Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 42

Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017 PABLO PICASSO - Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962) Langtímasýning COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018 - Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism ORKA 14.9. - 7.1.2018 Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu Dr. Selma Jónsdóttir – Aldarminning 22.8. - 22.10 2017 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 15.10.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.12.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Laugardagur 23. september kl. 14: Sýningaropnun í Myndasal Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Guðmundur Ingólfsson – Á eigin vegum í Myndasal og á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudagur 24. september kl. 14: Leiðsögn með sérfræðingi Landsbókasafns - Háskólasafns Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þetta eru allt verk sem ég hef gert að eigin frumkvæði,“ segir Guð- mundur Ingólfsson ljósmyndari þegar hann er spurður út í heiti yf- irlitssýningarinnar á verkum hans, Á eigin vegum, en hún verður opnuð í Myndasal Þjóðminjasafnsins í dag, laugardag, klukkan 14. Og verkin spanna langan tíma, hálfa öld – þau elstu frá árinu 1967 en yngstu ljós- myndirnar teknar í vor. „Alla starfsævina hef ég myndað allrahanda verkefni fyrir viðskipta- vini en nær ekkert af því er á þessari sýningu,“ segir Guðmundur og bæt- ir við að líklega hafi fáir séð flestar myndanna á sýningunni og nú er kominn tími til að bæta úr því. „Það getur vel verið,“ svarar Guð- mundur síðan þegar ég segi, þar sem við göngum milli verkanna, að þessi framkvæmd hafi verið löngu tímabær. „Það hefur haldið mér gangandi í þessu starfi að ég hef haft nennu og frumkvæði til að gera eitthvað fyrir sjálfan mig.“ Guðmundur er svo sannarlega einn af merkustu og mikilvægustu ljósmyndurum okkar á undangeng- inni hálfri öld. Skapandi listamaður með afgerandi og persónuleg stílein- kenni. Öguð og formhrein heim- ildaskráning hans er til að mynda ólík því sem aðrir hafa tekist á við hér, hvort sem hann hefur verið að mynda gamlar byggingar í miðborg Reykjavíkur, sjoppur í borgarlands- laginu eða ummerki um mannvist í jarðri borgarinnar. Úrval úr þeim verkefnum eru á sýningunni en líka margskonar aðrar myndraðir, til að mynda frá slóðum Vestur-Íslend- inga, mannlífsmyndir, portrettraðir og svarthvítt og dramatískt lands- lag. Þá tekur á móti gestum á Veggnum, framan við Myndasalinn, flæði fjölskyldumynda sem Guð- mundur hefur tekið af fólkinu sínu með markvissum hætti. Samhliða sýningunni kemur út fallega hönnuð og vönduð sýningarskrá, með úrvali verkanna og skrifum fræðimanna. Sýningarstjóri Á eigin vegum er virtur og þekktur þýskur ljósmynd- ari og prófessor, Timm Rautert. Hann hefur að vissu leyti verið vitni að allri þessari sögu Guðmundar, því þeir kynntust í námi hjá hinum kunna þýska ljósmyndara og kenni- smið Otto Steinert, í Folkwang Schule für Gestaltung í Essen í Þýskalandi, undir lok sjöunda ára- tugarins, og hafa verið vinir síðan. Guðmundur, sem varð sjötugur í fyrra, var þar við nám á árunum 1968 til 1971 og þróaði þar myndsýn sem byggist á hugmyndum sem þá spruttu fram um svokallaða nýja hlutlægni í skapandi ljósmyndun. Eftir að hafa flutt aftur heim til Ís- lands stofnaði Guðmundur ljós- myndastofuna Ímynd og hefur allar götur síðan verið meðal brautryðj- enda hér í iðnaðar- og auglýsinga- ljósmyndun, samhliða því að vinna að persónulegu verkefnum eins og sjá má á sýningunni. Lúxus að fá Timm til verksins Í mars síðastliðnum kom Rautert til landsins og eyddi góðum tíma í vinnustofu Guðmundar við að fara yfir öll hans helstu persónulegu verkefni frá undanförnum fimmtíu árum. Þá voru verkin á sýninguna valin og sýningarskráin mótuð. „Það var lúxus að geta fengið Timm til verksins, hann tók það að sér af hreinni elskusemi,“ segir Guð- mundur. Ljósmyndunin er  Yfirlitssýning á verkum Guð- mundar Ingólfs- sonar opnuð í Þjóðminjasafninu Morgunblaðið/Einar Falur Sýningarstjórinn „Frammi fyrir veruleikanum er hann alltaf auðmjúkur og hann trúir því sem hann sér,“ segir Timm Rautert um verk Guðmundar. Ljósmyndarinn „Þetta eru engir þekktir staðir, það er nóg ljósmyndað af þeim,“ segir Guðmundur Ingólfs- son um landslagsmynda- raðirnar á sýningunni. Stuttmyndin Frelsun eftir leikstjór- ann Þóru Hilmarsdóttur verður frumsýnd nú um helgina á heim- ildar- og stuttmyndahátíðinni Nor- disk Panorama í Malmö í Svíþjóð og keppir þar í flokki norrænna stutt- mynda en ein þeirra verður valin sú besta undir lok hátíðarinnar. Unnur Ösp Stefánsdóttir fer í myndinni með hlutverk meðlims sértrúarsafn- aðar sem fær blóðgjöf gegn vilja sínum og verður í kjölfarið gagn- tekin af blóðgjafanum, sem Hall- dóra Geirharðsdóttir leikur. Þóra segir í tilkynningu að stutt- myndinni megi lýsa sem grafalvar- legum sálfræðitrylli en handritið sé skrifað af uppistandaranum Snjó- laugu Lúðvíksdóttur. Í myndinni sé varpað fram spurningum um trú og hlýðni. „Okkur langaði að fjalla um sér- trúarsöfnuði og hversu langt fólk er tilbúið að ganga í nafni trú- arinnar. Sumir trúa því að lífið og sálin búi í blóðinu og eru tilbúnir að fórna lífi sínu vegna texta í trúarritum sem skrifuð voru fyrir þúsundum ára. Við vorum svo heppin að fá frábæra leikara til liðs við okkur en þeim þótti efnið áhugavert og voru fljótir að samþykkja að vera með. Unnur Ösp stóð sig sérstaklega vel, hún kemur fyrir í flestum atriðum myndarinnar en þegar tökur fóru fram var hún hálfnuð á meðgöngu með tvíbura – en það sást nánast ekki neitt á henni og náðist að fela það vel,“ segir Þóra. Frelsun er önnur stuttmynd Þóru og hefur hún verið valin til sýninga á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í næstu viku og einnig á kvikmyndahátíðir í Helsinki og Leeds. Framundan er kvikmynd í fullri lengd, Kuldi, sem Þóra og Snjólaug eru að þróa með framleiðandanum Evu Sigurðar- dóttur hjá Askja Films. Myndin mun falla í flokk vísindaskáldskap- arkvikmynda. Frelsun á Nordisk Panorama  Stuttmynd Þóru Hilmarsdóttur í keppni hátíðarinnar um bestu stuttmynd Norðurlanda  Afdrifarík blóðgjöf Þóra Hilmarsdóttir Síðustu tónleikar Cycle-hátíð- arinnar í Gerðarsafni þetta árið fara fram í kvöld kl. 20. Yfirskrift þeirra er Orviilot, en um er að ræða afrakstur vinnustofu sem haldin var fyrir íslenska og erlenda listamenn í Hong Kong á sl. ári í samstarfi við Cycle. Á tónleikunum verða frum- flutt þrjú verk eftir kínversk og ís- lensk tónskáld og myndlistarmenn, m.a. Lam Lai, Sigurð Guðjónson, Áka Ásgeirsson, Kingsley Ng og Angus Lee. Flytjendur eru Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari og Hong Kong New Music Ensemble. Á morgun, sunnudag, milli kl. 15 og 17 verður boðið til samræðna undir yfirskriftinni „Hetjur hruns- ins“. Að sögn skipuleggjenda er Hetjur hrunsins langtíma þverfag- legt listaverkefni sem fjallar um „sálfræðileg og félagsleg áhrif hrunsins á Íslandi árið 2008. Frá- sögnin um hrunið varð ekki ein- göngu frásögn um efnahagslegt hrun smáríkis heldur er hún sam- tímis frásögn og goðsögn. Rosie Heinrich hefur eytt tveimur árum í rannsókn á málefninu og tekið við- töl við fjölda Íslendinga“. Vídeó- hluti verks Heinrich verður frum- sýndur á Cycle og samhliða því verður rætt við nokkra viðmæl- endur hennar úr myndinni. Sara S. Öldudóttir félagsvísindakona stýrir umræðum. Tónlist Hong Kong New Music Ensemble kemur fram í Gerðarsafni. Orviilot og hetjur hrunsins á Cycle

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.