Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 26
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.is Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 Framhald af forsíðu ➛ Arnar er með mörg járn í eldinum, les ljóð, inn á auglýsingar og leikur í sjónvarpi og kvikmyndum. Hann segir skrýtið að unglingar séu sminkaðir upp sem gamalmenni þegar gamalreyndir leikarar séu til í verkin. MYND/SIGTRYGGUR ARI 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . A p R í L 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RMIÐBoRGIN fullt af litlu, ódýru og oft niður- níddu húsnæði, og íbúarnir voru fátækar barnafjölskyldur, aldraðir og drykkjufólk. Í bakhúsum var mikið um smáverkstæði og íbúða- verð var í lægri kantinum enda voru Þingholtin þá ekki komin í tísku.“ Húsið á Óðinsgötu 9 var 200 fer- metrar á tveimur hæðum og verðið til jafns við 79 fermetra íbúð þeirra Arnars og Þórhildar í Klepps- holtinu þá. „Eftir slysið vorum við nálægt því að missa allt og við bættist kreppan á árunum 1984-5. Þór- hildur var skyndilega komin með sex börn, og þar af eitt í hjóla- stól. Það lifir enginn af leikara- launum einum saman, og allra síst barnmargar fjölskyldur, en af því að Þórhildur hafði áður verið hótelstjóri á Skógum datt henni það snjallræði í hug, til að bjarga lífi okkar og eignum, að starfrækja „Bed & Breakfast“ heima á Óðins- götu. Þegar gestkvæmt var sváfum við fjölskyldan á einni flatsæng úti í horni eða ég henti börnunum aftur í skott og fór með þau út á land á meðan Þórhildur var með gistiheimilið. Svona gekk þetta í sautján ár, eða þar til við seldum húsið fyrir einum tólf árum, en þar er enn tekið á móti ferðafólki í gistingu,“ upplýsir Arnar. Kann vel við túristana Þau Arnar og Þórhildur búa nú á Skólavörðustíg með glæsilegt útsýni yfir miðbæinn. Þau búa á fjórðu hæð og segir Arnar það halda sér í formi að ganga upp stigana. „Mér tókst ekki að tæla lífs- förunautinn lengra en hefði alveg eins viljað færa mig nær næsta golfvelli,“ segir Arnar sem hóf að leika golf um fimmtugt, til að fá blóðflæði í fæturna eftir slysið á Óðinsgötu og varð í kjölfarið keppnismaður í golfi. Hann segir þægilegt að búa á Skólavörðustíg og þótt ferða- mannastraumurinn sé þungur kann Arnar því vel, enda vanur því að umgangast ferðamenn síðan á Óðinsgötunni forðum. „Ferðamenn flæða hér fram og til baka og þeim fylgir líf og fjör. Þegar maður býr svona hátt uppi heyrir maður ekki ysinn af götunni upp. Sífellt kvart og kvein yfir túristum er ástæðulaust og þeir trufla mann ekki nokkurn skapaðan hlut. Ferðafólkið eykur bara fjölbreytni og setur skemmti- legan brag á bæinn, en það sem virkilega truflar alla í miðbænum er bílaumferðin og við erum helst ekki á ferðinni á milli fjögur og sex á daginn því þá situr maður fastur,“ segir Arnar. Þau Þórhildur leigja ferðafólki enn gistingu í sumarhúsi sínu í Biskupstungum. „Við höfum tekið eitt lán um ævina, sem var lífeyrissjóðslán og fyrir það keyptum við sumar- bústað í Úthlíð. Þar erum við eins oft og við mögulega getum og flytjum þangað á sumrin. Þar er golfvöllur á næsta leiti og stór- fjölskyldan kemur oft til okkar. Í bústaðinn fór ég til að læra rull- urnar þegar ég vann sem mest og nú get ég lesið þar ljóðin og hlustað á fuglasöng, en inn á milli leigjum við húsið út til að hafa örlítið í hnefa þegar okkur er ekki leyft að vinna lengur,“ segir Arnar sem má ekki lengur vera á föstum samningi sem leikari sökum aldurs. „Það er vegna þess að það kostar örfáar fleiri krónur að fastráða mann. Ástandið er enn verra fyrir konur sem nánast fá á sig skotleyfi eftir fimmtugt og eiga erfitt með að fá vinnu. Þannig hefur Þór- hildur ekki neitt að gera og allt er þetta dálítið strembið.“ Arnar er þó síður en svo hættur að leika. Fram undan er kvik- myndaleikur og í sumarbyrjun verður tekin upp sjónvarpsmynd byggð á einleik Þorvalds heitins Þorsteinssonar sem hann skrifaði fyrir Arnar og verður í leikstjórn Þórhildar. „Við finnum okkur verkefni; það er allt í lagi. Ég á líka mörg líf. Eitt er ljóðalíf mitt því ég er nú að lesa inn ljóð. Mig langar að gera margt í sambandi við túlkun og lestur ljóða, og vera með ljóðvarp á podcast, eins og útvarp, til að útbreiða fagnaðarerindi ljóðsins. Ég má vitaskuld leika enn og það er skrýtið að sminka unglinga upp í gamalmenni þegar þau eru til og í þokkabót kannski ágætis leik- arar sem hafa að miðla þekkingu, reynslu og orku. Það er beinlínis asnalegt þegar maður hefur allt þetta til að bera.“ Kærleikur í þorpinu Í mannlífinu hefur miðbærinn lítið breyst, að sögn Arnars. „Það einkennir miðbæinga að vilja helst vera á þessari þúfu. Hér ríkir notalegur þorpsandi og menn stoppa og spjalla án þess að vera sérstakir vinir. Ég minnist í því sambandi Þorsteins frá Hamri, sem er nýfarinn frá okkur, en það var viss punktur í tilverunni að rekast á hann. Maður þarf ekki stöðugt að hitta vini sína því þeir eru í hjarta manns. En að sjá þá og vita af þeim, heilsa þeim glaðlega og skiptast á nokkrum orðum, er alveg nóg og allt er það töluvert mikils virði.“ Sama eigi við um litlar verslanir í hverfinu þar sem vinalegt and- rúmsloft ríki. „Síðan ég kom fyrst til Reykja- víkur hafa orðið gríðarlegar breytingar á miðbænum. Í dag eru Þingholtin eitt af dýrari hverfum borgarinnar og sam- setning íbúanna hefur gjörbreyst. Á Skólavörðustíg var einstaka búð sem hélt velli, eins og Fatabúðin á horni Týsgötu, og margir reyndu fyrir sér með rekstur í götunni en sjaldnast gekk neitt. Svo varð allt í einu sprenging, nokkru áður en ferðamannastraumurinn hófst, og Skólavörðustígurinn varð ein af flottustu götum bæjarins þar sem allt blómstrar og dafnar,“ segir Arnar og hlakkar til að átta sig á hvernig miðbærinn muni líta út þegar byggingarkranarnir hverfa. „Þótt það sé ljómandi gott að þétta byggðina er ég ansi hræddur um að menn séu að fara offari. Það er vont að verið sé að troða stórum byggingum ofan í litla reiti miðbæjarins og mín skoðun að skynsamlegra hefði verið að hafa þetta aðeins opnara. Þegar kemur að nýbyggingum þykir mér alvar- legast að nýr og stærri Landspítali verður til stöðugra vandræða í miðbænum vegna umferðarvand- ans sem á síst eftir að minnka.“ Frá svölum Arnars er útsýni yfir fangelsisgarðinn við gamla tukt- húsið. „Þar hefði ég getað selt aðgang á sínum tíma,“ segir hann hlæjandi og vonar að fundinn verði góður tilgangur fyrir gamla fangelsið. „Þegar fangarnir köstuðu á körfu í garðinum og misstu hann út fyrir vegginn hljóp ég niður og kastaði honum til baka, því þeir þurftu jú að hafa sinn bolta.“ Arnar segir hættulaust að gera sér ferð í miðbæinn. „Ástandið var miklu verra þegar búllurnar voru opnar til hálf fimm á morgnana. Þá voru göturnar eins og orrustusvæði en eftir að lokað var fyrr hefur allt breyst til batnaðar. Menningin hefur á sér annan blæ og menn eru farnir að hægja á sér í drykkju og látum, enda er mikið af fínum veitinga- stöðum í bænum. Því ættu allir að drífa sig í miðbæinn. Hér ríkir skemmtilegt og heimsborgaralegt andrúmsloft.“ Skólavörðustígur hefur yfir sér einstakan sjarma með Hallgrímskirkju tignar- lega efst á Skólavörðuholtinu. Þar blómstrar menning og verslun. 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 A -3 A 5 C 1 F 6 A -3 9 2 0 1 F 6 A -3 7 E 4 1 F 6 A -3 6 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.