Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 12
Þið ættuð ekki að
vera bandamenn
skepnu sem myrðir þjóð
sína, og hefur gaman af, með
efnavopnum!
Donald Trump,
forseti
Bandaríkjanna
Veldu þægindi fyrir þig og
fjölskylduna. Þú færð Citroën Grand
C4 Picasso 7 sæta á frábæru verði
eða frá 3.490.000 kr.
Citroën Grand C4 Picasso er rúmgóður 7 sæta fjölskyldubíll, þar sem öll sætin í miðju-
röðinni eru jafn stór og á sleðum. Með Isofix festingum getur þú jafnvel komið fyrir 3
barnabílsstólum í sömu sætaröð. Öftustu sætin eru einnig stök og fellanleg niður í gólf
sem bíður uppá mikinn sveigjanleika.
CITROËN ÞÆGINDI
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
CITROËN GRAND C4 PICASSO
citroen.is
KOMDU OG MÁTAÐU
CITROËN GRAND C4 PICASSO!
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 8
Sími 515 7040
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
Sýrland Rússar vöruðu Banda-
ríkjamenn við því í gær að allar þær
eldflaugar sem Bandaríkin myndu
skjóta á Sýrland yrðu skotnar niður.
Áttu þeir þar við möguleg viðbrögð
Bandaríkjanna við meintri efna-
vopnaárás stjórnarhers Bashars al-
Assads, forseta Sýrlands, á almenna
borgara í bænum Douma í Austur-
Ghouta á laugardag.
Rússar eru helstu bandamenn
Assad-stjórnarinnar og hafa stutt
hana með ráðum og dáð. Til að
mynda greindi rússneska frétta-
veitan Interfax frá því að hópur
rússneskra þingmanna væri á leið
til Sýrlands til að funda með Assad
á næstunni.
Bandaríkjamenn, sem og Vestur-
lönd í heild sinni, eru hins vegar
andsnúin Assad og þykja þessi
ummæli Rússa, nánar tiltekið sendi-
herra þeirra í Líbanon, því áhyggju-
efni þar sem þau þykja til marks um
að bein átök Rússa og Bandaríkja-
manna séu möguleg nú þegar sam-
band stórveldanna hefur ekki verið
verra í áratugi.
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, brást við ummælunum með
því að segja Rússum að undirbúa
sig „af því að eldflaugarnar munu
koma, fínar og nýjar og klárar“. „Þið
ættuð ekki að vera bandamenn
skepnu sem myrðir þjóð sína, og
hefur gaman af, með efnavopnum!“
bætti Trump við á Twitter.
Allt á suðupunkti eftir efnavopnaárás
Bandaríkin og Rússland í hár saman vegna meintrar efnavopnaárásar. Donald Trump segir von á eldflaugaskotum. WHO heimtar að-
gang að árásarvettvangi. Merkel harmar árangursleysi öryggisráðs SÞ. Rússneskir þingmenn munu funda með Assad Sýrlandsforseta.
Bandaríska herskipið Donald Cook er nógu nálægt Sýrlandi til að geta hæft skotmörk þar í landi. NorDiCphotoS/AFp
Hvað vitum við um
árásina?
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) sagði í yfirlýsingu í gær-
morgun að samkvæmt heim-
ildum stofnunarinnar hefðu
70 fallið í árásinni. Var vitnað í
samstarfsmenn stofnunarinnar
sem segðu að um 500 hefðu sýnt
einkenni eitrunar, meðal annars
öndunarörðugleika og ertingu í
slímhúð.
WHO fór jafnframt fram á
óhindrað aðgengi að vettvangi
meintrar árásar til að geta rann-
sakað málið. Stofnunin um bann
við efnavopnum (OPCW) er á
leiðinni á svæðið innan skamms í
sams konar erindagjörðum.
Hjálparstarfsmenn, læknar og
uppreisnaraktívistar í Douma
hafa haldið því fram undanfarið
að sprengjur, fylltar með einhvers
lags eitri, hafi fallið á bæinn.
Hjálparsamtökin UOSSM héldu
því fram í vikunni að um saríngas
hefði verið að ræða líkt og í árás
stjórnarliða á Khan Sheikhoun í
fyrra. Það hefði hins vegar verið
reynt að fela með því að blanda
eitrinu við klór.
Þar sem árásin var gerð á
Douma, sem á þeim tíma var
síðasta vígi uppreisnarmanna
í Austur-Ghouta, og í ljósi fyrri
efnavopnaárása Assad-liða, þykir
líklegt að stjórnarherinn hafi gert
árásina.
Því neita bæði Rússar og Assad-
liðar þó. Samkvæmt sýrlensku
ríkisstjórninni, sem hefur reyndar
alla tíð neitað því að hafa notað
efnavopn, er um skáldskap upp-
reisnarmanna ræða, settan fram
til að koma í veg fyrir að stjórnar-
herinn taki Douma.
„Alltaf þegar sýrlenski herinn
sækir fram gegn hryðjuverka-
mönnum koma upp yfirlýs-
ingar um efnavopnaárásir,“ sagði
starfsmaður sýrlenska utanríkis-
ráðuneytisins við Sana.
Sýrlandsher tók Douma í kjöl-
far árásarinnar eftir að hafa náð
rýmingarsamkomulagi við Jaish
al-Islam, uppreisnarsamtökin
sem stýrðu bænum áður. Hafa
stjórnarliðar því endurheimt
Austur-Ghouta að langmestu
leyti en fellt á annað þúsund
almennra borgara í leiðinni.
En Trump hafði þó greinilega
nokkrar áhyggjur af sambandinu við
Rússa. Í næsta tísti sagði hann sam-
bandið verra en nokkru sinni fyrr,
meira að segja verra en í kalda stríð-
inu. „Það er engin ástæða fyrir þessu.
Rússar þurfa á hjálp okkar að halda í
efnahagsmálum,“ sagði Bandaríkja-
forseti og bætti því við að samstarfið
ætti að geta verið auðvelt. „Stöðvum
vopnakapphlaupið?“ spurði hann.
Þá sagði Trump að stóran hluta
erjanna við Rússa mætti rekja til
„falskrar og spilltrar rannsóknar“
sérstaks saksóknara á meintum
afskiptum Rússa af forsetakosning-
unum 2016 og samráði við framboð
Trumps. Tvinnaði hann þar saman
helstu vandamál síðustu daga en
rassía var gerð á skrifstofu lögfræð-
ings forsetans í tengslum við rann-
sóknina í vikunni.
Talið er að Bandaríkin séu nú, í
samstarfi við Breta og Frakka, að
undirbúa hernaðaraðgerðir gegn
Assad-liðum.
Mögulega séu Bandaríkja-
menn svo að undirbúa enn frekari
aðgerðir, einir síns liðs, enda hafi
Trump hætt við fyrirhugaða Suður-
Ameríkureisu í kjölfar árásarinnar.
Samkvæmt The Times hefur Ther-
esa May, forsætisráðherra Bret-
lands, þó beðið Trump um frekari
sannanir fyrir því að árásin hafi átt
sér stað með þeim hætti sem haldið
hefur verið fram.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur ekki náð neinu samkomulagi
um viðbrögð við hinni meintu efna-
vopnaárás. Á fundi ráðsins á þriðju-
dag mættust stálin stinn þegar Nikki
Haley og Vasílí Nebensía, sendi-
herrar Bandaríkjamanna og Rússa,
rifust. Sagði Nebensía að Banda-
ríkin væru að skálda til að réttlæta
hernaðaraðgerðir.
Haley sagði hins vegar að
atkvæðagreiðsla um drög Banda-
ríkjamanna að ályktun, sem sneri að
því að rannsakendur gætu úrskurð-
að um hver bæri ábyrgð á árásinni,
væri harmleikur.
Rússar beittu neitunarvaldi sínu
og sagði Haley að með því sviptu
Rússar ráðið öllum trúverðugleika.
Haley beitti sjálf neitunarvaldi gegn
tillögu Rússa um að öryggisráðið eitt
gæti úrskurðað um sekt.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagðist í gær harma að
öryggis ráðið hefði ekki getað komist
að sameiginlegri niðurstöðu. Hún
vildi hins vegar ekki tjá sig um hvað
hún héldi að gerðist næst á svæðinu.
thorgnyr@frettabladid.is
70
er talið að hafi farist í meintri
efnavopnaárás stjórnarliða á
laugardaginn.
1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U d a G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-3
0
7
C
1
F
6
A
-2
F
4
0
1
F
6
A
-2
E
0
4
1
F
6
A
-2
C
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K