Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 44

Fréttablaðið - 12.04.2018, Side 44
Þjónustumiðstöð tónlistarfólks Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 KviKmyndir The death of Stalin HHHHH Leikstjóri: Armando Iannucci Aðalhlutverk: Steve Buscemi, Sim- on Russell Beale, Jeffrey Tambor Sovétríkin undir ógnarstjórn Stalíns voru ekkert sérstak­lega góður staður að vera á. Ofsóknarbrjálæðið var full­komið. Fólk var látið hverfa í Gúlagið, var handtekið fyrirvara­ laust, pyntað og drepið. Allt í flökt­ andi takti við geðsveiflur einræðis­ herrans ógurlega. Enginn var öruggur. Ekki einu sinni nánustu samverkamenn Stalíns. Sá sem var í náðinni í gær gæti hæglega verið drepinn í dag. Almenningur skrimti við sult og seyru í stöðugum ótta um að gera eitthvað rangt, segja eitthvað rangt, hugsa eitthvað rangt. Lífið hékk á þessum bláþræði og hver sem er, nágranni, maki, vinur, gat verið njósnari með sperrt eyru tilbúinn að klaga minnstu yfirsjón eða mismæli. Þessi taugaveiklun litaði einnig daglegt líf karldurg­ anna í æðsta ráði Stalíns. Titrandi stíga þeir línudansinn í kringum dyntina í leiðtoganum. Eitt feilspor getur kostað þá lífið. Þessi litla klíka fer í algert fár þegar Stalín geispar golunni 1953 og þá upphefst farsakenndur darraðardans undirferlis, flokka­ drátta og skuggalegs ráðabruggs þar sem allir vilja skúrkarnir vitaskuld taka sess Stalíns. En refskákin snýst þó um annað og meira en valdagræðgi þar sem þeim er öllum ljóst að ekki komist allir lifandi frá eftir­ köstum dauða Stalíns. Þ e s s i r v a f a s ö m u h e i ð u r s m e n n eru allir þekkt nöfn úr sögu Sovétríkjanna og 20. aldarinnar almennt; Lavrenti Bería, Georgí Malenkov, Vjatsjeslav Molotov og síðast en ekki síst Níkíta Khrústsjov. Kolsvartur húmor The Death of Stalin er þvottekta farsi og húmorinn eðlilega kol­ svartur. Snilld handritshöfundarins og leikstjórans, Armando Iannucci, felst einmitt í því hvernig honum tekst að töfra fram drepfyndinn og galsafenginn farsa í Moskvu 1953 með öllum þeim ömurleika og feigð sem þar sveif yfir vötnum. Samtölin eru ofboðslega vel skrif­ uð og flæða áfram eins og straum­ hart fljót í spriklandi margræðni sinni og kaldhæðni. Þessum frá­ bæra texta skilar síðan pottþéttur leikhópur óaðfinnanlega. Bería, yfirmaður leyniþjónust­ unnar, og Khrústsjov eru frekastir til fjörsins og skylmingar þeirra eru þungamiðja myndarinnar. Önd­ vegisleikararnir Steve Buscemi og Simon Russell Beale fara með himinskautum í hlutverkum þess­ ara fláráðu en átakanlega kómísku illmenna. Bería er sýnu verstur í þessu kommúnistagengi, sadískur nauðg­ ari og barnaníðingur, á meðan Khrústsjov kemur fyrir sem hall­ ærislegur bullukollur og slímugur snákur. Russell Beale er dásamlegur Bería og Buscemi alveg meiriháttar Khrústsjov og samleikur þeirra tveggja er unun á að horfa. Adrian McLoughlin er bráðfynd­ inn Stalín, Jeffrey Tambor merg­ sýgur rullu hins hégómlega hrygg­ leysingja Georgís Malenkov sem er næstráðandi Stalíns. Michael Palin leikur sér að því að túlka Vjatsj­ eslav Molotov og einhvern veginn er mjög viðeigandi að þessi gamli Monty Python­grínari láti til sín taka þar sem kolrugluð atburðarás­ in og andrúmið í myndinni minnir á köflum á Monty Python­skets. Andrea Riseborough og Rupert Friend eru bráðskemmtileg og harmræn í hlutverkum Svetlönu og Vasílí, barna harðstjórans. Olga Kurylenko er beitt og tignarleg í hlutverki píanóleikarans Mariu Júd­ ínu, mikilvægs tannhjóls í atburða­ rásinni. Sá öflugi leikari Jason Isaacs, Lucious Malfoy í Harry Potter, trommar síðan upp sem alger senu­ þjófur í hlutverki Zhúkovs, yfir­ hershöfðingja Rauða hersins. Sá er heldur betur hreðjamikill, með brjóstið þakið orðum og glingri að hætti þeirra í Sovét. The Death of Stalin lætur því miður ekki mikið yfir sér og hætt er við að hún fljúgi undir radar í Háskólabíói og Borgarbíói. Hún er nú samt mynd sem engir unnendur góðra gamanmynda mega missa af og enn síður áhugafólk um sögu 20. aldarinnar og Sovétríkjanna. Þórarinn Þórarinsson niðurSTaða: Þessi mynd er eins og vel skorinn demantur. Gráglettinn og léttleikandi farsi um ömurlegt tímabil á síðustu öld. Veisla fyrir unnendur góðra bíómynda og áhugafólk um sögu Sovétríkjanna. Lífshættulegur farsi Flárátt og meðvirkt æðsta ráðið stendur yfir líki kúgarans þar sem banvænt ráðabrugg gerjast í huga hvers og eins. Það gustar af Jason Isaacs í hlutverki stríðshetj- unnar og tuddans Zhúkovs yfirhers- höfð- ingja. Simon Russell Beale Samtölin eru ofboðSlega vel Skrifuð og flæða áfram einS og Straumhart fljót í Spriklandi margræðni Sinni og kaldhæðni. ÞeSSum frábæra texta Skilar Síðan pott- Þéttur leikhópur óaðfinnan- lega. 1 2 . a p r í l 2 0 1 8 F i m m T u d a G u r28 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð Bíó 1 2 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 A -2 1 A C 1 F 6 A -2 0 7 0 1 F 6 A -1 F 3 4 1 F 6 A -1 D F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.