Fréttablaðið - 08.05.2018, Page 4
Makita rafhlöðugarðverkfærin eru ýmist fyrir eina eða tvær 18 v rafhlöður
– sömu rafhlöður og eru í öðrum Makita 18 v rafhlöðuverk færum –
Hraðhleðslutæki, sem tekur 2 rafhlöður í einu, er fáanlegt.
Makita rafhlöðuverkfærin er þekkt fyrir gæði og endingu.
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum.
l Sláttuvélar l Hekkklippur l Keðjusagir l Sláttuorf
l Grasklippur l Greinaklippur l Blásarar l Laufsugur
RAFHLÖÐUGARÐVERKFÆRI
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnesi 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
DýrahalD Matvælastofnun telur að
án ráðningar erlendra dýralækna geti
stofnunin ekki sinnt skyldum sínum.
Án opinbers dýralæknis geti slátur-
hús ekki starfað.
Umboðsmaður Alþingis segir í nýju
áliti að ráðning Matvælastofnunar á
erlendum dýralæknum til starfa í
opinberri þjónustu fullnægi ekki
skilyrði laga um að þeir hafi vald á
íslenskri tungu.
Matvælastofnunin segir að hlutfall
erlendra dýralækna sem þar starfi
hafi aukist undanfarin ár þar sem ekki
hefur tekist að ráða íslenskumælandi
dýralækna í tiltekin störf. Ítrekað hafi
tilteknar stöður dýralækna verið aug-
lýstar lausar án þess að dýralæknar
með vald á íslenskri tungu hafi sótt
um. Við slíkar aðstæður hafi erlendir
dýralæknar verið ráðnir.
„Hjá Matvælastofnun starfa í dag
um 35 dýralæknar í fullu starfi. Um
þriðjungur þeirra er erlendur og
stærstur hluti þeirra með takmarkað
vald á íslenskri tungu. Stofnunin
ræður auk þess dýralækna frá EES-
ríkjum í tímabundnar ráðningar yfir
sláturtíðina,“ segir í tilkynningu frá
Matvælastofnun.
Á annan tug erlendra dýralækna
hafi verið ráðnir til slíkra starfa í haust.
„Ljóst er að án dýralækna mun
Matvælastofnun ekki geta sinnt lög-
bundnum skyldum sínum. Í slátur-
húsum er krafa um viðveru opinbers
dýralæknis við alla slátrun, í þeim
tilgangi að fylgja eftir kröfum um vel-
ferð dýra og öryggi afurða. Án viðveru
opinbers dýralæknis geta sláturhús
þar með ekki starfað,“ segir í tilkynn-
ingunni. – jhh
Segja erlenda dýralækna nauðsynlega
Án viðveru dýralæknis er ekki hægt að slátra dýrum. Fréttablaðið/GVa
Kjaramál Nærri 70 prósent þeirra
sem greiddu atkvæði um nýjan
kjarasamning Félags framhalds-
skólakennara og Félags stjórnenda í
framhaldsskólum samþykktu nýjan
kjarasamning. Tæplega 30 prósent
greiddu atkvæði á móti.
Á vef Kennarasambands Íslands
segir að launaliður samningsins sé
til samræmis við launalið þeirra
kjarasamninga sem stéttarfélög
opinberra starfsmanna hafa skrifað
undir síðustu mánuði. Samnings-
tíminn er út mars 2019. Af 1.498 á
kjörskrá greiddu 1.043 atkvæði.
Eins og fram hefur komið felldu
grunnskólakennarar sinn samning.
Samningafundur þeirra við samn-
inganefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga verður á föstudag. – jhh
Kennarar með
nýjan samning
Kosningar Níu framboðslistar
skiluðu gildu framboði til sveitar-
stjórnarkosninga í Kópavogi, að því er
kemur fram í tilkynningu frá bæjar-
skrifstofunni.
Framboðin eru B-listi Framsóknar-
flokks, C-listi BF Viðreisnar, D-listi
Sjálfstæðisflokks, J-listi Sósíalista-
flokks Íslands, K-listi Fyrir Kópavog,
M-listi Miðflokks, P-listi Pírata, S-listi
Samfylkingar og V-listi Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.
Flokkar sem eiga fulltrúa í bæjar-
stjórn í dag eru Sjálfstæðisflokkur,
Samfylking, Björt framtíð, Fram-
sóknarflokkur og Vinstri græn. – gar
Níu framboð
gild í Kópavogi
Í Kópavogi. Fréttablaðið/Vilhelm
heimilisofbelDi Magnús Guðmunds-
son, formaður knattspyrnudeildar ÍA,
segir félagið þegar á árinu 2014 hafa
horfst í augu við fortíðina og reynt
sem allra best að draga lærdóm af því
sem betur mátti fara í ofbeldismáli
leikmanns félagsins, Marks Doninger,
gegn kærustu hans Guðrúnu Dögg
Rúnarsdóttur árið 2011.
Til að læra af erfiðri reynslu var
í framhaldinu sett af stað vinna á
vegum félagsins við að útbúa við-
bragðsáætlun. Niðurstaðan var að
setja á fót sérstakt fagráð sem hefur
það meginhlutverk að vera álitsgjafi
vegna alvarlegra agavandamála.
Guðrún Dögg sagði í viðtali við
helgarblað Fréttablaðsins sögu sína
um ítrekað ofbeldi sem hún varð
fyrir af hendi þáverandi kærasta síns
á meðan hann starfaði sem knatt-
spyrnumaður hjá ÍA. Félagið breytti
að hennar mati ekki rétt í málinu.
„Við hjá ÍA fullyrðum að við
munum vinna hlutina allt öðru-
vísi komi viðlíka mál upp hjá okkur
í framtíðinni en auk þess hefur
umræðan í samfélaginu haft þau áhrif
að við eru almennt betur undirbúin
að taka á erfiðum málum. Það skiptir
miklu máli að taka svona mál alvar-
lega og að hvers konar ofbeldi, áreitni
eða óæskileg hegðun verður alls ekki
liðin hjá félaginu,“ segir Magnús.
Fram undan er vinna við að fræða
starfsmenn og leikmenn. „Við höfum
á síðustu mánuðum farið yfir okkar
mál með Knattspyrnusambandi
Íslands, Íþróttasambandi Íslands
sem og Akraneskaupstað og á næstu
vikum munum við fræða alla okkar
starfsmenn og þjálfara um ofbeldi
sem þetta í samvinnu við Bjarkarhlíð,
miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, sem
sérhæfir sig í að veita stuðning og ráð-
gjöf ásamt fræðslu og umfjöllun um
eðli og afleiðingar ofbeldis,“ bætir
Magnús við.
Mark Doninger lék alls þrjátíu leiki
fyrir ÍA árin 2011 og 2012.
„Knattspyrnufélagið harmar fram-
angreint mál og lítur það mjög alvar-
legum augum en það reyndist öllum
sem að því komu mjög viðkvæmt og
erfitt og ég vil fyrir hönd félagsins
enn og aftur biðja Guðrúnu Dögg og
fjölskyldu hennar afsökunar. Stefna
okkar gegn einelti, kynferðislegri
áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýði-
lega háttsemi er skýr og við munum
fylgja henni í framtíðinni,“ undir-
strikar Magnús. sveinn@frettabladid.is
ÍA biður Guðrúnu afsökunar
Guðrún Dögg lýsti í Fréttablaðinu vinnubrögðum Ía-manna eftir að hún varð
fyrir ofbeldi af hálfu eins liðsmanna félagsins. Fréttablaðið/SiGtryGGur ari
Úr Hæstaréttardómi
yfir Mark Doninger
„Fyrir líkams-
árás á […],
aðfaranótt
sunnu-
dagsins 22.
maí 2011, á
skemmtistaðn-
um [...] með því
að hafa kýlt [...] einu hnefahöggi
með krepptum hnefa í andlitið
á vinstri kjálkann þannig að hún
féll niður á „poolborð“ sem hún
sat á, og fyrir að hafa gert atlögu
að henni fyrir utan skemmti-
staðinn stuttu síðar, með því
að henda henni í götuna, rífa í
hár hennar og ýta henni ítrekað
niður er hún reyndi að reisa sig
við, með þeim afleiðingum að
hún hlaut mar og bólgu á kjálka-
beini vinstra megin, mar og yfir-
borðsáverka á hné og fótlegg og
tognun á ökkla.“
[...]
„Fyrir líkamsárás á [...], aðfara-
nótt sunnudagsins 30. október
2011, á heimili ákærða [...] með
því að hafa ráðist á […], dregið
hana á hárinu inn í svefnher-
bergi þar sem hann henti henni
upp í rúm, settist ofan á hana
og sló hana utan undir, tók um
munn hennar og nef með þeim
afleiðingum að hún átti erfitt
með andadrátt og að því loknu
skallað hana í andlitið þannig að
enni hans lenti á munni hennar
allt með þeim afleiðingum að
hún hlaut yfirborðsáverka í
andliti og á hálsi og að báðar
varir hennar sprungu þannig að
úr blæddi.“
Formaður knattspyrnu-
deildar ÍA segir félag-
ið hafa brugðist í máli
Guðrúnar Daggar
Rúnarsdóttur og Marks
Doninger. Hann biður
Guðrúnu Dögg afsökun-
ar og segir félagið verða
að læra af þeim mis-
tökum. Allir starfsmenn
fá fræðslu um ofbeldi og
verkferla ÍA.
Ég vil fyrir hönd
félagsins enn og
aftur biðja Guðrúnu Dögg og
fjölskyldu hennar
afsökunar.
Magnús
Guðmundsson,
Formaður knatt-
spyrnudeildar ÍA
8 . m a í 2 0 1 8 Þ r i Ð j U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
0
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
4
-E
4
A
8
1
F
B
4
-E
3
6
C
1
F
B
4
-E
2
3
0
1
F
B
4
-E
0
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K