Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 29
Athafnamaðurinn Sigfús Eymundsson opnaði fyrstu bókaverslun á Íslandi
þann 29. nóvember 1872 á horni
Austurstrætis og Lækjargötu,
nánar tiltekið að Lækjargötu 2 þar
sem verslunin var til ársins 1920.
Bókaverslunin naut frá upphafi
mikils trausts og virðingar og setti
sitt mark á bæjarlífið. Sigfús hóf
bókaútgáfu árið 1886 og flutti
jafnframt inn ýmsar vörur, varð
fyrstur manna til að flytja inn rit-
vélar og selja póstkort á Íslandi, en
hann tók myndirnar sjálfur.
1909 keypti Pétur Halldórsson
bæði verslun og bókaútgáfu af Sig-
fúsi sem lést tveimur árum síðar.
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar hélt áfram að blómstra
undir stjórn Péturs sem árið 1920
flutti verslunina að Austurstræti
18, einnig í hjarta borgarinnar þar
sem hún hefur verið nánast óslitið
síðan. Árið 1959 keypti Almenna
bókafélagið Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og tók einnig yfir
bókaútgáfuna. Bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar var sann-
kallað menningarsetur í miðri
borg á níunda áratug síðustu aldar
og miðpunkturinn í bæjarlífinu.
Árið 1932 stofnaði Baldvin Páls-
son Dungal pappírs- og ritfanga-
verslunina Pennann, ásamt bróður
sínum Halldóri. Verslunin var til
húsa í Ingólfshvoli á horni Póst-
hússtrætis og Hafnarstrætis. Penn-
inn var lengi eina verslunin sem
seldi minjagripi en fyrst og fremst
fékkst Penninn við innflutning á
pappírsvörum og ritföngum.
Árið 1969 urðu kaflaskil í sögu
Pennans þegar Baldvin Dungal,
eigandi fyrirtækisins, lést snögg-
lega. Sonur hans, Gunnar B. Dun-
gal, tók þá við rekstri fyrirtækisins
sem rak á þessum tíma verslanir í
Hafnarstræti 18, Laugavegi 84 og
Laugavegi 176. Fimm árum síðar
opnaði Penninn verslun sína í
Hallarmúla 2 og þegar fram liðu
stundir varð sú verslun flaggskip
fyrirtækisins.
Árið 1982 fékk Penninn bók-
söluleyfi og opnaði bókadeild í
verslun sinni í Hafnarstræti. Sama
ár hóf Penninn jafnframt innflutn-
ing á skrifstofuhúsgögnum.
Það var fyrst árið 1990 sem
Penninn og Eymundsson leiddu
saman hesta sína. Verslanirnar
tvær fóru undir sama þak þegar
ritfanga- og gjafavörudeild Penn-
ans var flutt í kjallara Austur-
strætis 18 og fyrirtækin gerðu
með sér samkomulag um sölu
á bókum. Penninn átti að bjóða
fjölbreytt úrval ritfanga, teiknivara
og gjafavöru ásamt landsins mesta
úrvali af pennum en Eymundsson
skyldi sjá um íslenskar og erlendar
bækur, tímarit og blöð.
Í apríl 1996 keypti Penninn
verslanir Eymundsson í Austur-
stræti, Kringlunni og Borgar-
kringlunni. Árið 1998 samþykkti
Borgarráð að heimila Pennanum
að útbúa bókakaffi í versluninni
í Austurstræti 18, en fyrirtækið
hafði keypt fasteignina á vor-
mánuðum. Þar með varð til eitt
ástsælasta bókakaffi landsins sem
lifir góðu lífi enn í dag.
Í árslok 2002 voru eigin versl-
anir fyrirtækisins tíu talsins, auk
þess sem það var í samstarfi við
fimm búðir á landsbyggðinni.
Starfsmönnum hafði fjölgað úr 60
í 220.
Árið 2003 var samið um kaup
á fjórum af Bókabúðum Máls
og menningar. Um var að ræða
verslanirnar að Laugavegi 18, í
Bankastræti, í Mjóddinni og Síðu-
múla. Á árunum 2014-16 voru
allar verslanir fyrirtækisins sam-
einaðar undir vörumerki Pennans
Eymundsson.
Í dag rekur Penninn 16 versl-
anir um land allt undir nafninu
Penninn Eymundsson. Þá rekur
Penninn húsgagnaverslun í Skeif-
unni 10 og Fyrirtækjaþjónustu
Pennans. Jafnframt rekur Penninn
tvær ferðamannaverslanir undir
merkjum Islandia í Bankastræti 2
og Kringlunni.
Saga Pennans og Eymundsson er
samtvinnuð sögu miðborgarinnar
Penninn og Eymundsson hafa selt bækur og ritföng í miðborginni síðan 1872.
Við á Skólavörðustígnum reynum að leggja áherslu á að fá allar nýjar bækur til
okkar en sérstaklega viljum við
þó sinna þeim flokki bóka sem
kallast fagurbókmenntir,“ segir
Valgerður. „Við leggjum mikinn
metnað í að bjóða fjölbreytt úrval
af ljóðabókum eftir unga höf-
unda og finnst einnig mikilvægt
að hér finni fólk alltaf heimsbók-
menntirnar, ekki hvað síst menn-
ingararfinn okkar, til að mynda
Laxness og Íslendingasögurnar.“
Hún nefnir einnig áherslu á árs-
tíðabundnar bækur. „Nú þegar
vorar stillum við til dæmis fram
bókum um garðrækt og ferðalög,
einkum ferðir á framandi slóðir
sem Íslendingar gætu haft gaman
af að lesa. Hingað koma auð-
vitað ferðamenn en við viljum
leggja áherslu á að bókabúðin sé
íslensk og fyrir íslenska viðskipta-
vini líka.“ Valgerður bendir á að
sérstaða bókabúðarinnar felist
meðal annars í kaffihúsinu sem
er eitt vinsælasta kaffihús í mið-
bænum. „Við bókabúðarmegin
erum gríðarlega ánægð með þessa
samsetningu, tímarit, bækur og
kaffi. Helsti kosturinn við að hafa
kaffihús og bókabúð svona saman
er að við fáum fólkið inn sem
finnst gaman að vera í bókabúð,
kemur ekki endilega bara til að
kaupa heldur til að skoða og dvelja
og njóta umhverfisins. Fólk getur
komið hingað og verið eitt og lesið
blöðin eða hitt vini og ættingja
á föstum tímum í hverri viku og
þannig verður til stór hópur dyggra
viðskiptavina bæði kaffihússins
og bókabúðarinnar.“ Hún bendir
á að kaffihúsum í bókabúðum fari
fækkandi víða erlendis. „Það hefur
minnkað, þetta sambýli bókabúða
og kaffihúsa, svo við finnum að
ferðamennirnir eru mjög hrifnir af
þessu, bæði breiða úrvalinu og svo
kaffihúsinu.“
Valgerður bendir á að þrátt fyrir
að búðin á Skólavörðustíg sé ekki
mjög stór sé þar ýmislegt að sjá og
skoða. „Við höfum alltaf reynt að
vanda okkur mest í bókunum en
svo erum við líka með úrval af rit-
föngum og erlendum bókum eins
og matreiðslubókum, gjafabókum,
fræðibókum og þess háttar. Svo
leggjum við áherslu á að bjóða
upp á nýja íslenska tónlist, bæði á
geislaplötum og vínyl en sú útgáfa
hefur aukist. Við erum bara með
íslenska gæðatónlist og þessi nýju
ungu íslensku bönd. Við erum með
tónlistina dreifða út um allt og líka
leikföngin og gjafavörurnar. Hér er
ekki sérstök gjafavörudeild því við
höfum aldrei verið með pláss til að
stilla gjafavöru upp sérstaklega. Þá
erum við líka með mjög gott úrval
af íslenskum bókum á erlendum
tungumálum og þó við höfum ekki
mikið pláss þá leggjum við áherslu
á að vera með stórt pláss fyrir
barnabækurnar.“
Haustin eru tími útgáfu og
útgáfuhófa í bókaheiminum
og Penninn Eymundsson á
Skólavörðustíg hefur ekki farið
varhluta af því. „Við höfum líka
verið vinsæll staður fyrir útgáfu-
boð, meðal annars út af staðsetn-
ingunni og svo er búðin ekkert of
stór svo það verður alltaf nota-
legt, sama hversu margir mæta,“
segir Valgerður og bætir við: „Það
myndast oft mjög skemmtileg
stemming á haustmánuðum. Við
höfum ekki pláss fyrir tónleika,
græjur og þess háttar en það er
alltaf gaman að fagna nýrri bók
með aðstandendum hennar.“
Valgerður segir að staðsetning
búðarinnar sé frábær. „Skóla-
vörðustígurinn hefur náttúr-
lega svolitla sérstöðu. Hér eru
vandaðar verslanir allt í kring
og það er mikið af uppákomum
hér við Skólavörðustíg, Kjöt-
súpudagurinn, Blúshátíðin og
Blómadagurinn til að nefna
nokkur dæmi. Kaupmannasam-
tök Skólavörðustígsins eru mjög
virk og við njótum auðvitað góðs
af því.“
Menningararfurinn
í fyrirrúmi
Valgerður Haraldsdóttir er verslunarstjóri í verslun Penn-
ans Eymundsson á Skólavörðustíg þar sem aðaláherslan
er á bækur, einkum þó ljóð og fagurbókmenntir.
Gestir í Bóka-
verslun Sigfúsar
Eymundssonar
í Austurstræti í
jólabókaflóðinu
1972, á 100 ára
afmæli verslunar-
innar.
MYND/Af vEf
PENNANS
valgerði Haraldsdóttur, verslunarstjóra á Skólavörðustíg, finnst kaffihús og
bókabúð rekast einstaklega vel saman.
Í Pennanum Eymundsson á Skólavörðustíg er áhersla lögð á fjölbreytt úrval
bóka og tímarita. MYND/ErNir
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxKYNNiNGArBLAÐ 5 f i M MT U DAG U r 1 2 . a P r í l 2 0 1 8 MiÐBorGiN
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
A
-2
6
9
C
1
F
6
A
-2
5
6
0
1
F
6
A
-2
4
2
4
1
F
6
A
-2
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K