Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 86
Fólk getur komið
með heilu búning-
ana eða hluta af búningi
og fengið upplýsingar um
hvað þetta er og hvernig
það er notað.Sigríður Inga Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Í tilefni af hundrað ára afmæli full-veldis Íslands langar okkur hjá Heimilisiðnaðarfélaginu að vekja
athygli á íslenska þjóðbúningnum.
Við vitum að á árum áður voru
fjölmargir búningar saumaðir og
margir þeirra hanga ónotaðir inni
í skáp. Við erum því farin af stað
með átaksverkefni sem heitir Út úr
skápnum – þjóðbúningana í brúk!
Með því viljum við hvetja til þess að
eldra fólk fari inn í skáp eða skoði
hvað leynist í kössum og koffortum
og nái í búninga sem þar kunna að
vera og finni yngri konur í fjöl-
skyldunni sem eru til í að klæðast
þeim. Þannig verða þessar gersemar
dregnar fram í dagsljósið og teknar
í notkun á ný,“ segir Margrét Valdi-
marsdóttir, formaður Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands, en á morgun,
sunnudag, kl. 13-16 býðst fólki að
koma í húsnæði félagsins við Net-
hyl 2e með þjóðbúninga og bún-
ingahluta til skoðunar og mátunar.
Sérfræðingar í þjóðbúningasaumi
og búningasilfri verða á staðnum til
ráðgjafar og ráðlegginga.
Heilu eða hálfu búningarnir
„Við fáum þær Jófríði Benedikts-
dóttur og Oddnýju Kristjánsdóttur,
sem báðar eru klæðskerar og þjóð-
búningakennarar, til okkar, ásamt
Dóru Jónsdóttur, gullsmið og sér-
fræðingi í búningasilfri, gestum til
upplýsingar. Fólk fær tækifæri til að
máta búningana og fá um leið ráð-
leggingar um hvort gera þurfi breyt-
ingar á þeim. Fólk getur komið
með heilu búningana eða hluta af
búningi, svo sem upphlut, svuntu,
húfu eða búningasilfur, og fengið
upplýsingar um hvað þetta er og
hvernig það er notað. Einnig verður
hægt að fá ráðleggingar varðandi
breytingar á búningum. Við viljum
fyrst og fremst hvetja til þess að fólk
taki búningana í notkun og út úr
skápunum og að þeir fari áfram til
yngri kynslóðanna,“ segir Margrét.
Fyrirmyndina að þessum við-
burði má rekja til Þjóðminjasafns
Íslands en það hefur árum saman
staðið fyrir dögum þar sem fólki
býðst að koma með hluti úr sínum
fórum og fá um þá upplýsingar.
Skemmtileg hefð
Þegar Margrét er spurð við hvaða
tækifæri þjóðbúningar séu helst
notaðir nú til dags segir hún
að margir klæðist þeim helst á
hátíðisdögum á borð við þjóð-
hátíðardaginn 17. júní, við skírnir
og fermingar. „Fólk mætti í raun
vera mun duglegra við að nota
þjóðbúningana sína. Við hjá Heim-
ilisiðnaðarfélaginu lítum gjarnan
öfundaraugum til nágranna okkar
í Noregi og Færeyjum sem eru
mjög duglegir að klæðast bún-
ingum sínum. Í Noregi er til siðs
að stúlkur eignist þjóðbúning við
fermingu sem síðan er notaður við
hátíðleg tækifæri á borð við skírnir,
fermingar, brúðkaup og slíkt næstu
áratugina. Það er bæði fjárhagslegur
og umhverfislegur ávinningur í því
að eiga ein góð spariföt sem endast,
auk þess að vera ótrúlega skemmti-
leg hefð,“ segir hún.
„Á næstu vikum eru peysufata-
dagar í Verslunarskóla Íslands og
Kvennaskólanum í Reykjavík svo
þetta er einmitt kjörinn tími til að
skoða hvort einhver í fjölskyldunni
eigi ónotaðan þjóðbúning,“ segir
Margrét en upphlutur er algengasti
búningur landsins. Fast á eftir koma
peysuföt.
Aðsókn að námskeiðum í
þjóðbúningasaumi
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
reglulega námskeið í þjóðbúninga-
saumi og segir Margrét mikinn
áhuga vera á þeim. „Þau eru ótrú-
lega skemmtileg og því fjölmörg
dæmi um að fólk ánetjist og komi
á mörg námskeið. Búningarnir eru
saumaðir úr vönduðum efnum og
handsaumur er mikill og því tengist
maður þessum flíkum tilfinninga-
böndum, enda mikið fyrir þeim
haft. Okkar hlutverk hjá Heimilis-
iðnaðarfélaginu er að halda við
þessu gamla handverki,“ segir
Margrét.
Í byrjun júní verður Heimilis-
iðnaðarfélagið svo með sýningu á
þjóðbúningum á Árbæjarsafni og
þá verður hægt að sjá mismunandi
búninga úr fórum félagsins.
Draga gersemar
fram í dagsljósið
Út úr skápnum – þjóðbúningana í brúk! er yfirskrift við-
burðar hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands á morgun. Til-
gangurinn er að finna búninga og koma þeim í notkun.
Heimilisiðnaðarfélagið vill hvetja fólk til að nota þjóðbúninga í ríkari mæli. MYND/EYÞÓR
Það er fjárhagslegur og umhverfislegur ávinningur að því að eiga góð spariföt
á borð við þjóðbúning, að sögn Margrétar. MYND/STEFÁN
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Föstudaginn 13. apríl mun Fréttablaðið gefa út sérblaðið
GRÆNN LÍFSSTÍLL
Í blaðinu verða umhverfismál á ýmsum sviðum í brennidepli. Ætlunin er að benda bæði
fyrirtækjum og almenning á fjölmörg skref sem auðvelt er stíga í átt að grænum lífsstíl.
Einfaldar breytingar á daglegum venjum sem geta haft afar mikil og góð áhrif á okkar nær
umhverfi með samhentu átaki almennings og fyrirtækja.
Á meðal efnistaka blaðsins er…
Endurvinnsla – pappír, plast, rafhlöður og ýmis spilliefni
Kolefnisjöfnun – hvernig geta fyrirtæki og heimili kolefnisjafnað á auðveldan hátt?
Orkugjafar framtíðarinnar – Metan, vetni eða rafmagn? Hvað mun knýja farartækin
okkar í framtíðinni
Maturinn og umhverfið – hvernig geta framleiðslufyrirtæki lágmarkað umhverfisáhrifin
og hvernig geta stuðlað að umhverfisvænni framleiðslu?
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5433 / olafurh@frettabladid.is
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-D
3
5
4
1
F
6
0
-D
2
1
8
1
F
6
0
-D
0
D
C
1
F
6
0
-C
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K