Fréttablaðið - 07.04.2018, Side 105
Engin miskunn á stórmótum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur fór í fyrsta sinn holu í höggi á einu af risamótunum
á dögunum. Engin miskunn var sýnd þeim kylfingum sem fóru út af brautinni og missti hún af
niðurskurðinum. Fram undan er þétt dagskrá sem hefst með móti á Hawaii á fimmtudaginn.
www.heimavellir.is
LANGTÍMASAMBAND Á LEIGUMARKAÐI
Heimavellir bjóða 60 íbúðir til leigu í
Boðaþingi 14-16 og 18-20 í Kópavogi.
Þetta er fyrsta verkefni Heimavalla sem er
sérstaklega ætlað fólki sem er 55 ára og eldra.
Um er að ræða glæsilegar og vel hannaðar íbúðir
í rólegu og friðsælu umhverfi rétt við Elliðavatn
og Heiðmörk. Húsin eru í nágrenni við þjónustu
fyrir eldri borgara.
Kynntu þér málið á www.heimavellir.is
Traustur leigumarkaður sem byggir á langtímasambandi er mikilvægur partur af heilbrigðum og
stöðugum húsnæðismarkaði. Markmið okkar er að taka þátt í að byggja upp leigumarkað á Íslandi
eins og þekkist á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Um tvö þúsund fjölskyldur búa nú þegar í
öruggri langtímaleigu hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Sérhannaðar leiguíbúðir
fyrir 55 ára og eldri
Ólafía Þórunn og Thomas Boj-
anowski, unnusti hennar, ætluðu að
gifta sig á Íslandi á árinu en Ólafía
greindi fyrst frá því í viðtali á LPGA-
heimasíðunni.
Hún sagði að þetta hefði verið
blásið örlítið upp og að þau hefðu
tekið ákvörðun um að fresta brúð-
kaupinu enda lítill tími sem kylfing-
ar hafa að sumri til á mótaröðinni.
„Við færðum brúðkaupið fram
í desember, bæði til að gefa okkur
betri tíma til að skipuleggja og það
hentar betur dagskránni. Ég fór í
þetta viðtal og sagði að við ætluð-
um kannski að gifta okkur í sumar
og það varð strax fyrirsögnin alls
staðar,“ sagði Ólafía en fjallað var
um þetta á stærstu miðlum Íslands
og sagt að brúðkaupið yrði í ágúst.
„Það var smá bjartsýni í okkur
að ætla að halda þetta í ágúst en
það hentaði vel, þá er mótaröðin í
Evrópu og þar er millivika sem gaf
okkur tækifæri en þegar við skoð-
uðum þetta betur sást að þetta yrði
erfitt.“
Ólafía reynir að blanda skipu-
lagningu á brúðkaupi inn í lífið á
mótaröðinni enda krefjandi fyrir
hinn þýska Thomas að skipuleggja
brúðkaup á Íslandi.
„Vegna þess að þetta er á Íslandi
þarf ég að gera töluvert meira í þessu
en ég er að senda marga tölvupósta
og hringja símtöl. Við höfum sem
betur fer nægan tíma,“ sagði Ólafía
sem ætlaði ekki að gifta sig á golf-
vellinum eins og tíðkast.
„Það er ekkert komið á hreint en
ég held að ég vilji ekki hafa svona
golfstimpil á brúðkaupinu mínu.
Ég ætla bara að fá að gifta mig sem
venjuleg manneskja,“ sagði Ólafía
hlæjandi að lokum. – kpt
Þurftu að fresta brúðkaupinu þar til í desember
Ólafía ásamt verðandi eiginmanni
sínum, Thomasi. LET/TrisTan JonEs
Hvíldarvika inniheldur hins vegar
margar ferðir á æfingasvæðið til að
fínpússa spilamennskuna.
„Ég er með sjúkraþjálfarann hjá
mér og hef verið dugleg í ræktinni
en ég reyni að æfa mikið þegar tími
gefst til. Mér finnst skemmtilegra
að fara á æfingasvæðið og vinna í
tækninni í æfingarvikum frekar en
að fara út á völlinn. Hvíldin er ekk-
ert svo mikil, helst á kvöldin,“ sagði
Ólafía hlæjandi en það tekur á að
vera atvinnumanneskja í fremstu
röð.
„Ef ég þarf að velja á milli þess
að fara á æfingasvæðið eða spila
hring þá vel ég æfingasvæðið. Ég
fæ mun meira út úr því að mér
finnst, í staðinn fyrir að labba
óþarfa vegalengdir get ég slegið
tíu högg á æfingasvæðinu. Þetta er
öfugt hjá ansi mörgum kylfingum
en svo í aðdraganda móta byggist
eftirvæntingin upp og ég kemst í
annan gír.“ kristinnpall@frettabladid.is
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 41l A U g A R D A g U R 7 . A p R í l 2 0 1 8
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
0
-A
1
F
4
1
F
6
0
-A
0
B
8
1
F
6
0
-9
F
7
C
1
F
6
0
-9
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K