Fréttablaðið - 07.05.2018, Side 2
Veður
Sunnan- og síðar suðaustan 5-13
með rigningu og súld í dag, einkum
síðdegis. Á Norður- og Austurlandi
verður lítil eða engin úrkoma. Hiti 4
til 10 stig að deginum, mildast norð-
austantil. SJÁ SÍÐU 16
Mikið úrval af trjáklippum og greinaklippum.
Einnig fyrirliggjandi trjákurlarar - hentugir í garðinn og í sumarbústaðinnn.
Útrýmdu mosa úr grasinu með mosatætara.
Mosatætarar
Mosatætari
með rafmótor
Mosatætari
með bensínmótor
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hátíð í bæ
Breki VE 61, nýr togari sem smíðaður var í Kína fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum, kom til heimahafnar í gær eftir 46 daga siglingu. „Þetta
hefur gengið vonum fram allt saman og skipið stóðst allar væntingar, mér líst gríðarlega vel á það,“ segir Magnús Ríkharðsson skipstjóri sem stýrði
skipinu heim þær 11.500 sjómílur sem leggja þurfti að baki. Áætlað er að Breki verði fullbúinn til veiða upp úr miðjum júní. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
DÓMSMÁL Hvorki höfundaréttar-
samtök tónskálda í Noregi né í Sví-
þjóð hafa ákvarðað að lagið You
Raise Me Up sé ekki eftirlíking af
laginu Söknuði eftir Jóhann Helga-
son líkt og höfundur fyrrnefnda
lagsins og útgefandi hans hafa full-
yrt.
Í viðtali við Verdens Gang í apríl
var haft eftir Rolf Lövland, höf-
undi lagsins You Raise Me Up, að
álitamálið um það hvort það sé
eftirlíking af Söknuði hafi verið til
lykta leitt með niðurstöðu sænsku
höfundaréttarsamtakanna STIM á
árinu 2004.
Haft var eftir Martin Ingeström,
forstjóra Universal í Stokkhólmi,
í Fréttablaðinu 6. apríl, að málið
hefði þegar verið „skoðað af mats-
nefndum nokkurra samtaka“ með
þeirri niðurstöðu að ekki væri um
stuld að ræða. Universal er útgef-
andi Rolfs Lövland. Ingeström
segist þar eiga við STIM og norsku
höfundaréttarsamtökin TONO.
Hvorki TONO né STIM hafa hins
vegar það hlutverk að skera úr um
álitaefni af þessu tagi. „Skoðun
nefndarinnar er ekki bindandi
ákvörðun heldur einfaldlega sér-
fræðiálit til leiðbeiningar,“ segir á
heimasíðu STIM um hlutverk mats-
nefndar samtakanna.
Á heimasíðu TONO segir að sam-
tökin hafi „ekki vald til að skera úr
um ágreining tveggja aðila í málum
sem varða til dæmis lagastuld og
slíkar höfundaréttardeilur“.
Það sem Lövland og útgefandi
hans vísa til er leiðbeinandi álit
sem unnið var á ráðstefnu nor-
rænna höfundaréttarsamtaka í
Osló í júní 2004 og er merkt mats-
nefnd hinu norska TONO. Þar segir
að nefndarmenn hafi borið saman
lögin Söknuð, You Raise Me Up og
„ömmu þeirra beggja“; írska þjóð-
lagið Danny Boy.
„Það var einhuga stuðningur við
það sjónarmið að fyrir tónlist af
þessu tagi verði líkindin að vera
nákvæmari og vara mun lengur
til að réttlæta kröfu um brot á
höfunda rétti,“ segir í lokaorðum
álitsins.
Málið var aftur rætt á ráðstefnu
höfundaréttasamtakanna í Helsinki
á árinu 2005 með sömu niðurstöðu.
„Það finnst sem sagt varla ástæða
til að gruna lagastuld,“ var ályktun
fundarins í Helsinki. Þar voru tekin
fyrir fjögur meint lagastuldarmál.
Tvö þeirra vörðuðu Rolf Lövland.
Hvorugt laganna var talið vera
stolið. Nefndin klofnaði þó varð-
andi lagið Adagio eftir Lövland sem
haldið var fram að væri lagið Les
feuilles mortes – eða Autum Leaves
– eftir Joseph Kosma.
Eins og komið hefur fram telja
tveir íslenskir sérfræðingar sem
báru saman Söknuð og You Raise
Me Up fyrir STEF í apríl 2004 að
lögin séu sláandi lík. Annar þeirra,
Ríkharður Örn Pálsson, sat reyndar
síðar fundinn í Helsinki fyrir hönd
STEFs. gar@frettabladid.is
Ekki lokaákvörðun um
Söknuð í Skandinavíu
Fullyrðing norska lagahöfundarins Rolfs Lövland um að höfundaréttarsamtök
í Skandinavíu hafi endanlega skorið úr um að lag hans You Raise Me Up sé ekki
stuldur á laginu Söknuði virðist byggð á misskilningi um hlutverk samtakanna.
Jóhann Helgason og Jóhann, sonur Vilhjálms Vilhjálmssonar sem samdi texta
við Söknuð. Jóhann boðar málaferli vegna stuldar á laginu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Það finnst sem sagt
varla ástæða til að
gruna lagastuld.
Norrænu höfundaréttarsamtökin
REYKJAVÍK Öll sextán framboðin
sem skiluðu inn listum fyrir kom-
andi borgarstjórnarkosningar voru
úrskurðuð gild af yfirkjörstjórn í
gær.
Vera eins frambjóðanda á lista
Íslensku þjóðfylkingarinnar var
metin ógild þar sem hann er með
lögheimili í Svíþjóð og því ekki
kjörgengur. Var hann því tekinn af
listanum.
Tekið var á móti framboðum á
föstudag og laugardag. Ellefu skil-
uðu inn listum fyrri daginn en fimm
þann seinni. Það er því viðbúið að
kjörseðillinn verði stærri en fólk
hefur vanist hingað til.
Flokkarnir sem verða í fram-
boði eru, raðað eftir listabókstaf,
Framsóknarflokkurinn, Viðreisn,
Sjálfstæðisflokkurinn, Íslenska
þjóðfylkingin, Flokkur fólksins,
Höfuðborgarlistinn, Sósíalista-
flokkur Íslands, Kvennahreyfingin,
Miðflokkurinn, Borgin okkar, Pírat-
ar, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin
– grænt framboð, Karlalistinn og
Frelsisflokkurinn. – jóe
Sextán framboð
gild í Reykjavík
Frá fundi yfirkjörstjórnar með full-
trúum framboða til borgarstjórnar
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
11
skiluðu inn listum fyrri
daginn en fimm þann seinni.
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugsaldri
var í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
helgi dæmdur í níu mánaða fangelsi
fyrir ýmis þjófnaðarbrot.
Maðurinn var meðal annars sak-
felldur fyrir að stela veski af Borgar-
bókasafninu og heyrnartólum,
borvél og veski af veitingastað. Þá
var hann einnig dæmdur fyrir að
brjótast inn í búningsklefa íþrótta-
húss og stela þaðan greiðslukortum,
hátalara, farsíma og dómara- og
leikmannakorti.
Undanfarið ár hefur maðurinn
hlotið tvo dóma fyrir þjófnaði, fjár-
svik og fíkniefna- og umferðarlaga-
brot. Síðast í janúar hlaut hann tíu
mánaða dóm, þar af sjö skilorðs-
bundna, fyrir slík brot.
Með brotum sínum nú rauf hann
skilorð þess dóms. Refsingin nú er
óskilorðsbundin en frá henni dregst
gæsluvarðhald sem hann hefur setið
í frá 18. mars. – jóe
Níu mánuðir
fyrir þjófnaði
7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
3
-0
3
4
0
1
F
B
3
-0
2
0
4
1
F
B
3
-0
0
C
8
1
F
B
2
-F
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K