Fréttablaðið - 12.04.2018, Qupperneq 15
Þetta gerðist. Lögreglan kom þar að sem hópur manna hafði brot izt inn í höfuðstöðvar
demókrata í Watergate-byggingunni
í Washington að næturlagi til að ræna
skjölum sem menn Nixons forseta
hugðust nota honum til framdráttar
í forsetakosningunum þá um haustið.
Þegar lögreglan kom á vettvang hafði
innbrotsþjófunum tekizt að forða sér
öllum nema einum. Hann var hand-
samaður. Þetta þótti sumum ranglátt:
Að taka bara einn þegar allir hinir
sluppu! Fjórðungur þingmanna lagði
til í þinginu að ræninginn sem var
handsamaður skyldi opinberlega beð-
inn afsökunar á að hafa verið ákærður
og dæmdur.
Byrjum aftur. Þetta gerðist auð-
vitað ekki að öðru leyti en því að inn-
brotið var sem sagt framið í júní 1972,
ræningjarnir voru allir handteknir á
staðnum, ákærðir og dæmdir í fang-
elsi og Nixon forseti hrökklaðist frá
völdum tveim árum síðar þegar ljóst
var orðið að hann hafði verið með í
ráðum og hindrað framgang réttvís-
innar með því að reyna að hylja spor
þjófanna. Hann vissi sem var að hefði
hann ekki sagt af sér hefði þingið sett
hann af.
„Af stórfelldu gáleysi“
Þingsályktunartillaga 15 þingmanna
um að Alþingi biðji fv. forsætisráð-
herra afsökunar á að hafa ákært hann
2010 fyrir vanrækslu í aðdraganda
hrunsins afhjúpar skeytingarleysi um
lög og rétt og um fórnarlömb hruns-
ins sem misstu heimili sín og aleigu
þúsundum saman eins og Agnar Kr.
Þorsteinsson tölvunarfræðingur
lýsti í leiftrandi grein í Stundinni.
Alþingi ákærði ráðherrann m.a. fyrir
„alvarlega vanrækslu á starfsskyldum
sínum sem forsætisráðherra and-
spænis stórfelldri hættu sem vofði
yfir íslenskum fjármálastofnunum og
ríkissjóði, hættu sem honum var eða
mátti vera kunnugt um og hefði getað
brugðist við …“
Sé maður ákærður og síðan fundinn
saklaus fyrir rétti kann að vera ástæða
til að biðja hann afsökunar. Sé framið
dómsmorð, þ.e. sé saklaus maður
dæmdur, er full ástæða til að biðja
hann afsökunar. Hvorugt á við um
tillöguna sem liggur nú fyrir Alþingi.
Landsdómur undir forustu forseta
Hæstaréttar dæmdi ráðherrann fv.
sekan um brot gegn stjórnarskránni
en gerði honum ekki refsingu þar eð
um fyrsta brot var að ræða.
Flutningsmenn þingsályktunar-
tillögunnar fullyrða í greinargerð:
„Niðurstaða landsdóms sýnir að
ekki var tilefni til ákæru.“ Þessi full-
yrðing er úr lausu lofti gripin enda
fór Landsdómur hörðum orðum um
embættisfærslu ráðherrans í dómi
sínum þar sem segir m.a.: „Ákærði er
í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa
af stórfelldu gáleysi látið farast fyrir
að halda ráðherrafundi um mikilvæg
stjórnarmálefni eins og fyrirskipað er
í 17. gr. stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir
að honum hlaut að vera ljós sá háski,
sem vofði yfir bankakerfinu og þar
með heill ríkisins … með þeim afleið-
ingum að ekki var um þau málefni
fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar.“
Þá verður fjandinn laus
Þingmennirnir 15 eru ekki einir á báti.
Margir repúblikanar á Bandaríkja-
þingi krefjast þess nú líkt og forsetinn
að Robert Mueller saksóknara sem
rannsakar meint ólögleg Rússatengsl
Trumps forseta og manna hans verði
vikið frá störfum og rannsóknin lögð
niður. Þessa kröfu leggja repúblikanar
fram enda þótt einn maður hafi þegar
fengið dóm og þrír aðrir hafi þegar
verið ákærðir fyrir lögbrot sem sak-
sóknarinn komst að. Mennirnir hegða
sér eins og þeir kunni ekki að hugsa
eða kunni ekki að skammast sín. Hús-
leit alríkislögreglunnar FBI hjá einka-
lögfræðingi forsetans fyrr í vikunni
vegna meintra lögbrota og hörð við-
brögð forsetans við húsleitinni þykja
nú hafa aukið líkurnar á að forsetinn
víki Mueller saksóknara úr starfi. Þá
verður fjandinn laus líkt og eftir inn-
brotið í Watergate 1972.
Kveðja til Trumps
Luigi Zingales er Ítali, prófessor í hag-
fræði í Chicago-háskóla. Hann birti
grein í New York Times eftir kosning-
arnar 2016 til að vara andstæðinga
Trumps, nýkjörins forseta, við því að
hæðast um of að honum. Það mun
engum árangri skila, sagði Zingales.
Ítalar gerðu endalaust grín að Silvio
Berlusconi og sátu samt uppi með
hann sem forsætisráðherra von úr viti.
Ég leyfi mér samt að skilja eftir-
farandi limru Kristjáns Hreinssonar
skálds og heimspekings um Káin, vest-
ur-íslenzka skáldið, svo að hún fjalli
um frísúru Trumps Bandaríkjaforseta
sem vakti fyrir nokkru heimsathygli
þegar léttur vindur lék um höfuð for-
setans:
Víst náði hann Káinn til Klettafjalla
og komst þarna stundum í rétta halla,
hann settist þar að
var sáttur við það
en svo var hann líka með blettaskalla.
Blettaskallaskáldskapur
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Q7 e-tron
Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra
ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við.
5
á
ra
á
by
rg
ð
fy
lg
ir
f
ól
ks
bí
lu
m
H
EK
LU
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is
10.420.000 kr.Verð frá
Þingsályktunartillaga 15 þing-
manna um að Alþingi biðji fv.
forsætisráðherra afsökunar á að
hafa ákært hann 2010 fyrir van-
rækslu í aðdraganda hrunsins
afhjúpar skeytingarleysi um
lög og rétt og um fórnarlömb
hrunsins sem misstu heimili sín
og aleigu þúsundum saman.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F i M M T u d a g u R 1 2 . a p R Í L 2 0 1 8
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
A
-1
2
D
C
1
F
6
A
-1
1
A
0
1
F
6
A
-1
0
6
4
1
F
6
A
-0
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K