Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 22
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flottar gallabuxur,
fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 7.900.-
Nýjar
vörur
Túnika kr. 6.900.-
2 litir • Str. S-XXL
Blússa kr. 5.990.-
4 litir • Str. S-XXL
Anna Fríða Gísladóttir hefur í mörg horn að líta í starfi sínu sem markaðsstjóri
Domino’s, ásamt því að taka að
sér önnur markaðstengd verkefni.
Hún hefur mikinn áhuga á elda
mennsku og segir að sér finnist fátt
skemmtilegra en að bjóða góðu
fólki í mat á heimili sínu í Vestur
bænum. „Svo er ég ævintýragjörn
og ferðast mikið í frítíma mínum,“
segir hún.
Spáir þú mikið í tískustrauma?
Já, mér finnst gaman að fylgjast
með því sem er í gangi hverju sinni.
Hvernig myndir þú lýsa þínum
fatastíl? Ég hef nokkuð fjölbreytt
an fatastíl en það yrði þó seint sagt
um mig að ég gangi í mjög litskrúð
ugum fötum. Mér þykir gaman að
klæðast vönduðum fötum og spá í
smáatriðunum.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég ferðast fremur mikið og þá fá
oft vel valdar flíkur að fylgja með
heim. Ég versla af og til á netinu en
finnst gott að finna áferð á efninu
á þeirri flík sem ég er að spá í áður
en ég kaupi hana.
Áttu þér uppáhaldsfata-
verslun? Nei, enga ákveðna en ég
fer þó sjaldnast tómhent út úr &
Other Stories.
Hvaða föt eru í mestu uppá-
haldi hjá þér? Ég er frekar veik
fyrir samfestingum, skóm og yfir
höfnum.
Uppáhaldshönnuður? Ég hef
ekki fylgt neinum einum ákveðið,
heldur fer það oft eftir árstíðum.
Eflaust eru margar íslenskar
konur sammála mér en danskir og
sænskir hönnuðir klikka sjaldnast
í mínum bókum.
Notar þú fylgihluti ? Já, ég er
alltaf með hálsmen frá Mariu Black
sem kærastinn minn gaf mér,
ásamt silfurhring sem smíðaður
var á mig af Stefáni Boga gullsmið
sem er með skartgripaverslunina
Metal á Skólavörðustíg. Ég á
stórt safn af fallegum vönduðum
skartgripum sem ég hef oft ekki
„tímt“ að nota en ég held að það sé
kominn tími til breyta því. Síðan
finnst mér gaman að setja á mig
áberandi eyrnalokka eða hálsmen
þegar ég fer eitthvert út.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ég
sækist meira eftir innblæstri hjá
einstaklingum þegar kemur að
fatastíl hjá mér. Það eru þá einna
helst vinkonur mínar og aðrar
glæsilegar konur sem ég þekki ekki
en fylgist með í gegnum Insta
gram sem spila þar stóra rullu. Ef
ég hugsa um einhvern einstakling
sem tískufyrirmynd, þá væri það
einhver sem veit hvaða flíkur og
stílar fara viðkomandi vel og er
samkvæmur sjálfum sér.
Bestu og verstu fatakaupin?
Bestu fatakaupin eru yfirleitt þær
flíkur sem eru bæði vandaðar og
tímalausar. Mér dettur einna helst
í hug beigelituð ullarkápa sem ég
keypti fyrir 6 árum í Berlín og er
enn þá eins og ný og hvít silki
skyrta frá Massimo Dutti sem er
álíka gömul og enn í góðu standi.
Í gegnum tíðina hef ég svo
sannarlega keypt föt sem ég myndi
ekki endilega kaupa í dag en það
er ekki þar með sagt að það hafi
verið mistök. Ég trúi því að fólk
eigi að prófa sig áfram og finna
sinn stíl þegar kemur að tísku, vera
þó samkvæmt sjálfu sér en taka
smá áhættu hér og þar. Mér finnst
leiðinlegt að viðurkenna að það
tók mig of langan tíma að átta mig
á mikilvægi þess að kaupa færri en
vandaðri flíkur.
Hvaða flíkar gætir þú ekki
verið án? Allar konur þurfa að eiga
góðar gallabuxur.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Hálsmenin eru úr Spúútnik, hvítu buxurnar eru úr Other Stories, jakkinn er úr Zöru og bolurinn er DKNY.
Gallabuxurnar eru úr Geysi, skórnir eru Billibi og skyrtan er frá Filippu K.
MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI
Ég trúi því að fólk
eigi að prófa sig
áfram og finna sinn stíl
þegar kemur að tísku,
vera þó samkvæmt sjálfu
sér en taka smá áhættu
hér og þar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A p R Í L 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-5
3
0
C
1
F
6
A
-5
1
D
0
1
F
6
A
-5
0
9
4
1
F
6
A
-4
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K