín Jónsdóttir 4, Magdal- ena Gísladóttir 3, Fanney Ragnarsdóttir 2. Staðan er 2-0 fyrir Hauka. Þriðji leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á þriðjudaginn. Dominos-deild kvenna Enginn ræður við innköstin Íslenska kvennalandsliðið sótti þrjú stig til Slóveníu og komst um leið í efsta sæti riðilsins í undankeppni HM 2019. Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn af krafti og gáfu Slóvenum aldrei færi á að komast inn í leikinn. Stelpurnar fagna marki Gunnhildar eftir að hún kom Íslandi yfir með skrautlegu marki. mynD/Hafliði Breiðfjörð stuttu færi þegar boltinn féll fyrir fætur hennar í vítateig Slóvena og leiddi Ísland 2-0 í hálfleik. Slóvenar komust betur inn í leik- inn á upphafsmínútum seinni hálf- leiks og voru mun meira með bolt- ann án þess að ógna marki Íslands. Fékk Ísland nokkur hálffæri til að klára leikinn endanlega en mörkin tvö úr fyrri hálfleik dugðu til. Freyr Alexandersson, þjálfari liðs- ins, var hinn kátasti er Fréttablaðið heyrði í honum eftir leik. „Fyrri hálfleikurinn var frábær af okkar hálfu sem er afar ánægjulegt, við spiluðum vel og varnarleikurinn var afar öflugur. Við vorum að vinna boltann hratt og færa boltann í þau svæði sem við vildum sækja í og sköpuðum fyrir vikið fullt af góðum færum. Svo skorum við úr löngu inn- köstunum sem enginn ræður við,“ segir Freyr en bæði mörkin komu eftir löng innköst frá Sif Atladóttur. Hægðu á leiknum í seinni „Mér fannst þetta hrikalega fallegt mark, þetta var beint af æfinga- svæðinu,“ sagði Freyr hlæjandi um mark Gunnhildar sem hún virtist skora með maganum. „Hvort sem það er með maganum, hnénu eða ristinni er mér alveg sama ef leik- mennirnir klára hlaupin sín og gera það vel. Við vorum árásargjörn í föstum leikatriðum og uppskárum tvö mörk upp úr því, að okkar mati eigum við að geta gert usla með föstum leikatriðum gegn hvaða and- stæðingi sem er.“ Honum fannst spilamennskan aðeins detta niður í upphafi seinni hálfleiks. „Það kemur 20-25 mínútna kafli í seinni hálfleik þar sem spila- mennskan er ekki nægilega góð hreint út sagt, það er kannski eðli- legt á þessum árstíma að ná ekki að halda sama hraða í 90 mínútur en þetta var fulllangt að mínu mati. Í byrjun vorum við að vinna boltann í fyrstu pressu og fórum á rétta staði með hann sem kom í veg fyrir að þær hægðu á leiknum og klukkuðu okkur. Það hjálpaði okkur að halda góðu flæði í fyrri hálfleik en vantaði í byrjun seinni hálfleiks, þá náðu þær að hægja leikinn og hnoðast aðeins meira og settu meiri pressu á okkur.“ Þrátt fyrir það fannst þjálfaranum forskotið ekki í hættu. „Við vorum með öll tök á leikn- um, þó að þær hafi komið dýrvit- lausar út úr hálfleiknum á sama tíma og við vorum aðeins farnar að slaka á, þá vorum við með gott tak á leiknum og betra liðið og náðum í stigin þrjú sem skipta máli. Í raun var það helsta sem fór í taugarnar á mér að bæta ekki við mörkum upp á gleðina að gera.“ Brynjar tekur víkingaklappið Fram undan er leikur gegn Fær- eyjum en það er síðasti útileikur Íslands í undankeppninni. Ísland vann fyrri leik liðanna á Laugardals- velli 8-0 en með sigri tekst Íslandi að taka þrettán stig af fimmtán mögu- legum á útivelli, nokkuð sem liðið setti sér sem markmið. „Við horfðum á þennan stiga- fjölda, þrettán stig í fimm leikjum, það væri frábær árangur og myndi setja okkur í þá stöðu sem við viljum vera í þegar kemur að lokaumferð- unum. Við erum spennt að fara til Færeyja, ég þekki marga þarna og er spenntur að koma þangað. Ég ætl- ast til þess að við gerum enn betur og sækjum stigin þrjú og komum heim í toppsætinu,“ sagði Freyr en íslenska liðið flýgur til Færeyja frá Kaupmannahöfn á sunnudaginn. Freyr kvaðst vera búinn að mynda stuðningsmannasveit í Færeyjum. „Brynjar Hlöðversson ætlar að vera í stúkunni með trommur að styðja við bakið á okkur, Jónas Tór Næs verður þarna líka. Brynjar er á við heilan her og ætlar að taka vík- ingaklappið svo að við fáum góðan stuðning þar,“ sagði Freyr léttur að lokum. kristinnpall@frettabladid.is 0 7 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 0 -7 A 7 4 1 F 6 0 -7 9 3 8 1 F 6 0 -7 7 F C 1 F 6 0 -7 6 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 6 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.