Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
samningshækkunina sem var í maí. Það er
eitthvert launaskrið í gangi,“ segir hann.
Viðar segir að svo mikil hækkun á þrem-
ur mánuðum bendi til þónokkurra launa-
breytinga. ,,Ef við heimfærum þessa hækk-
un seinustu þrjá mánuði yfir á heilt ár þá
jafngildir þetta 5% árstakti, sem er mikið
launaskrið sögulega séð,“ segir Viðar en
hefur þó þann fyrirvara á að óvissa fylgi oft
því þegar hækkanir yfir stutt tímabil eru
umreiknaðar yfir á heilt ár. ,,En það eru al-
veg augljósar vísbendingar núna um að það
er launaskrið í gangi,“ segir hann.
Mikil þörf fyrir vinnuafl
Allt fram til síðasta vors bar lítið sem
ekkert á launaskriði í landinu þrátt fyrir
uppgang og merki um þenslu í hagkerfinu.
Atvinnurekendur virtust geta mætt vaxandi
þörf fyrir vinnuafl með því að flytja inn
starfsfólk.
Aðspurður segir Viðar að það að eitthvert
launaskrið sé í gangi komi ekkert sér-
staklega á óvart þegar uppsveifla eigi sér
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Merki eru um að eitthvert launaskrið sé
komið í gang á vinnumarkaði um þessar
mundir en launavísitalan í ágúst hækkaði
um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf
mánuði hefur launavísitalan hækkað um
7,2% samkvæmt tölum sem Hagstofan birti
í gær.
Seinustu kjarasamningsbundnu launa-
hækkanirnar á vinnumarkaði voru í maí
þegar almenn laun hækkuðu um 4,5%. Þess
sá stað í launavísitölunni, sem hækkaði þá
um 3,2% á milli mánaða en vísitalan hefur
svo haldið áfram að stíga aðeins upp á við í
sumar.
Viðar Ingason, hagfræðingur hjá VR,
bendir á að frá því í lok maí og til ágústloka
hefur launavísitalan hækkað um 1,2%. „Það
sýnir áframhaldandi hækkun eftir kjara-
stað í efnahagslífinu. Í sumarkönnun sem
Gallup gerði fyrir Seðlabankann og Samtök
atvinnulífsins eru stjórnendur 400 stærstu
fyrirtækja landsins spurðir um þörf á
vinnuafli og kvörtuðu margir yfir að erfitt
væri að fá starfsfólk í seinustu könnun. 42%
þeirra töldu sig búa við skort á starfsfólki í
könnuninni í sumar. Viðar segir að við svo-
leiðis aðstæður þegar mikil eftirspurn er
eftir vinnuafli reyni starfsmenn að ýta sín-
um launum aðeins hærra upp eins og eðli-
legt sé vegna þess að þeir vita að vinnuveit-
andinn vill ekki missa þá þegar hann á í
erfiðleikum með að fá nýtt starfsfólk.
Kaupmáttur launa hefur á umliðnum
mánuðum verið sá mesti sem mælst hefur.
Hann stóð nánast í stað á milli júlí og ágúst
skv. tölum Hagstofunnar í gær. ,,Síðustu
tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa
hækkað um 5,3%,“ segir í umfjöllun Hag-
stofunnar.
Vísbendingar um nokkurt launaskrið
Launavísitalan hækkaði um 1,2% sl. 3 mánuði þó laun hafi ekki hækkað skv. samningum í sumar
Morgunblaðið/Ómar
Stórframkvæmdir Mikill uppgangur og
spenna var á vinnumarkaði í sumar og atvinnu-
rekendur hafa þurft að flytja inn starfsfólk.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður
Framsóknarflokksins í Norðvestur-
kjördæmi, segir marga framsóknar-
menn „æfa“ yfir því baktjaldamakki
sem nú standi yfir í Skagafirði. Það
geti „stórskaðað“ flokkinn svo
skömmu fyrir þingkosningar.
Gunnar Bragi segir markvisst
unnið að því að koma honum úr efsta
sæti flokksins í kjördæminu. Flokk-
urinn fékk tæplega 21% atkvæða og
tvo menn kjörna í kjördæminu í
þingkosningunum í fyrrahaust. Það
er að sögn Gunnars Braga með betri
árangri flokksins í kjördæminu.
Fátt varð um svör
Gunnar Bragi leiddi listann 2016,
líkt og í þingkosningunum 2013.
„Það er fyrir nokkrum dögum sem
ég verð þess áskynja að það sé verið
að útbúa lista og reyna að fá fólk til
að mæta á kjördæmisþing til að
kjósa gegn mér. Það sem ég geri vit-
anlega er að hringja í einn þessara
aðila og spyrja hvort þetta sé málið.
Það verður frekar fátt um svör en
svo er það viðurkennt. En ég geri
aldrei neinar athugasemdir við að
það sé boðið fram gegn mér. Það á
enginn neitt í þessu. Það sem ég geri
athugasemdir við er undirferlið og
að menn skuli sífellt vera að búa til
einhver átök, án þess að geta horft
framan í menn,“ segir Gunnar Bragi.
Aðrar leiðir brot á lögum
Kjördæmisþingið fer fram í
Reykjaskóla í Hrútafirði í dag.
Spurður hvort raðað verði á lista, í
ljósi þess hversu stutt er til kosn-
inga, segir Gunnar Bragi að sam-
kvæmt lögum flokksins virðist sá
kostur einn í boði. „Aðrar leiðir eru
klárlega brot á lögum flokksins.
Samt virðast menn ætla að reyna að
koma því þannig fyrir og réttlæta
það að vegna stutts tímafrests verði
að fara aðrar leiðir í uppstillingu á
lista. Það er að segja að fara í tvöfalt
kjördæmisþing. Ég hræðist ekki
aðrar aðferðir af sjálfsögðu. Það sem
er í gangi er að það er verið að velja
og smala réttu fólki og útiloka þá
aðra sem eru ekki þóknanlegir til að
fara á þetta kjördæmisþing,“ segir
Gunnar Bragi. Hann segir aðspurð-
ur að bakland hans taki þessu illa.
„Menn eru algjörlega æfir yfir því
að það sé þetta baktjaldamakk og að
menn séu að fara í þessi átök rétt
fyrir kosningar. Það er kosið eftir
fimm vikur og flokkurinn virðist ætla
að fara í innanflokksátök aftur. Og
koma stórskaddaður inn í kosninga-
baráttuna, í stað þess að einbeita sér
að því sem meira máli skiptir sem er
að ná góðum árangri í kosningun-
um,“ segir Gunnar Bragi.
Spurður um hvað sé deilt í Skaga-
firðinum segir Gunnar Bragi ekki
tekist á um málefni. „Þetta virðist
fyrst og fremst
snúast um að ég
er mjög sjálf-
stæður maður og
tek ekki við skip-
unum frá neinum.
Ég held að það sé
aðalmálið.“
Röng kenning
Hann segir að-
spurður það
rangt sem haldið hafi verið fram að
aðförin gegn honum sé tilkomin
vegna þess að hann sé flokkaður í liði
með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,
fv. formanni flokksins. Segir Gunnar
Bragi alvitað að traustustu banda-
menn hans í Skagafirði hafi verið
traustustu bandamenn Sigurðar
Inga Jóhannssonar, núverandi for-
manns flokksins.
Þórunn Egilsdóttir, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
sækist eftir því að leiða listann í
Norðausturkjördæmi. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi
formaður flokksins, leiddi listann í
kjördæminu í síðustu kosningum.
Þórunn segist aðspurð hafa sterkt
bakland. Það komi í ljós á kjördæma-
þingi Framsóknarflokksins á
Breiðumýri, skammt hjá Laugum, á
morgun hvaða aðferð verður valin til
að stilla upp lista í kjördæminu.
Fengið mikla hvatningu
„Ég hef fengið mikla hvatningu og
mikinn stuðning. Ég ákvað að verða
við því. Ég hef verið í framvarðasveit
flokksins, sem þingflokksformaður
og einn af varaforsetum þingsins. Ég
er tilbúin að axla meiri ábyrgð,“ seg-
ir Þórunn.
Spurð um áherslur segir Þórunn
mörg tækifæri í þessu kjördæmi og
að margt þurfi að laga. „Kjördæmið
er með mikla sauðfjárrækt og það
eru mörg veik svæði sem þarf að
verja sem fráfarandi ríkisstjórn hef-
ur ógnað með sínum fyrirhuguðu að-
gerðum,“ segir Þórunn.
Ekki náðist í Sigmund Davíð.
Á fundi landsstjórnar Framsókn-
ar sl. þriðjudag var samþykkt að
beina því til kjördæmastjórna að
hvert kjördæmisþing hefði það á
valdi sínu að ákveða framboðsleiðir.
Undiralda í Framsóknarflokknum
Gunnar Bragi segir að vegna baktjaldamakks kunni flokkurinn að fara „stórskaddaður“ í kosningar
Þórunn Egilsdóttir vill leiða listann í Norðausturkjördæmi Sigmundur Davíð hefur leitt listann
Gunnar Bragi
Sveinsson
Þórunn
Egilsdóttir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Sigtryggur Sigryggsson
sisi@mbl.is
Sveppur hefur verið áberandi í
borginni að undanförnu, til dæmis á
grænum svæðum og umferð-
areyjum. Hann heitir ullserkur eða
ullblekill, en hefur einnig verið
nefndur bleksveppur.
Þórólfur Jónsson, deildarstjóri
Náttúru og garða hjá Reykjavík-
urborg segir að sveppurinn sé mjög
vel ætur. Hann þyki raunar fínn
þegar hann er ungur, hvítur, en
verði síðan óætur þegar hann eld-
ist, verði eins og „blek“. Þórólfur
kveðst hafa það á tilfinningunni að
ullserkurinn sé að verða algengari í
borginni en áður en hann hafi eng-
ar staðfestar upplýsingar um það.
Þórólfur varar fólk við að tína
sveppinn of nálægt umferðargötum
þar sem hann gæti innihaldið
mengandi efni.
Á vefnum floraislands.is segir að
sveppurinn sé eflaust gamall slæð-
ingur á Íslandi og vaxi nær ein-
göngu í grennd við hýbýli eða með-
fram vegum. Hann sé oft á gömlum
sorphaugum, inni í húsagörðum en
langoftast vaxi hann í vegbrúnum
víða um land.
„Þegar sveppurinn fyrst kemur
upp á sumrin, er hann hvítur, í lög-
un eins og votheysturn. Hann er
flösugur utan, og þegar hann
þroskast dökknar hann að ofan,
einkum flösurnar sem verða brún-
leitar. Hattbarðið víkkar að neðan,
og svartar fanirnar verða sýni-
legar. Hattbarðið brettist síðan
upp, verður svart og kvoðukennt,
líkist þá tjöru. Gróin berast með
þessum þykka vökva, líklega oft
með bílhjólum meðfram vegunum,“
segir á floraislands.is
Þar segir ennfremur að vegna
vaxtarstöðu sveppsins, sem oft sé í
útblásturslofti bifreiða, forðist
margir að snerta hann.
Ljósmynd/Jón Ármann Steinsson
Ullserkur Sveppurinn hefur verið áberandi á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu eins og flest undanfarin haust.
Ullserkur setur
svip á borgina
Vel ætur en varað er við því að tína
sveppi nálægt umferðargötum