Fréttablaðið - 12.04.2018, Page 40
1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F I M M T U D a G U r24 B í l a r ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Bílar
Hjá bílaumboðinu BL eru um 10% starfsmanna af erlendum uppruna. Nýverið
var þeim öllum boðið að taka stöðu-
próf í íslensku og hafa fjórtán þeirra
nú hafið nám á 1. stigi í íslensku.
Kennt er í tvær klukkustundir í einu
í tíu skipti og lýkur námskeiðinu í
lok maí. Kennslan er á vegum Retor
fræðslu sem býður fyrirtækjum slíka
þjónustu. Að sögn Önnu Láru Guð-
finnsdóttur, starfsmannastjóra BL,
leggur fyrirtækið áherslu á íslensku
sem leiðandi tungumál í starfsemi
sinni. „Í því fjölmenningarsamfélagi
sem Ísland er í dag er nauðsynlegt að
fyrirtækin aðstoði erlent starfsfólk
sitt við að verða sem virkastir þátt-
takendur í samfélaginu. Í því sam-
bandi er íslenskukunnátta á meðal
lykilatriða í aðlögun að samfélaginu
og í tengslamyndun við aðra, ekki
síst við samstarfsfólk og viðskipta-
vini,“ segir Anna Lára.
Erlendir starfsmenn BL læra íslensku
Jeppa- og jepplingaæðið sem runnið hefur á kaupendur í Bandaríkjunum náði nýjum
hæðum í nýliðnum fyrsta fjórð-
ungi ársins. Jeppar og jepplingar
voru 68% af sölunni en fólksbílar
aðeins 32%. Sala bíla í Bandaríkj-
unum var með ágætum á þessum
1. ársfjórðungi og jókst um 2%
frá árinu áður. Á þessum þremur
mánuðum seldust 4.117.766 bílar
og ekki nóg með að það hafi verið
betri sala en 2017 þá var hún einn-
ig betri en metárið 2016, sem var
stærsta bílasöluár þar vestra frá
upphafi. Vaxandi sala japanskra
bílaframleiðenda hélt áfram á
ársfjórðungnum og jók t.d Toyota
markaðshlutdeild sína um 0,7% á
meðan Ford tapaði 0,6%. Frábær
sala Jeep-bíla hélt áfram og jókst
markaðshlutdeild Jeep í Banda-
ríkjunum um 0,7%.
Á lúxusbílasviðinu náði Volvo
eftirtektarverðum árangri og
stóraukin sala Volvo-bíla skýrði
helminginn af 2,9% aukningu í
heildarsölu lúxusbíla. Sá lúxus-
bílaframleiðandi sem tapaði
mestri hlutdeild var Lincoln, sem
seldi 17% færri bíla en á fyrstu 3
mánuðunum í fyrra. Í jepplinga-
flokki náði Nissan Rogue (X-Trail
í Evrópu) aftur söluforystunni af
Toyota RAV4. Sala Nissan Rogue
jókst um 15% á ársfjórðungnum
sem kannski telst ekki svo stórkost-
legt í ljósi þess að salan í þessum
flokki bíla jókst um 13%.
Jeppar og jepplingar 68%
sölunnar í Bandaríkjunum
K ia vann til þrennra Red Dot verðlauna á dögunum fyrir bíla sína Stinger, Stonic og Picanto. Þessir þrír nýju bílar frá Kia
unnu allir í sínum flokkum auk þess
sem Stinger vann í flokknum „Best of
the Best“ hjá Red Dot sem þykir sér-
lega eftirsóknarvert.
Red Dot-verðlaunin eru ein þau
virtustu í hönnunarheiminum.
Þessir þrír bílar unnu einnig alþjóð-
legu hönnunarverðlaunin, iF Design
Award, í ársbyrjun. Stinger og Stonic
eru báðir glænýir bílar úr smiðju Kia,
en Picanto er að koma nýr af þriðju
kynslóð.
Kia hefur náð framúrskarandi
árangri í Red Dot verðlaununum
og hlotið alls 21 verðlaun þar síðan
árið 2009 þegar Kia Soul fékk þau í
fyrsta skipti það ár. „Hönnunarteymi
Kia hefur unnið hörðum höndum
af því að framleiða fallega og góða
bíla og þetta er viðurkenning fyrir
þá vinnu,“ sagði Þjóðverjinn Peter
Schreyer, einn af æðstu yfirmönnum
Kia og yfirhönnuður Kia Motors.
Schreyer, sem var áður yfirhönnuður
hjá Audi, hefur átt stóran þátt í vel-
gengni Kia á síðustu árum.
Kia sópar til sín
Red Dot verðlaunum
Frá árinu 2009 hefur Kia unnið 21 Red Dot verðlaun, en nú
hlutu Stinger, Stonic og Picanto verðlaun í sínum flokkum.
Flestir áttu von á því að miklir söluörðug-leikar myndu hrjá
Volkswagen í kjölfar dísil-
vélahneykslis fyrirtækisins
fyrir um tveimur árum, en
hneykslið virtist bíta sáralítið
í stöðuga sölu Volkswagen bíla. Sú
þróun hélt sannarlega áfram á fyrsta
fjórðungi þessa árs því Volkswagen
setti sölumet og seldi 5,9% fleiri bíla
en á sama tíma árið áður. Alls seldi
Volkswagen 1,53 milljónir bíla. Best
gekk að selja á stærsta bílamarkaði
Volkswagen og fleiri bílaframleið-
enda, þ.e. í Kína, þar sem söluaukn-
ingin nam 8,6%. Fín söluaukning
varð einnig í Bandaríkjunum en
0,8% söluminnkun var á heima-
markaðnum í Þýskalandi.
Í nýliðnum mars gekk
Volkswagen frábærlega
við sölu bíla sinna og náði
584.700 bíla sölu og ef þessi
velgengni verður stigvaxandi
á árinu má búast við algeru
metári hjá Volkswagen. Í fyrra átti
Volkswagen Group, móðurfyrirtæki
Volkswagen, metár í sölu og skilaði
mesta hagnaði sem fyrirtækið hefur
náð á einu ári og næstum tvöfaldaði
fyrra eigið met. Undir Volkswagen
Group falla meðal annars bíla-
merkin Audi, Porsche, Skoda, Seat,
Lamborghini, Bugatti og Bentley, auk
Volkswagen. Volkswagen Group er
stærsti bílaframleiðandi heims og
náði þeim titli nýlega af Toyota.
Sölumet hjá VW á fyrsta ársfjórðungi
Kia Stinger vann í flokknum „Best of the Best“ .
Þessir þrír nýju bílar
frá Kia unnu allir í
sínum flokkum auk þess
sem Stinger vann í flokkn
um „Best of the Best“ hjá
Red Dot sem þykir sérlega
eftirsóknarvert.
Sala bíla í Banda
ríkjunum var með
ágætum á þessum 1. árs
fjórðungi og jókst um 2%
frá árinu áður.
Nissan Rogue, sem ber nafnið X-Trail í Evrópu.
Hluti erlendra starfsmanna BL er sestur á skólabekk til að læra íslensku.
1
2
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
A
-2
6
9
C
1
F
6
A
-2
5
6
0
1
F
6
A
-2
4
2
4
1
F
6
A
-2
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K