Morgunblaðið - 23.09.2017, Síða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
✝ SteingerðurIngadóttir
fæddist á Ísafirði
10. ágúst 1939. Hún
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísa-
firði 13. september
2017.
Foreldrar Stein-
gerðar voru Ingi
Guðjón Eyjólfsson,
f. 8.8. 1904 á Hrófá í
Kaldrananeshreppi,
d. 8.1. 1962, og kona hans María
Sveinfríður Sveinbjörnsdóttir, f.
16.10. 1905 á Laugum í Súg-
andafirði, d. 23.2. 1986. Systkini
Steingerðar eru: Erla, f. 19.2.
1929, gift Húnboga Þorsteins-
syni, d. 2017, Haukur, f. 15.12.
1930, d. 2003, kvæntur Sigríði M.
Aðalsteinsdóttur, d. 1996, Þor-
björg, f. 18.2. 1935, d. 2009, gift
Guðmundi Ingibjartssyni, d.
1983, Guðbjörn, f. 17.8. 1937, d.
2009, kvæntur Elínborgu
Sigurðardóttur, Elvar, f. 23.1.
1941, kvæntur Rögnu S. Hall-
dórsdóttur, Reynir, f. 16.11.
1943, d. 1999, kvæntur Ölmu K.
Rósmundsdóttur, Ester, f. 19.8.
1945, gift Halldóri Ásgeirssyni,
og Ernir, f. 14.6. 1947, kvæntur
Rannveigu S. Pálsdóttur.
12.11. 1992, og Bárður Bjarki, f.
22.7. 1996. Dóttir Bryndísar og
Vals er Steingerður Aldís, f. 17.2.
2007. 5) Kristján Freyr, f. 23.6.
1975, hann er kvæntur Bryndísi
Stefánsdóttur, f. 4.12. 1975, og
eiga þau Stefán Bjart, f. 28.8.
2002, og Fríðu Katrínu, f. 31.5.
2007.
Steingerður bjó sín fyrstu ár á
Ísafirði og sinnti þar ýmsum
störfum á yngri árum, m.a. við
rækjuvinnslu, afgreiðslu og síðar
á sjúkrahúsinu. Þar líkaði henni
vistin vel en þar unnu m.a. Erla
systir hennar og æskuvinkonan
Helga. Þvert á yfirlýsingar um
að kynnast aldrei sjómanni né
rauðhærðum manni fékk hún
hvort tveggja í Halldóri Kristni
frá Hnífsdal. Þau hófu sambúð á
Ísafirði en fluttu skömmu síðar í
Hnífsdal þar sem þau byggðu hús
við Heiðarbraut. Þar ólu þau upp
börnin sín fimm en fluttu svo til
Ísafjarðar 1990. Steingerður
vann lengst við rækjuvinnslu en
einnig félagsstörf aldraðra og
fleira. Hún var iðin við ýmis fé-
lagsstörf, var t.a.m. virk í Kven-
félaginu Hvöt og Kiwanis. Stein-
gerður veiktist alvarlega í byrjun
sumars þegar hún greindist með
illvígt krabbamein. Hún lá í
fyrstu á Landspítalanum en síðar
á sjúkrahúsinu á Ísafirði þar sem
hún lést eftir hetjulega baráttu.
Steingerður verður jarð-
sungin frá Ísafjarðarkirkju í dag,
23. september 2017, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Steingerður gift-
ist Halldóri Kristni
Helgasyni, f. 1.12.
1938, d. 12.8. 2013,
árið 1965 og eiga
þau fimm uppkomin
börn. Þau eru: 1)
María Sveinfríður,
f. 16.8. 1959, maki
hennar Sigurður
Valgeir Jósefsson, f.
20.4. 1960, og eiga
þau Heiðdísi Höllu,
f. 28.4. 1985, dóttir hennar og
Hróbjarts Róbertssonar er Katr-
ín María Hróbjartsdóttir, f. 2.2.
2011, og Jósef Fannar, f. 31.10.
1989. 2) Birkir Guðjón, f. 18.9.
1961, maki hans er Pia Majbrit
Hansen, f. 27.3. 1961, og eiga þau
Sissel Björk, f. 17.10. 1990, Maj
Berglindi, f. 10.11. 1992, og
Kjartan Thor, f. 5.8. 1994. 3) Kar-
itas Ása, f. 9.11. 1964, hún er gift
Smára Garðarssyni, f. 27.10.
1963, og eiga þau Helenu Dögg,
f. 29.4. 1989, sonur Helenu og
Jaroslaws Krawczyks er Garðar
Smári Krzysztof Krawczyk, f.
24.9. 2010, og Aron Inga, f. 17.5.
1993. 4) Bryndís, f. 13.1. 1969,
maki hennar er Valur Jóhann-
esson, f. 12.5. 1967, synir Bryn-
dísar eru Halldór Kristinn, f.
Elsku besta mamma mín. Ég
man stundirnar okkar saman. Ég
man baksturinn og bakkelsið. Ég
man textana og sönginn. Ég man
gleðina og hláturinn. Ég man
þegar ég fékk að strauja hárborð-
ana mína. Ég man smurða brauð-
ið og nestið. Ég man ferðalögin og
útilegurnar. Ég man berjamó og
berjahreinsun á svölunum. Ég
man þegar þú kallaðir á okkur að
koma inn að borða. Ég man barða
harðfiskinn og hákarlinn (kon-
fektið hennar mömmu). Ég man
undirbúning hátíða. Ég man ást-
ina og þolinmæðina. Ég man eftir
hrósinu og stoltinu. Ég man síð-
ustu stundirnar okkar saman. Ég
man þig, elsku besta mamma mín
og mun þér aldrei gleyma. Ég trúi
því að elsku pabbi hafi tekið á
móti þér í sumarlandinu og að nú
séuð þið saman á ný. Gefðu hon-
um kossa og knús frá okkur. Takk
fyrir að vera besta mamman og
amman.
Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó, móðir góð?
Upp, þú minn hjartans óður!
Því hvað er ástar og hróðrar dís,
og hvað er engill úr paradís
hjá góðri og göfugri móður?
(Matthías Jochumsson.)
Bryndís,Valur, Halldór
Kristinn, Bárður Bjarki og
Steingerður Aldís.
Ég ætla ekkert að fela það að
nú er nýlokið erfiðasta verkefni
sem ég hef fengist við. Elsku
móðir mín hefur kvatt þessa jarð-
vist og sú kveðjustund var erfið
þrautaganga. Að þurfa að kveðja
foreldra sína í hinsta sinn er vita-
skuld erfitt fyrir alla. Mömmur
eru okkar veröld, alheimurinn og
sólin snýst í kringum mömmur.
Mamma mín var og er mín hetja,
ofurkona og besti vinur.
Ég er yngstur fimm barna
mömmu og pabba og öll áttum við
góða æsku í Hnífsdal. Mikið var
það nú fallegt samfélag. Þar ríkti
mikil samkennd og vinskapur
milli nágranna og félagslíf í
blóma. Mamma og pabbi voru
einnig virkilega dugleg að ferðast
um landið og fyrir það er ég ávallt
mjög þakklátur.
Ætli ég verði ekki að viður-
kenna það að ég hafi verið dekrað
örverpi, ég var lengi í foreldra-
húsum og naut þeirrar verndar.
Ef pabbi kom heim með eitthvað
sigið eða migið í soðið þá var
mamma vís til að hræra í skyr fyr-
ir litla barnið til að verja mig fyrir
mörflotinu.
Við mamma og pabbi fluttum
inn á Ísafjörð og ég fór í mennta-
skólann. Ég veit hversu erfitt
mömmu fannst að geta ekki að-
stoðað mig í náminu og því öllu en
í raun fékk ég ávallt þann besta
stuðning sem ég gat óskað mér.
Þannig var það ávallt, hversu
klikkaðar hugmyndir ég fékk,
stuðninginn fann ég alltaf beint
frá hjartanu. Þegar ég fíflaðist í
framboð með vinum mínum til
bæjarstjórnar, voru þau fyrst til
að styðja við framboðið. Þetta var
í nær eina skiptið sem ég veit fyrir
víst hvað þau kusu. Þau voru ekki
að troða ofan í okkur börnin
stjórnmálaskoðunum og ég mun
ávallt bera virðingu fyrir því og
tileinka mér það gagnvart mínum
börnum.
Ég flutti svo suður til Reykja-
víkur til að sækja framhaldsnám
undir aldamót og það var pínu
erfiður skilnaður. Þó var það svo
að á sama tíma reistu þau bústað í
Dýrafirði. Því húsi fylgdi mikil
lukka og gæðastundir á Valseyri
voru fjölmargar og dýrmætar.
Það var hrein unun að sjá til
þeirra mömmu og pabba þar hvað
þau nánast gengu í endurnýjun
lífdaga á þessum sælureit. Ég
verð ávallt þakklátur þeim stað og
systrum mínum sem reistu það
hús með þeim.
Mamma varð önnur mann-
eskja þegar pabbi kvaddi fyrir
fjórum árum, í raun varð það fá-
einum árum fyrr þegar hún þurfti
að kveðja tvö systkini sín með
stuttu millibili. Systkini mömmu
voru afar samrýnd og hvert öðru
yndislegra. Sú glaðlynda mann-
eskja hafði sig ekki í frammi leng-
ur og varð meira baka til. Það var
mikið högg fyrir okkur að missa
pabba og ekki síst fyrir mömmu
en þau voru afar náin. Það er viss
huggun í því að vita að þau séu
sameinuð á ný, það er okkar trú.
Mömmu fannst fátt skemmtilegra
en að rúnta með pabba og alveg er
ég viss um að pabbi bauð henni
strax í bíltúr. Nú eru þau mögu-
lega á gula Wartburg-inum að fá
sér pylsu í Brúarnesti, þ.e. ef bílar
og bílasjoppur rata einnig til
himna.
Mamma, ég elska þig svo mikið
og mun ávallt gera. Segðu pabba
að ég elski hann voða mikið líka.
Ég sakna ykkar. Ég verð ávallt
stoltur af ykkur og fagna þeirri
lukku á hverjum degi að hafa átt
ykkur að.
Ykkar,
Kristján Freyr.
Hún amma Didda var
skemmtileg og góð kona og okkur
hlýnar í hjartanu þegar við hugs-
um um hana. Það var alltaf nota-
legt að koma til ömmu Diddu og
afa Hadda hvort sem það var á
Túngötuna eða á Valseyri. Þar
vorum við alltaf velkomin og viss-
um að vel yrði tekið á móti okkur
og eitthvað gómsætt í boði.
Amma var mjög góð að baka og
prjóna og kallaði Stefán hana
sætabrauðs-ömmu. Hún prjónaði
líka mjög flotta lopapeysu á Stef-
án og fallegan bleikan kjól á
Fríðu. Þegar við áttum afmæli
hringdi hún alltaf í okkur til að
óska okkur til hamingju með dag-
inn og spurði okkur líka hvernig
okkur gengi í skólanum.
Elsku amma Didda, takk fyrir
allar góðu og fallegu minningarn-
ar sem þú skildir eftir hjá okkur.
Takk fyrir að fylgja okkur
áleiðis, Guð blessi þig.
Krakkarnir hans Kristjáns,
Stefán Bjartur
og Fríða Katrín.
Elsku besta amma mín.
Eftir erfiða baráttu við veikindi
í sumar hefur þú núna fengið
hvíldina. Ég trúi því að þú sért
komin á betri stað og þið afi séuð
loks sameinuð á ný. Ég veit að
hann, systkini þín og foreldrar
hafa tekið vel á móti þér hinum
megin.
Ég er svo þakklát að hafa átt
þig sem ömmu og að Katrín mín
hafi fengið að kynnast langömmu
sinni. Þú varst þessi ekta amma
og minningar sem koma upp í
huga minn við þessi skrif eru
bakstur og söngur. Þú varst alltaf
svo góð og skemmtileg, það vita
allir sem þig þekktu.
Það er erfitt að hugsa til þess
að þið afi séuð bæði farin og það
verður skrítið að koma vestur og
hitta hvorugt ykkar þar. Ég
sakna þín, elsku amma, og mun
geyma allar þær góðu minningar
sem ég á í hjarta mínu. Ég veit að
þér líður betur í dag og ég mun
hitta ykkur afa saman einn dag-
inn aftur. Á meðan mun ég hugga
mig við minningarnar sem ég á.
Hvíldu í friði, elsku amma, ég
elska þig. Góða nótt.
Allt er kyrrt og orðið hljótt,
eftir eril dagsins.
Guð er að bjóða góða nótt,
í geislum sólarlagsins.
(Katrín Bílddal.)
Þín,
Heiðdís.
Í litla þorpinu mínu þekktist
það að konur væru kenndar við
eiginmenn sína, að mínu mati fal-
legur og góður siður. Þannig var
það með Steingerði Ingadóttur,
sem við krakkarnir þekktum ekki
undir því nafni, hún var ætíð köll-
uð Didda Hadda. Didda var góð
kona, frábær mamma, sannur
vinur vina sinna. Og ég var svo
heppinn að Didda og Haddi voru
góðir vinir foreldra minna og
heimili þeirra var ætíð opið upp á
gátt fyrir mig og ekki þurfti að
banka á útihurð, einungis bara
opna og segja halló, eða bara
koma inn setjast við matarborðið.
Það var einfaldlega bara sóttur
aukadiskur ef maður var svangur.
Já, Heiðarbraut 7 var heimili af
bestu gerð.
Við systkinin á Skólavegi 3 vor-
um öll mikið á Heiðarbraut 7, við
öll áttum okkar bestu vini í þessu
húsi. Maður áttar sig á því í dag
að börn sækja ekki síður í vinskap
fullorðinna, þannig var það með
Diddu og Hadda, manni var ætíð
tekið sem jafningja, sagðar voru
sögur, hlegið saman, og þess notið
að vera til. Og auðvitað var maður
skammaður ef svo bar undir, bara
rétt eins og heima hjá sér. Og
þannig vill hvert barn hafa það,
maður vill vita línuna á milli þess
að gera rétt eða rangt. Og Didda
var ein af þessum konum í Hnífs-
dal sem vildi öllum vel, stóð sína
plikt í kvenfélaginu og vann sína
vinnu í rækjunni, ætíð í góðu
skapi, man eiginlega ekki eftir
henni öðruvísi en hlæjandi.
Það er því með miklu þakkæti
sem ég hugsa nú til Diddu og ekki
síður til Hadda, er hugurinn leitar
heim í Hnífsdal, t.d. þegar hringt
var úr síma 718 í síma 590 og leyfi
fengið hjá mömmu til að sofa á
Heiðarbraut, eða þegar þorrablót
var haldið og allir púkarnir voru
settir saman í eitt hús yfir nóttina.
Elsku vinir mínir Maja, Birkir,
Kaja, Bryndís og Kristján. Sendi
ykkur og fjölskyldum ykkar mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur,
minning foreldra ykkar lifir svo
sannarlega.
Páll Halldór Halldórsson.
Steingerður
Ingadóttir
Þegar ég hugsa
um hvernig kona
hún móðir mín var
kemur helst upp í
hugann að hún var
hlý og góð kona, hörkudugleg
húsmóðir og mikill fagurkeri.
Eftir að ég fæddist var hún
ekki mikið útivinnandi, en á
tímabili var hún þó að vinna hjá
Siggu frænku okkar í Pipar &
salti sem var á Klapparstígn-
um. Ég man alltaf hversu nota-
legt mér fannst að hafa mömmu
heimavinnandi þegar ég var í
grunnskóla. Það var svo góð til-
finning að mamma biði eftir
manni og tæki á móti manni
þegar maður kæmi heim, búin
að baka skúffuköku eða útbúa
eitthvað gott í kaffitímanum.
Henni mömmu fannst ekkert
betra en að setjast út á pall á
sumrin eða vinna í garðinum
þegar það var sól. Það mátti
ekki glitta í sólina, þá var hún
komin út. Enda var hún líka
alltaf orðin kaffibrún í lok sum-
ars, svo brún að þeir sem voru
að koma heim úr sólarlandaferð
voru eins og næpur við hliðina
á henni. Þegar ég var yngri
þótti mér ekkert spennandi að
vera úti í garði eða á palli þó að
það væri sól og hiti. Mér fannst
miklu skemmtilegra að hanga
inni í tölvunni. Hún mamma
skildi það sko ekki og gafst
ekki upp á að tuða í mér fyrr en
ég var kominn út á pall í sólina.
Í dag er ég orðinn alveg eins og
hún var, nöldrið hefur síast inn
í gegnum árin því nú má ég
sjálfur ekki sjá glitta í sólina,
þá er ég rokinn út í garð að slá
grasið, mála húsið eða hvað
sem ég get fundið mér að gera
úti. Og ef ég fer ekki strax út í
sólina hugsa ég sjálfkrafa til
mömmu og fæ gríðarlegt sam-
viskubit yfir því að vera inni.
Ég lærði líka af móður minni að
meta fallega garða og allan
gróður og náttúruna, enda voru
ófáar stundirnar okkar þar sem
við vorum að vinna saman í
garðinum á Þinghólsbrautinni.
Mamma var mjög mikið fyrir
að skreyta heima hjá sér og
Rósa Guðbjörg
Gísladóttir
✝ Rósa GuðbjörgGísladóttir
fæddist 18. maí
1941. Hún lést 1.
september 2017.
Útför Rósu fór
fram í kyrrþey.
gera fínt hjá sér.
Henni þótti sér-
staklega gaman af
því að skreyta, en
um jólin breyttist
húsið okkar í jóla-
hús þar sem allt
var skreytt sem
skreyta mátti og á
öllum borðum
mátti finna skálar
með smákökum
sem hún bakaði
óteljandi sortir af. En henni
fannst einnig mjög mikilvægt
að setja margar fallegar jóla-
seríur utan á húsið og í runn-
ana og trén í garðinum, en
garðurinn var mjög stór og
mikið af gróðri. Ég hef nú ekki
tölu á hversu margar perur
voru á öllum þessum seríum, en
ljóst er að þær skiptu þúsund-
um. Eins og gerist gjarnan með
jólaseríur eiga þær til að flækj-
ast saman yfir árið í geymslu.
Þetta var oft margra klukku-
tíma, jafnvel daga, verk að
leysa flækjurnar og skipta út
ónýtum perum. Á hverju ári
gerðum við pabbi þetta þó með
glöðu geði því við vissum hvað
þetta skipti hana miklu máli.
Síðan var hóað í systkinin og
barnabörnin og þeir sem gátu
komið mættu til þess að setja
upp jólaseríurnar í garðinum
með okkur. Mamma útbjó heitt
súkkulaði og kökur á meðan
seríurnar voru settar upp, á
milli þess að vera að fjarstýra
okkur í að laga þau ljós sem
ekki voru nógu vel sett upp eða
ekki á réttum stað svo allt yrði
fullkomið. Svona var þetta öll
jól. Fullkomið.
Ég gleymi aldrei öllum góðu
minningunum okkar og öllu því
sem þú hefur kennt.
Ragnar Már Reynisson.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR ÞORLEIFSDÓTTIR,
Vogatungu 30,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum 19. september.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 29. september
klukkan 11.
Ragnar Jónatansson
Ómar Ragnarsson Nína Margrét Pálmad.
Brynjar Örn Ragnarsson Brynja Magnúsdóttir
Hanna Rósa Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓRUNN HELGA SVEINSDÓTTIR
frá Brautarholti í Haganesvík,
Túnbrekku 2, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 13. september á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 27.
september klukkan 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Örn Óskarsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar