Fréttablaðið - 08.05.2018, Side 2

Fréttablaðið - 08.05.2018, Side 2
Veður Austlæg átt 3-10 m/s í dag. Rigning öðru hverju, einkum suðaustan- lands, en yfirleitt þurrt norðantil á landinu. Vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum um kvöldið. sjá síðu 22 Skin á milli skúra Trúmál Rabbíninn Avi Feldman mun ásamt eiginkonu sinni Mushky og dætrum tveim flytjast til Íslands á sunnudaginn, með það fyrir augum að setja á laggirnar fyrstu íslensku sýnagóguna. Feldman-hjónin stofnuðu hóp- fjármögnunarsíðu fyrir flutningana og söfnuðust sex milljónir króna á aðeins hálfum sólarhring. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum stendur til að Avi verði fyrsti rabbíninn með fasta búsetu á Íslandi eftir að hafa verið kjörinn til þess í byrjun febrúar síðastliðins. Reykjavík hefur lengi verið eina höfuðborgin í Evrópu án rabbína eða bænastaðar fyrir gyðinga. Hingað til hefur verið flogið með rabbína sérstaklega til landsins til að þjónusta íslenska gyðingasam- félagið, sem í eru á þriðja hundrað manns, auk þúsunda ferðamanna. Rabbíninn Avi Feldman tilheyrir hinum strangtrúaða Chabad-söfn- uði en í tölvupósti til stuðnings- manna og fylgjenda sem sendur var á sunnudagskvöld var tilkynnt að fjáröflun væri hafin fyrir flutninga fjölskyldunnar til Íslands. Takmark- ið var að safna 50 þúsund banda- ríkjadölum á sólarhring. „Ísland er afskekkt eyja. Það er margt sem þarf að flytja inn og þar er dýrt að búa. Því leitum við til ykkar til að styrkja ferðalag okkar til Íslands og ná settu markmiði,“ segir í kynningu hópfjármögnunarinnar. Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Aðeins rúmum 10 klukku- stundum síðar barst áskrifendum fréttabréfs rabbínans tölvupóstur þess efnis að takmarkinu væri náð. Ríflega 50 þúsund dalir höfðu safn- ast, eða sem nemur rúmum fimm milljónum króna. Og stóð í sem nemur sex milljónum króna þegar þessi frétt var skrifuð. Þegar mark- inu var náð var stefnan sett á að ná 90 þúsund dölum, en enn liggur ekki fyrir hvort það hafi náðst. Á hópfjármögnunarsíðunni Char- idy.com má sjá að ótal framlög bár- ust með skilaboðum og heillaóskum um gott gengi á Íslandi. Hæsta fram- lagið til söfnunarinnar hljóðaði upp á fjögur þúsund dali, rúmar 400 þúsund krónur. Fyrirkomulag söfnunarinnar var þannig að hverju framlagi var mætt með mótframlagi frá stuðningsaðilum verkefnisins. Segjast verður að aðferðin við fjármögnun flutninganna sé nýstár- leg og athyglisvert hversu skamman tíma tók að safna svo hárri fjárhæð. Avi Feldman hefur lýst því yfir að hann muni leggja sín lóð á vogarskálarnar við að berjast gegn umskurðarfrumvarpinu svokallaða sem leggur til bann við umskurði drengja nema í læknisfræðilegum tilgangi. Frumvarpið, sem var lagt fram í byrjun janúar, hefur kallað fram heitar umræður en ríflega 130 umsagnir bárust þinginu frá bæði öflugum stuðningsmönnum og andstæðingum þess víðs vegar að úr heiminum. Tímasetning tilkynningar um að rabbíninn hefði verið skipaður fyrir Ísland var því ekki tilviljun og kom í raun í mesta fárinu í þjóðfélagsum- ræðunni um það. Líkt og Fréttablað- ið greindi frá í lok síðasta mánaðar mun allsherjar- og menntamála- nefnd ekki hleypa umskurðarfrum- varpinu til þinglegrar meðferðar og vísa því til ríkisstjórnar. Frumvarpið umdeilda lifir því áfram, þó örlög þess og bannsins við umskurði séu enn óráðin. Avi rabbíni fagnaði þessum áfangasigri á dögunum, en nú er hann spenntur fyrir yfirvofandi flutningum. „Við erum auðmjúk og full þakklætis í garð allra sem opnuðu hjörtu sín og hjálpuðu okkur að láta Íslandsdrauminn verða að veru- leika,“ segja Feldman-hjónin í til- kynningu er þau sendu frá sér þegar hinu háleita 50 þúsunda dala mark- miði var náð. mikael@frettabladid.is Rabbíni hópfjármagnar flutning sinn til Íslands Sex milljónir söfnuðust á hálfum sólarhring til að fyrsti rabbíninn geti flutt með fjölskylduna til Íslands á sunnudag. Stefnt er að opnun fyrstu sýnagógunnar hér á landi. Rabbíninn hyggst beita sér gegn umskurðarfrumvarpi á Alþingi. GrÆNlAND Kenna á ensku sem fyrsta erlenda tungumálið í grunn- skólum á Grænlandi. Þetta er mark- mið nýrrar stjórnar Grænlands, að því er kemur fram í stjórnarsáttmála hennar. Nú er kennsla í grænlensku, dönsku og ensku í skólunum. Leggja á meiri áherslu á kennslu í ensku í framtíðinni þar sem Grænland er að verða hluti af alþjóðasamfélaginu. Markmið flokkanna fjögurra sem myndað hafa stjórn er samtímis að árangur nemenda batni í öllum þremur tungumálunum. – ibs Enskan númer eitt á Grænlandi Hjónin Avi og Mushky Feldman með dætrum sínum, Chana og Batshev. Mynd/JewisHiCelAnd.CoM Það er margt sem þarf að flytja inn og þar er dýrt að búa. Því leitum við til ykkar til að styrkja ferðalag okkar til Íslands og ná settu mark- miði. Avi og Mushky Feldman Umskipti eru orðin í veðri eftir sérkennilega viku með éljagangi og sólarglennum á víxl. Fram undan er hlýrra veður á suðvesturhorninu, jafnvel með sólskini og yfir tíu stiga hita í Reykjavík á laugardag ef marka má spár Veðurstofu Íslands. Rigningarskúrir verða hins vegar ekki langt undan næstu daga. Samspil ljóss og veðurs skapar oft fallegar myndir eins og þegar þessi flugvél kom inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. FréttABlAðið/eyþór Börn í Kulusuk á Grænlandi. FréttABlAðið/PJetUr kjArAmál „Það er fáránlegt að það hvarfli ekki að forstjóranum að hún taki á sig launalækkun sjálf,“ segir starfsmaður Hörpu. Þar sögðu 20 þjónustufulltrúar upp í gær eftir fund með forstjóranum að því er segir í yfirlýsingu þeirra. Liðlega helmingur af um 30 þjón- ustufulltrúum í Hörpu mætti á fund í Háuloftum með Svanhildi Konráðs- dóttur forstjóra síðdegis í gær. Til- efnið var fréttir Fréttablaðsins af 20 prósenta launahækkun Svanhildar í fyrra á sama tíma og þjónustufull- trúarnir létu undan kröfum og tóku á sig um 16 prósenta launalækkun. „Við vorum ekki sátt en hún sagðist oft vera að snúa við hverjum einasta steini til að bæta rekstur Hörpu. En svo var hún þá búin að fá launahækkun. Það er fáránlegt að kíkja ekki á stærsta steininn,“ segir starfsmaðurinn sem ekki vill láta nafns síns getið. Þjónustufulltrúinn útskýrir að fyrir um tveimur árum hafi hópur- inn á gólfinu fengið launahækkun samhliða útvíkkun á starfsskyldum. Að sögn hans var fundurinn með forstjóranum í gær mikil vonbrigði. Komið hefði fram hjá Svanhildi að hún sjálf ætlaði ekki að taka á sig launalækkun. Þjónustufulltrúarnir fengju ekki aftur sömu laun og þeir voru á fyrir lækkun, eins og þeir báðu um. „Flestir þjónustufulltrúanna sem mættu á fundinn sögðu upp snögglega eftir að fundurinn var búinn. Það eru flestir því annað- hvort búnir að segja upp eða ætla að gera það,“ segir hann. Ekki náðist í Svanhildi Konráðs- dóttur í gærkvöldi. – gar Allt í háaloft í Háuloftum svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu. 8 . m A í 2 0 1 8 Þ r I ð j u D A G u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T A B l A ð I ð 0 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 4 -D 0 E 8 1 F B 4 -C F A C 1 F B 4 -C E 7 0 1 F B 4 -C D 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.