Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Stundum hefur virst sem náttúru- spjöll séu einfaldlega flokkuð sem ákveðinn fórnarkostn- aður. Stórátak í uppbyggingu hjúkrunar- heimila er mikilvægt skref í þágu aldraðra á Íslandi. Ráðherra hefur skipað nefnd,“ er setning sem hljómar ofur kunnuglega í eyrum lands-manna. Nefndir og skýrslur eru nefnilega ær og kýr ráðherra. Það er eins og stjórnvöldum finnist að ekki sé hægt að taka á vanda fyrr en búið sé að kortleggja hann í skýrslu, jafnvel þótt hann blasi við öllum. Af þessu leiðir að hinar óteljandi nefndir skila iðulega niðurstöðum sem geta ekki flokkast öðru- vísi en sem almenn tíðindi. Enn ein skýrslan leit dagsins ljós á dögunum. Það er skýrsla um þolmörk ferðamennsku, sem Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráð- herra, hefur lagt fram á Alþingi. Eins og oft kemur fyrir í skýrslum eru í þessari skýrslu sögð óskemmtileg tíðindi sem koma þó engan veginn á óvart. Niðurstaðan er sú að álagið á ýmsar náttúruperlur og friðlýst svæði vegna ágangs ferðamanna sé orðið svo mikið að staðirnir séu hreinlega í hættu. Þar skorti stýringu, vörslu og vöktun. Ekki flokkast þetta sem stórfréttir. Landsmenn hafa gert sér grein fyrir þessari stöðu mála í nokkurn tíma og ekki hefði hún átt að fara fram hjá stjórnvöldum. En í þessum málum, eins og of mörgum öðrum, er lítið gert. Það bitnar á náttúru landsins. Ekki þarf annað en að leggja leið sína að Geysi og Gullfossi til að sjá hversu illa leiknir þessir staðir eru og hið sama á við um fjölmörg önnur svæði. Þessi eyðilegging varð ekki á einum degi heldur á löngum tíma þannig að næg tækifæri hefðu átt að vera til aðgerða. Það er alkunn staðreynd að náttúran er viðkvæm og þarfnast verndar fyrir ágangi. Þegar kemur að ferða- mennsku hér á landi hefur gróðasjónarmið of oft verið sett í forgang, reyndar svo mjög að stundum hefur virst sem náttúruspjöll séu einfaldlega flokkuð sem ákveðinn fórnarkostnaður. Eða hvernig má öðruvísi skýra það hversu hægt gengur að grípa til aðgerða, þótt alvara máls- ins sé ljós? Ferðamálaráðherra boðar aðgerðir en segir um leið að málið sé flókið, til dæmis sé óljóst hver beri ábyrgðina, sum svæði séu í eigu ríkisins en önnur í eigu sveitarfélaga og einstaklinga. Ekki hljómar þetta svo ofur flókið, þarna þurfa ríki, sveitarfélög og einstaklingar einfaldlega að leggjast á eitt. Örugglega eru þar einhverjir sem eru ein- ungis með gróðasjónarmið í huga en ekki náttúruvernd, en það er einnig hagur peningaaflanna að náttúran fái að njóta sín. Ferðamenn koma til að sjá náttúruna og dást að henni og eru tilbúnir að greiða fyrir þá upplifun. Það er sameiginlegur hagur allra, bæði náttúruverndarsinna og gróðahyggjumanna, að vernda íslenska náttúru. Það er síðan fullkomlega ljóst hverjir bera siðferði- lega ábyrgð á íslenskri náttúru. Það gerum við öll. Það er skylda okkar að hlúa að náttúru landsins og vernda hana. Það verður eilífur smánarblettur á þessari þjóð ef hún ætlar að horfa aðgerðarlaus upp á eyðileggingu á náttúru- perlum landsins. Grípa þarf til aðgerða og það strax. Við getum ekki beðið lengur. Flóknara er það nú ekki. Margar eru skýrslurnar Í hvert skipti sem stór ákvörðun er tekin í heil-brigðiskerfinu hefur hún áhrif um kerfið allt. Þegar hjúkrunarrýmum fjölgar hefur það áhrif á lífsgæði aldraðra sem eru á biðlistum eftir slíkum rýmum, það hefur áhrif á stöðu Landspítalans sem glímir við verulegan vanda að því er varðar aldraða sem ekki er hægt að útskrifa af deildum spítalans. Þar með léttir á deildum spítalans og þjónusta eflist enn frekar við almenning í landinu, við heilbrigðisstofnanir um allt land og heilsugæsluna. Biðin allt of löng Um langt árabil hefur verið skortur á hjúkrunarheim- ilum í landinu þannig að bið eftir hjúkrunarrýmum hefur verið allt of löng, og í mörgum tilvikum óásætt- anleg. Í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019-2023 er tekið með afgerandi hætti á þessu verkefni og um að ræða stórátak í uppbyggingu hjúkr- unarrýma. Í fyrri áætlun var gert ráð fyrir uppbyggingu 250 nýrra rýma á tímabili áætlunarinnar en sá fjöldi er nú kominn upp í 550 rými fram til ársins 2023. Löngu tímabært Um leið og mikilvægt er að fjölga fjölbreyttum úrræð- um fyrir aldraða, bæði í heimahjúkrun, heimaþjónustu og dagdvöl er löngu tímabært að stíga þetta skref sem hér er boðað. Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar á næstu árum, hlutfallsleg fjölgun aldraðra og aukin þjónustuþörf er veruleiki sem þarf að bregðast við í tæka tíð. Stórátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila er mikil- vægt skref í þágu aldraðra á Íslandi en endurspeglar líka skýra áherslu á heilbrigðismál í víðum skilningi í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Í áætluninni er stóraukin áhersla á málaflokkinn, bæði á framkvæmdir og rekstur, en mikilvægast þó er að stilla saman strengi til framtíðar, móta stefnu og skýra áherslur í þágu samfélagsins alls. Það er meginmarkmið mitt í embætti heilbrigðisráðherra. Hjúkrunarrýmum fjölgar umtalsvert Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis­ ráðherra 89% af lesendum dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 18–49 ára lesa Fréttablaðið daglega. *Fréttablaðið og Morgunblaðið. Heimild : Prentmiðlamæling Gallup okt. - des. 2017. Gas, gas, gas! Sturla Jónsson varð alþýðuhetja 2008 er hann leiddi mótmæli vörubílstjóra gegn háu elds- neytisverði. Hann er kominn á kaf í slíkar verðpælingar á ný og á Facebook minnir hann almenn- ing á að rétt eins og tannkrem og dömubindi tengist eldsneytis- verðið vísitölu neysluverðs. Sturla bendir á að dæluverð litaðrar dísilolíu, sem er undan- þegin gjaldskyldu, er rúmum 80 krónum lægra en ólitaðrar. Sú ólitaða er aftur á móti „notuð í neysluvísitöluna!“ Menn hafa mótmælt af minna tilefni. Trump-taktar í ráðhúsi Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, býður á heimasíðu sinni upp á greiningu á við- brögðum stuðningsmanna Dags B. Eggertssonar við skoðana- könnun Fréttablaðsins. „Borgar- stjórinn og félagar hans setja sig í Trump-stellingar gagnvart fjölmiðlum og öðrum andstæð- ingum sínum,“ skrifar Björn og furðar sig á að sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson dreifi per- sónulegum árásum á Eyþór Arnalds með kvörtunum yfir að tekið sé á borgarstjóraefni Sjálf- stæðismanna með „silkihönsk- um“. „Sagnfræðingurinn vill með öðrum orðum meira af óhróðri um Eyþór á Facebook í von um að þá vænkist hagur Dags B. Skyldi enginn kunna íslensku í ritskoðunardeild Facebook?“ thorarinn@frettabladid.is 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r14 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð I ð SKOÐUN 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 6 A -1 C B C 1 F 6 A -1 B 8 0 1 F 6 A -1 A 4 4 1 F 6 A -1 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.