Fréttablaðið - 07.05.2018, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 6 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 7 . M A Í 2 0 1 8
K R I N G L U
K A S T
20–50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUM VÖRUM
3.–7. MAÍ
öflugur liðstyrkur
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Lausnir á loftslags-
vandanum felast í því að draga
úr neyslu og draga úr losun, segir
Kristín Linda Árnadóttir. 8
SPORT Ólafía Þórunn spilaði vel í
Texas um helgina. 13
TÍMAMÓT Friðrik
Jósefsson náði
svarta beltinu
í karate 69 ára.
26
MENNING Guðni Th. Jóhannes-
son er í Seattle. 17
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l FASTEIGNIR
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
DÓMSTÓLAR Málaskrárkerfi dóm-
stólanna er opið öllum starfsmönn-
um dómstóla. Þar eru persónu-
greinanleg gögn um afar viðkvæm
málefni, þar með talið upplýsingar
um áverka brotaþola í kynferðis-
brotamálum.
Ekki er hægt í málaskrárkerfinu
að rekja leit starfsmanna eða sjá
hvort starfsmaður afriti gögn og
leki þeim. Dæmi eru um að gögn
sem eru lokuð í LÖKE, málaskrár-
kerfi lögreglunnar, séu opin öllum
starfsmönnum dómstólasýslunnar.
Ólöf Finnsdóttir, framkvæmda-
stjóri dómstólasýslunnar, segir
málaskrárkerfi dómstólanna ófull-
nægjandi. Í byrjun næsta árs verði
nýtt rekjanlegt kerfi komið í gagnið.
„Það er rétt að það er ekki hægt
að rekja leitir starfsmanna í kerfinu
og gögn eru opin öllum starfsmönn-
um,“ segir Ólöf. Gögn sem þessi eru
úrskurðir um gæsluvarðhald, hús-
leitarheimildir og hleranir.
Þann 30. apríl féll dómur í máli
Hreiðars Más Guðmundssonar gegn
íslenska ríkinu þar sem tekist var á
um heimild til hlerunar sérstaks
saksóknara á símtölum Hreiðars
Más. Þar ákvað sérstakur saksóknari
að leita til Héraðsdóms Vesturlands
um heimild til hlerunar því hann
treysti því ekki að úrskurðurinn
færi leynt ef leitað yrði til Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Kristrún Krist-
insdóttir, dómari við réttinn, segir
í niðurstöðum dómsins eðlilegt að
sérstakur saksóknari hafi ekki treyst
dómstólnum fyrir úrskurðinum.
„Við þessar aðstæður var það eðli-
leg varúðarráðstöfun, sem horfði
til hagræðis, að sérstakur saksókn-
ari leitaði til dómstóls í nágrenni
borgarinnar þar sem aðeins störf-
uðu þrír starfsmenn, fremur en til
Héraðsdóms Reykjavíkur sem er
fjölmennur vinnustaður þar sem
allir starfsmenn hafa aðgang að
málaskrárkerfi dómstólsins,“ segir
í niðurstöðu Kristrúnar.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,
segir að í málaskrárkerfinu séu til
dæmis gæsluvarðhaldsúrskurðir þar
sem ítarlegar lýsingar séu á áverkum
á kynfærum kvenna með nöfnum
þeirra og kennitölum. – sa
Starfsmenn dómstóla
leka trúnaðargögnum
Málaskrárkerfi dómstólasýslunnar er ófullnægjandi. Dæmi eru um að lýsingar
á áverkum á kynfærum kvenna séu opnar öllum starfsmönnum dómstóla. Ekki
er hægt að rekja leit starfsmanna sem geta afritað gögn án þess að nokkur viti.
Það er rétt að það er
ekki hægt að rekja
leitir starfsmanna í kerfinu.
Ólöf Finnsdóttir, framkvæmdastjóri
dómstólasýslunnar
Danssýningin Pond var flutt í gær í sundlaug Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut. Sýningin er unnin af finnska danshópnum Kaaos Company þar sem fatlaðir og ófatlaðir
dansa saman. „Hópurinn telur að fjölbreytileiki sé skapandi afl í listrænni vinnu sem brjóti niður staðalímyndir í dansheiminum,“ segir í kynningu vegna sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
ÖRYGGISMÁL Breyta á reglum um
útgerð svokallaðra RIB-báta til að
bregðast við athugasemdum rann-
sóknarnefndar samgönguslysa
vegna slysa í slíkum bátum.
Niðurstaða tveggja nýjustu rann-
sókna nefndarinnar er sama og
áður, að bátunum hafi verið siglt of
hratt miðað við aðstæður.
Minnst ellefu farþegar, í átta
skráðum slysum, hafa hlotið af
meiðsli á baki eða hálsi.
Í fyrrahaust stakk rannsóknar-
nefndin upp á því að í bátana yrðu
sett fjaðrandi sæti sem myndu taka
á sig mesta höggið. Samgönguráðu-
neytið fékk umsögn frá Samgöngu-
stofu sem taldi ekki fært að setja um
reglur um fjaðrandi sæti.
– jóe / sjá síðu 6
Nýjar reglur auki öryggi RIB-báta
LÍFIÐ Söngkonan Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir og Max Petrov unnu í
gærkvöldi í Allir geta dansað, dans-
þætti Stöðvar 2.
Jóhanna og Max fengu fullt hús
stiga frá dómnefndinni í úrslita-
þættinum og hrósuðu sigri í síma-
kosningu. – bb / sjá síðu 22
Jóhanna og Max
hrósuðu sigri
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
2
-F
E
5
0
1
F
B
2
-F
D
1
4
1
F
B
2
-F
B
D
8
1
F
B
2
-F
A
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K