Fréttablaðið - 07.04.2018, Blaðsíða 122
Icelandic Lava Show er fyrirtæki stofnað af hjónunum Ragnhildi Ágústsdóttur og Júlíusi Inga Jónssyni. Fyrirtækið stendur fyrir hraunsýningu þar sem þau bræða
og hella hrauni yfir ís fyrir framan
sal fullan af fólki.
„Við erum í raun og veru að búa
til afþreyingartengt ferðaþjónustu
fyrirtæki þar sem við erum að gera
ferðamönnum, og öðrum áhuga
sömum auðvitað, kleift að upp
lifa samspil hrauns við ís í návígi.
Þetta er skýr skírskotun í gos undir
jökli. Við ætlum að opna þetta í
byrjun sumars í Vík í Mýrdal – við
höfum verið á fullu síðan sumarið
2016 þegar við tókum þátt í Startup
Reykjavík að vinna í þessu. Eins og
er stundum með þessi „startup“ þá
gengur allt rosa vel á stundum og allt
að gerast en svo koma lengri tímabil
þar sem ekki er mikið í gangi – það
er mikil þrautseigja og þolinmæði
sem maður þarf að sýna, en ef maður
hefur trú á konseptinu, sjálfum sér
og verkefninu þá gerist þetta á end
anum,“ segir Ragnhildur. Þau hjónin
eru í óðaönn að standsetja húsnæðið
og koma sýningunni af stað.
Og sýningin er mikið sjónarspil
eins og gefur að skilja – hraunið
skellur á ísnum með miklum látum
og snarki og þessu fylgir mikill hiti og
brunalykt þannig að öll skilningar
vit eru örvuð. Lava Show vakti enda
mikla athygli þegar fyrirtækið fór í
gegnum Startup Reykjavík viðskipta
hraðalinn þarna um árið.
„Í grunninn er þetta þannig að við
tökum basalt og við hitum það upp í
einhverjar fjórtán hundruð gráður í
sérútbúnum bræðsluofni. Svo erum
við að framleiða íshellur sem við setj
um í rennu í sýningarsalnum þangað
sem við hellum hrauninu. Þetta er
svolítið „kreisí“ hugmynd, þetta er
pínu „out there“ og mjög sjónrænt og
myndrænt – þannig að við fengum
töluverða athygli í Startup Reykja
vík sem hjálpaði okkur mikið í sam
skiptum við fjárfesta og aðra sem við
höfum verið í viðræðum við.“
Þau helltu kílói af hrauni á ís fyrir
framan fjárfestahópinn á meðan
aðrir létu sér kannski nægja góða
PowerPointsýningu.
Aðspurð hvernig þessi hugmynd
hafi fæðst segir Ragnhildur að þau
hjónin hafi alltaf langað til að stofna
fyrirtæki og raunar reglulega tekið
hugmyndafundi saman yfir morgun
kaffinu. Þeim hafi þó aldrei tekist að
detta niður á hugmynd sem þau hafi
bæði verið sammála um að væri
góð, ekki fyrr en hugmyndin að Lava
Show kom frá Minecraftspilun eins
sonarins.
„Elsti strákurinn okkar er mjög
hrifinn af Minecraft og mjög upp
tekinn af „lava“þættinum í Mine
craft sem honum þykir mjög spenn
andi – og svo erum við bæði algjörir
jarðfræðinördar. Þegar gosið varð á
Fimmvörðuhálsi árið 2010 fórum við
upp eftir og fannst þetta alveg geð
veikt. Við hugsuðum hversu geggjað
það væri fyrir Ísland ef þetta gos væri
bara áfram, svona eins og á Hawaii.
Það komust auðvitað færri að en
vildu og þá fórum við í kjölfarið að
pæla hvernig væri hægt að vinna
þetta – en útfærslan var eitthvað sem
við vorum aldrei almennilega með.“
Haustið 2015 komust þau svo í
kynni við bandaríska prófessora
sem höfðu verið að bræða hraun
í tilraunaskyni. Þeim fannst þau
hjónin algjörlega galin en þau flugu
út og fóru að hitta þá. Prófessorarnir
mega ekki stunda hraunbræðslu í
viðskiptaskyni þannig að þau buðu
þeim að vera með – sem þeir þáðu.
„Strákurinn okkar elsti varð líka
svo spenntur þegar hann sá mynd
bönd af þessu að síðan þessi hug
mynd dúkkaði upp vissum við alveg
strax að þetta væri málið. Og við
vorum síðan nógu galin til að fara út
í þetta.“
Þau voru ekki alveg viss með þátt
tökuna í Startup Reykjavík enda
bæði viðskiptafræðimenntuð og
með mikla reynslu á því sviði og
fannst því ekkert endilega eins og
það væri eitthvað sem þau þyrftu að
gera.
„Eftir að við fórum á fund með
forsvarsmönnum Startup Reykjavík
sáum við að hvað maður græði ekki
hvað síst á er að þetta býr til tengsla
net. Það eru mentorar sem taka þátt
í þessu og koma margir hverjir með
frábæra punkta, þó að sumir hverjir
kannski passi ekki alveg – þá er þetta
alveg ómetanlegt og klárlega ýtti við
okkur. Þetta gerði það að verkum að
við erum á þeim stað með verkefnið
sem við erum í dag. Svo fengum við
talsvert mikla umfjöllun sem hjálp
aði okkur mikið. Allt svoleiðis skiptir
máli.“
Startup Reykjavík viðskiptahrað
allinn hefst þann 11. júní en opnað
hefur verið fyrir umsóknir.
stefanthor@frettabladid.is
Eldur, ís og örvun
allra skynfæra
Í sýningunni Icelandic Lava Show blandast eldur og ís bókstaflega
saman á dramatískan hátt. Stofnendur fyrirtækisins fengu hugmynd-
ina frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi og Minecraft-spilun sonar síns.
Hjónin Ragnhildur og Júlíus komust í kynni við bandaríska prófessora sem voru að bræða hraun í tilraunaskyni og þá
fór boltinn að rúlla. FRéttablaðið/anton bRink
Frá fjárfestadegi Startup Reykjavík árið 2016.
ÞEgar gosið varð
á Fimmvörðuhálsi
árið 2010 Fórum við upp
EFtir og Fannst ÞEtta alvEg
gEðvEikt. við hugsuðum
hvErsu gEggjað Það væri
Fyrir Ísland EF ÞEtta gos
væri bara áFram, svona
Eins og á hawaii.
Opið alla virka daga 10 -18. Lau.11-16
VERIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK
FRÁBÆRT ÚRVAL AF RÚMUM,
SÓFUM OG HVÍLDARSTÓLUMLÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
JACOB stóll
Svefnsófar
í miklu úrvali
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r58 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
Lífið
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-9
3
2
4
1
F
6
0
-9
1
E
8
1
F
6
0
-9
0
A
C
1
F
6
0
-8
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K