Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 15
Þetta gerðist. Lögreglan kom þar að sem hópur manna hafði brot izt inn í höfuðstöðvar demókrata í Watergate-byggingunni í Washington að næturlagi til að ræna skjölum sem menn Nixons forseta hugðust nota honum til framdráttar í forsetakosningunum þá um haustið. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði innbrotsþjófunum tekizt að forða sér öllum nema einum. Hann var hand- samaður. Þetta þótti sumum ranglátt: Að taka bara einn þegar allir hinir sluppu! Fjórðungur þingmanna lagði til í þinginu að ræninginn sem var handsamaður skyldi opinberlega beð- inn afsökunar á að hafa verið ákærður og dæmdur. Byrjum aftur. Þetta gerðist auð- vitað ekki að öðru leyti en því að inn- brotið var sem sagt framið í júní 1972, ræningjarnir voru allir handteknir á staðnum, ákærðir og dæmdir í fang- elsi og Nixon forseti hrökklaðist frá völdum tveim árum síðar þegar ljóst var orðið að hann hafði verið með í ráðum og hindrað framgang réttvís- innar með því að reyna að hylja spor þjófanna. Hann vissi sem var að hefði hann ekki sagt af sér hefði þingið sett hann af. „Af stórfelldu gáleysi“ Þingsályktunartillaga 15 þingmanna um að Alþingi biðji fv. forsætisráð- herra afsökunar á að hafa ákært hann 2010 fyrir vanrækslu í aðdraganda hrunsins afhjúpar skeytingarleysi um lög og rétt og um fórnarlömb hruns- ins sem misstu heimili sín og aleigu þúsundum saman eins og Agnar Kr. Þorsteinsson tölvunarfræðingur lýsti í leiftrandi grein í Stundinni. Alþingi ákærði ráðherrann m.a. fyrir „alvarlega vanrækslu á starfsskyldum sínum sem forsætisráðherra and- spænis stórfelldri hættu sem vofði yfir íslenskum fjármálastofnunum og ríkissjóði, hættu sem honum var eða mátti vera kunnugt um og hefði getað brugðist við …“ Sé maður ákærður og síðan fundinn saklaus fyrir rétti kann að vera ástæða til að biðja hann afsökunar. Sé framið dómsmorð, þ.e. sé saklaus maður dæmdur, er full ástæða til að biðja hann afsökunar. Hvorugt á við um tillöguna sem liggur nú fyrir Alþingi. Landsdómur undir forustu forseta Hæstaréttar dæmdi ráðherrann fv. sekan um brot gegn stjórnarskránni en gerði honum ekki refsingu þar eð um fyrsta brot var að ræða. Flutningsmenn þingsályktunar- tillögunnar fullyrða í greinargerð: „Niðurstaða landsdóms sýnir að ekki var tilefni til ákæru.“ Þessi full- yrðing er úr lausu lofti gripin enda fór Landsdómur hörðum orðum um embættisfærslu ráðherrans í dómi sínum þar sem segir m.a.: „Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa af stórfelldu gáleysi látið farast fyrir að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni eins og fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að honum hlaut að vera ljós sá háski, sem vofði yfir bankakerfinu og þar með heill ríkisins … með þeim afleið- ingum að ekki var um þau málefni fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar.“ Þá verður fjandinn laus Þingmennirnir 15 eru ekki einir á báti. Margir repúblikanar á Bandaríkja- þingi krefjast þess nú líkt og forsetinn að Robert Mueller saksóknara sem rannsakar meint ólögleg Rússatengsl Trumps forseta og manna hans verði vikið frá störfum og rannsóknin lögð niður. Þessa kröfu leggja repúblikanar fram enda þótt einn maður hafi þegar fengið dóm og þrír aðrir hafi þegar verið ákærðir fyrir lögbrot sem sak- sóknarinn komst að. Mennirnir hegða sér eins og þeir kunni ekki að hugsa eða kunni ekki að skammast sín. Hús- leit alríkislögreglunnar FBI hjá einka- lögfræðingi forsetans fyrr í vikunni vegna meintra lögbrota og hörð við- brögð forsetans við húsleitinni þykja nú hafa aukið líkurnar á að forsetinn víki Mueller saksóknara úr starfi. Þá verður fjandinn laus líkt og eftir inn- brotið í Watergate 1972. Kveðja til Trumps Luigi Zingales er Ítali, prófessor í hag- fræði í Chicago-háskóla. Hann birti grein í New York Times eftir kosning- arnar 2016 til að vara andstæðinga Trumps, nýkjörins forseta, við því að hæðast um of að honum. Það mun engum árangri skila, sagði Zingales. Ítalar gerðu endalaust grín að Silvio Berlusconi og sátu samt uppi með hann sem forsætisráðherra von úr viti. Ég leyfi mér samt að skilja eftir- farandi limru Kristjáns Hreinssonar skálds og heimspekings um Káin, vest- ur-íslenzka skáldið, svo að hún fjalli um frísúru Trumps Bandaríkjaforseta sem vakti fyrir nokkru heimsathygli þegar léttur vindur lék um höfuð for- setans: Víst náði hann Káinn til Klettafjalla og komst þarna stundum í rétta halla, hann settist þar að var sáttur við það en svo var hann líka með blettaskalla. Blettaskallaskáldskapur Þorvaldur Gylfason Í dag Q7 e-tron Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H EK LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fi nn a á w w w .h ek la .is /a by rg d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is 10.420.000 kr.Verð frá Þingsályktunartillaga 15 þing- manna um að Alþingi biðji fv. forsætisráðherra afsökunar á að hafa ákært hann 2010 fyrir van- rækslu í aðdraganda hrunsins afhjúpar skeytingarleysi um lög og rétt og um fórnarlömb hrunsins sem misstu heimili sín og aleigu þúsundum saman. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F i M M T u d a g u R 1 2 . a p R Í L 2 0 1 8 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 A -1 2 D C 1 F 6 A -1 1 A 0 1 F 6 A -1 0 6 4 1 F 6 A -0 F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.