Fréttablaðið - 07.04.2018, Síða 53
Grunnskólinn á Suðureyri
- Skólastjóri -
Staða skólastjóra við Grunnskólann á Suðureyri er laus
til umsóknar. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Leitað er
að öflugum og framsýnum leiðtoga til að leiða þróttmikið
skólastarf. Í dag eru nemendur Grunnskóla Suðureyrar
um 40 og eru einkunnarorð skólans ástundun, árangur og
ánægja. Næsti yfirmaður skólastjóra er sviðsstjóri skóla- og
tómstundasviðs.
Í Ísafjarðarbæ búa rúmlega 3700 íbúar. Suðureyri er eitt
hinna „fögru fimm“ þorpa sem mynda sveitarfélagið og búa
þar um 250 íbúar. Á Suðureyri er íþróttahús, sundlaug og
lítil verslun en svæðið einkennist af einstakri náttúrufegurð.
Stutt er í alla þjónustu og er Ísafjörður í um 20 km fjarlægð.
Nánari upplýsingar er að finna á www.isafjordur.is.
Starfssvið:
• Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi
• Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og
skólasamfélagsins í heild
• Að stýra skólanum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi,
starfsmannamálum, fjárhagsáætlunum og rekstri
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf grunnskólakennara
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi
Leitað er að einstaklingi með:
• Lipurð og færni í samskiptum
• Metnað, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtoga
hæfileika
• Reynslu af stjórnun og rekstri
• Vilja til að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Hæfni til að miðla upplýsingum bæði í mæltu máli og rituðu
• Reynslu af þátttöku í þróunarstarfi (kostur)
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í
skólamálum, er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er
laus frá 1. ágúst 2018. Launakjör eru samkvæmt samningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands
Íslands. Umsóknafrestur til og með 28. apríl 2018.
Umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit um nám og störf
(ferilskrá), afrit af leyfisbréfi til kennslu og prófskírteinum,
upplýsingar um frumkvæði á sviði skólamála og annað
er málið varðar (kynningarbréf). Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við
hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri skóla- og tóm-
stunda sviðs, Margrét Halldórsdóttir, í síma 4508000 og í
gegnum tölvupóst: margreth@isafjordur.is.
Umsóknum skal skilað til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar í
netfangið baldurjo@isafjordur.is.
-Við þjónum með gleði til gagns-
ÍSAFJARÐARBÆR
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
442 1000
rsk@rsk.is
Hefur þú ríka þjónustulund?
Ríkisskattstjóri er í fararbroddi innleiðingar rafrænnar stjórnsýslu. Helstu verkefni embættis-
ins eru álagning opinberra gjalda, skatteftirlit og að halda lögbundnar skrár en að auki er
embættinu falið að sinna ýmsum sérverkefnum til lengri eða skemmri tíma, nú síðast verk-
efni tengdu ráðstöfun séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð.
Meginstefna ríkisskattstjóra í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og
virðingu á milli stofnunar og starfsmanna og starfsmanna sín í milli. Vinnustaðurinn er fjöl-
mennur og dreifist starfsemin á átta starfsstöðvar um landið. Ríkisskattstjóri er þátttakandi
í tilraunaverkefni á vegum Velferðarráðuneytisins um styttingu vinnuvikunnar í 36 stundir.
Öflugum og jákvæðum einstaklingi gefst nú tækifæri til að ganga til liðs við afgreiðslu
ríkisskattstjóra á Laugavegi 166 í Reykjavík. Helstu verkefni eru móttaka viðskiptavina,
upplýsingamiðlun, móttaka og afhending gagna og leiðbeiningar um ýmis skattamál,
fyrirtækja- og ársreikningaskrá.
Hæfnikröfur
• Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi.
• Öguð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfileika til að vinna undir álagi.
• Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta kostur.
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Frekari upplýsingar
Umsóknir skulu fylltar út á rsk.is/starf eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar
upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að
fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá ríkisskattstjóra
kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, inn í
heildstætt mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og SFR. Umsóknarfrestur er til og
með 23. apríl 2018 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin
um ráðningar. Upplýsingar um starfið veitir Inga Hanna Guðmundsdóttir í síma 442 1151.
Gildi ríkisskattstjóra eru fagmennska, jákvæðni og samvinna. Frekari upplýsingar um
embættið má finna á vefsíðunni rsk.is.
Ef þú ert með rétta starfið
— erum við með réttu
manneskjuna
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 7 . a p r í l 2 0 1 8
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-D
8
4
4
1
F
6
0
-D
7
0
8
1
F
6
0
-D
5
C
C
1
F
6
0
-D
4
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K