Fréttablaðið - 07.04.2018, Page 124
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is, Máté
Dalmay mate@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /
FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut
Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Lífið í
vikunni
01.04.18 –
07.04.18
„Stjórnin ber ábyrgð á fjórum
frænkum mínum og gríðarlega góðu
hjónabandi því Heiðar bróðir kynnt-
ist konunni sinni á balli með hljóm-
sveitinni,“ segir Magni Ásgeirsson en
þeir bræður standa að Bræðslunni í
14. sinn í sumar. Eftir 12 veðurgóðar
hátíðir þar sem sólin skein stöðugt
opnuðust einhverjar flóðgáttir í
fyrra og gestum og gangandi var í
fyrsta sinn kalt á hátíðinni. „Kannski
spilaði inn í að þetta var 13. árið. Það
voru búnar að vera 12 sólir í röð
en við stefnum ótrauð á að
byrja aftur á númer eitt í ár,“
segir hann.
Magni spilaði með Á
móti sól á Aldrei fór ég
suður hátíðinni á Ísafirði
um páskana en þetta var
í fyrsta sinn sem hann fer.
„Djöfull kunna Vestfirð-
ingar að skemmta sér
og öðrum,“ segir hann
glaður. „Við erum að
halda okkar hátíð
í 14. sinn og Aldr-
ei fór ég suður,
LungA, Eistna-
flug og meira
að segja Blús-
hátíðin eru
allar á svip-
uðum aldri.
Það virðist
eitthvað hafa
gerst árin
2004-2006 þar sem mörgum datt í
hug að blása í hátíðarlúðrana. Það
voru margir í góðu skapi þarna rétt
fyrir kreppu en það sem þetta er allt
enn fallegra núna, svona nokkrum
árum síðar.“
Fyrir utan Stjórnina munu
Emmsjé Gauti, Agent Fresco, Be-
tween Mountains, Daði Freyr, og
Atomstation, kæta lýðinn. „Þetta
er eitthvað fyrir alla. Við erum með
góða styrktaraðila sem gera okkur
kleift að halda viðburð af þessari
stærðargráðu á ekki stærri stað en
Borgarfjörður eystri er, auk þess
sem íbúar Borgarfjarðar eru ótrúlega
jákvæðir út í þetta.“
Hann segir að það sé einhver feg-
urð yfir hátíðinni enda séu Íslend-
ingar vaxnir upp úr því að mæta til
að slást. „Það er ekkert vesen. Það
hefur ekki komið upp lögreglumál á
Bræðslunni að mér vitandi. Það sást
best í fyrra þegar byrjaði að rigna
að þá voru allir boðnir og búnir að
opna dyrnar hjá sér og hjálpuðust
að. Það væsti ekki um neinn. Sem
betur fer eru Íslendingar vaxnir upp
úr því að fara á ball og slást. Það eru
allir í sama liði og ein stór fjölskylda
sem er svo fallegt. Þetta er stemning
sem við erum mjög stolt af og ég fann
einmitt líka fyrir vestan.“
benediktboas@365.is
Stjórnin hjartfólgin
Bræðslustjóranum
Magni Ásgeirsson og bróðir hans, Heiðar, standa að Bræðslunni í
14. skipti í sumar, þar sem Stjórnin mun spila. Fyrsta sveitaballið
sem Magni fór á var með hljómsveitinni og Heiðar kynntist konunni
sinni á Stjórnarballi. Það er því mikil tilhlökkun í þeim bræðrum.
Lóa HjÁLMtýSdóttir
uLLaði Á gagnrýnanda
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir segist hafa
ullað á leikhúsgagnrýnanda Frétta-
blaðsins með fimm ára son sinn
með sér. Sigríður Jónsdóttir skrifaði
dóm um verk Lóu, Lóaboratoríum,
og gaf því tvær stjörnur.
HeLgi SæMundur gefur
út tónLiStina fyrir
SteLLu BLóMkviSt
Helgi Sæmundur
samdi hljóð-
sporið fyrir
þættina um
Stellu Blóm-
kvist en það
var gefið út
af bandarísku
plötufyrirtæki
sem sérhæfir sig í hljóð-
sporum þátta og bíómynda og
virðist hafa sérstakt dálæti á hljóð-
gervlum og nostalgíu.
SkÁLMöLd SeLdi aLLa
Miða upp Á 12 MínútuM
Miðar á tónleika Skálmaldar og
Sinfó í ágúst seldust upp á örskots-
stundu. Snæbjörn Ragnarsson
segir að unnið sé að því hörðum
höndum að setja saman þriðju tón-
leikana en gríðarlegur fjöldi kemur
að þeim og því þurfa margir að
hliðra til til að geta sagt já.
Siggi gunnarS er farinn
að Stjórna Spinning
Útvarpsmaður-
inn Siggi Gunn-
ars segist
ekki hafa
hugmynd um
hvers vegna
hundruð manna
keppast um að
fá pláss í spinningtímunum hjá
honum. Hann segist vera orðlaus en
himinlifandi yfir vinsældunum. „Og
ég nýt mín í botn og kannski smitar
það bara út frá sér.“ Að hans mati er
ekkert flottara en góð spinninglæri.
Bræðslan er ein allra skemmtilegasta hátíð landsins og verður haldin í 14. sinn í sumar. Í fyrra var óhappatalan 13 og
þá rigndi. Magni lofar sól og sumri á hátíðinni í ár.
Íslendingar eru vaxnir upp
úr því að fara á
ball og slást,
segir Magni
sem hlakkar til
Bræðslunnar
í sumar,
þangað sem
Stjórnin
mætir og
spilar.
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Fullt verð: 8.900 kr.
FERMINGARTILBOÐ
aðeins 6.900 kr.
MISTRAL HOME
SÆNGURFÖT
Sængurfötin frá Mistral home eru úr bómullarsatíni, með
vönduðum hnöppum. Þau eru ofin úr 300 gsm bómullar -
þræði sem tryggir frábæra endingu, viðkomu og mýkt.
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
NÝ SENDING
ENN M
EIRA ÚRVAL
VOID – pearl-white CASSINI – black-white
ALTO – greige-blue WILLIAM – taupe-pink
DIYANA – coral REGENCY SCOTT – soft-blue
REGENCY SCOTT – taupe-red COLOURBLOCK – greyge
DIYANA – coral REGENCY SCOTT – soft-blue
7 . a p r í l 2 0 1 8 l a U G a r D a G U r60 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
0
7
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
0
-7
F
6
4
1
F
6
0
-7
E
2
8
1
F
6
0
-7
C
E
C
1
F
6
0
-7
B
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
6
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K