Fréttablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 32
Reykjavíkurborg hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr Miðborgarsjóði. Hægt er að
sækja um styrk til og með 29. apríl
næstkomandi. Miðborgarsjóðurinn
á að stuðla að því að miðborgin sé
góður staður til að búa á og áhuga-
verður og aðlaðandi staður fyrir alla
Íslendinga og erlenda gesti.
Alls eru 30 milljónir króna í boði
árið 2018. Það er lögð áhersla á að
styrkja verkefni sem „hvetja til fjöl-
breytni, frumkvæðis, nýsköpunar og
rannsókna í eflingu miðborgarinn-
ar“. Það er svo lögð sérstök áhersla á
að styrkja verkefni sem samræmast
stefnu Reykjavíkurborgar um mál-
efni miðborgar, en leiðarljós hennar
er að miðborgin sé heildstæð,
aðlaðandi, fjölbreytt, vel tengd og
vistvæn og fyrir alla.
Allir eru hvattir til að sækja um
styrk, hvort sem það eru einstakl-
ingar, fyrirtæki eða hagsmuna- eða
grasrótarsamtök.
Hægt er að fá nánari upplýsingar
og sækja um rafrænt á heimasíðu
sjóðsins, www.reykjavik.is/mid-
borgarsjodur.
Hægt að sækja
um styrki úr
Miðborgarsjóði
Duus hús í Fischersundi gegndi stóru hlutverki í tónleikasögu Reykja-
víkur seinni hluta síðustu
aldar þar sem margar sveitir
héldu sína fyrstu tónleika og
áttu traust athvarf. Fischer-
sund er stutt og þröng gata
niður úr Grjótaþorpinu og
liggur niður að Aðalstræti í
miðbæ Reykjavíkur. Búið er
að rífa húsið fyrir nokkru en
þar stendur í dag Hótel Plaza
CenterHotel.
Duus hús var bæði hefð-
bundin krá og tónleika-
staður. Húsið var ekki stórt
en á tveimur hæðum. Uppi
var hefðbundin aðstaða
fyrir gesti en á fyrstu hæð
var lítið svið og pláss fyrir
hóflega stóran hóp tónleika-
gesta sem margir eiga góðar
minningar frá þessum tíma.
Í Duus húsi mátti hlýða
á alls konar lifandi tónlist,
rokk, blús, djass og popp,
en sveitaballasveitir snið-
gengu staðinn sem var allt of
lítill fyrir lífleg böll. Meðal
ólíkra sveita sem tróðu þar
upp voru HAM, Vinir Dóra,
Sykurmolarnir og Stuð-
menn.
Eftirminnilegustu tónleik-
arnir sem haldnir voru í hús-
inu eru að mati margra þeir
sem Sykurmolarnir héldu
fyrir François Mitterrand
Frakklandsforseta, frú Vig-
dísi Finnbogadóttur forseta
og aðra gesti árið 1990.
Hús með ríka tónlistarsögu
Sykurmolarnir
halda tónleika
fyrir Mitterr-
and, Vigdísi
Finnboga-
dóttur og fleiri
gesti á Duus
í lok ágúst
1990.MYND/
JÓHANN A. KRIST-
JÁNSSON
Þegar fólk skoðar veitingahús í Reykjavík á TripAdvisor kemur fljótt í ljós að Bæjarins beztu
er með þeim vinsælustu. Staðurinn,
sem er í raun bara skúr í Hafnar-
stræti, fær fjórar af fimm stjörnum.
Það er reyndar mjög skemmtilegt
því að á síðasta ári fagnaði staðurinn
80 ára afmæli og stendur enn full-
komlega undir nafni. Þeir sem koma
til Reykjavíkur þurfa að prófa eina
með öllu hjá Bæjarins beztu ekki
síður en Bill Clinton, þáverandi for-
seti Bandaríkjanna, sem frægt varð.
Ýmsir heimsfrægir tónlistarmenn
hafa sömuleiðis stoppað við lúguna
og fengið sér eina.
Í umsögn á TripAdvisor segir
Bandaríkjamaður: „Vinur minn
sagði að ég yrði að prófa pylsu á
Bæjarins beztu. Með hjálp Google
Maps fundum við staðinn og vorum
átta sem fengum okkur pylsu og
allir sögðu WOW. Og ég sem hélt að
bestu pylsurnar væru í New York.
Steikti laukurinn og sinnepið var
mjög spes.“
Heldur
vinsældum
Bæjarins beztu urðu 80 ára í fyrra.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . A p R í L 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RMIÐBORGIN
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
A
-3
F
4
C
1
F
6
A
-3
E
1
0
1
F
6
A
-3
C
D
4
1
F
6
A
-3
B
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K