Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 45

Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Maður er alltaf að garfa eftir nýrri tónlist og rekst á býsna margt fyrir helbera tilviljun. Man ekki hvernig ég hafði uppi á Joan Shelley en man að ég rúllaði fjórum lögum af því sem ég taldi vera stuttskífu, Over and Even, á Spotify. Komst svo að því í spjalli við listamanninn eftir tónleikana sem hér eru til umræðu að um hluta af breiðskífu hefði ver- ið að ræða. „Við vildum bara ekki setja hana alla í einu inn á Spotify,“ sagði Shelley og brosti kankvíslega. Þegar ég hlustaði á nefnda plötu tók ég fyrst eftir því hversu auð- veldlega tónlistin streymdi fram og umlukti mann. Appalasíu- þjóðlagatónlist, en samt ensk þjóð- lagatónlist líka en allt nútímavætt um leið. Maður féll í þægilega ró bara við að labba framhjá græj- unum (og ég byrja oft daginn á þessari hugleiðandi tónlist). Svo tók ég eftir rödd sem ég kannaðist ískyggilega mikið við og já, þetta var hann! Sjálfur Will Oldham. Kemur í ljós að þau eru bæði frá Louisville sem skýrir þann gesta- gang. Ég mundi eftir Shelley og beið spenntur eftir næstu breið- skífu sem kom út í vor, samnefnd henni. Olli hún engum vonbrigðum (fleiri nöfn, Jeff Tweedy (Wilco) var á tökkunum þar). Mig rak því í rogastans er ég sá auglýsta tónleika með henni í Mengi og brá mér þangað inn, nema hvað. Mengi er einfaldlega dásamlegur staður og búinn að vera lengi vel skjól fyrir fram- sækna tónlist af alls kyns toga og bara gæðatónlist almennt. Salurinn var myrkur mjög, sem hæfði Shel- ley frábærlega, stemning sem bæði er í tónlistinni og t.d. í myndinni sem fylgir þessari grein. Hárfínn samhljómur á öllu. Shelley rölti inn á svið við annan mann, Nathan Salsburg, og settust þau hvort í sinn stólinn með gítarana sína. Hóf- ust svo leikar. Fingrafimi beggja var sláandi, algjört „virtúós“-flæði í gíturunum þar sem þjóðlagalykkj- ur og -stemmur krulluðust út í sal- inn. Yndislegt. Shelley er góð söng- kona, röddin bæði sterk og falleg og kallaði að einhverju leyti Sandy Denny eða Anne Briggs fram. Þriðja lagið, „If the storms never came“, keyrði efnisskrána í gang og tvíeykið var giska öruggt – en afslappað um leið. Létt spjall á milli laga, brandarar og nærandi súrsæt- ur feginleiki yfir því að nú væri hljómleikaferðalagið þeirra loks á enda („ég er rétt farinn að læra lagalistann og þá er þetta búið!“ sagði Nathan og uppskar hlátur). Shelley endaði tónleikana með því að syngja ein og án undirleiks stemmu sem hún taldi að hefði bor- ist til Kentucky í gegnum járn- brautarlagningarmenn. Heyra mátti saumnál detta. Yndisstund í Mengi – enn og aftur. » Létt spjall á millilaga, brandarar og nærandi súrsætur feg- inleiki yfir því að nú væri hljómleikaferða- lagið þeirra loks á enda. Joan Shelley, þjóðlaga- og kántrílistamaður frá Louisville, Kentucky, lék á undursamlegum tónleikum í Mengi nú á miðvikudaginn. Yfir og allt um kring Galdrar Joan Shelley töfraði fram dásamlegar þjóðlagastemmur í Mengi. Fimmta starfsár tónleikaraðarinnar Hljóðön hefst í Hafnarborg á morg- un, sunnudag, kl. 20. Þar koma fram Lilja María Ásmundsdóttir, píanó- og hulduleikari, og Katie Buckley hörpuleikari. „Á tónleikunum mæt- ast hljóðheimar hins sérhannaða hljóðfæris Huldu, ljósa- og hljóð- skúlptúr og hugarsmíð Lilju Maríu, tónheimur danska tónskáldsins Per Nørgård og hljóðheimur bandaríska tónskáldsins George Crumb. Tvö ný verk eftir Jesper Pedersen og Lilju Maríu Ásmundsdóttur verða frum- flutt á tónleikunum samin fyrir Huldu, hörpu, píanó og rafhljóð,“ segir í tilkynningu. Hljóðön í Hafnarborg hefst annað kvöld Hljóðfæraleikarar Katie Buckley og Lilja María Ásmundsdóttir. Guð, hvað mér líður illa, sýningu á verkum Ragnars Kjartanssonar í Listasafni Reykjavíkur í Hafn- arhúsi lýkur á morgun. Guð, hvað mér líður illa er fyrsta safnsýning Ragnars hér á landi en haldnar hafa verið umfangsmiklar yf- irlitssýningar á verkum hans í virtum söfnum beggja vegna Atl- antshafs síðustu misseri. Gjörningurinn „Taktu mig hérna við uppþvottavélina – minnisvarði um hjónaband“ stendur enn yfir í Hafnarhúsi og er hann sá þriðji og síðasti í röð lifandi gjörninga eftir Ragnar á sýningunni. Þátttakendur í gjörningnum eru tíu trúbadorar sem standa vaktina þegar safnið er opið og spila og syngja allt til sýningarloka en í bakgrunni má sjá ástaratriði úr kvikmynd- inni Morðsögu sem foreldrar Ragnars leika í. Í fjölskyldu Ragnars gengur sú saga að hann hafi verið getinn um það leyti er myndin var tekin upp. Sýningu Ragnars lýkur á morgun Eldhress Ragnar Kjartansson við opnun sýningarinnar í Hafnarhúsi í sumar. Morgunblaðið/Golli Barnasýningin Á eigin fótum snýr aftur í Tjarnarbíói á morgun, sunnu- dag, kl. 15. Næstu sýningar verða sunnudagana 1., 15. og 22. október kl. 15. Sviðslistahópurinn Miðnætti frumsýndi sýninguna í samstarfi við Lost Watch Theatre í vor sem leið við góðar viðtökur og sagði gagnrýn- andi Morgunblaðsins sýninguna gleðja „auga jafnt sem hjarta“. Samkvæmt upplýsingum frá að- standendum er Á eigin fótum „fal- leg, fræðandi og fjörug Bunraku- brúðusýning um hugrekki, ætluð allra yngstu áhorfendunum og fjöl- skyldum þeirra. Sýningin er 40 mín- útur að lengd. Við sýningartímann bætist síðan leikstund þar sem börn- unum gefst tækifæri á að hitta Ninnu og Snata. Leyfilegt er að taka myndir í leikstundinni. Á eigin fót- um fjallar um Ninnu, sex ára uppá- tækjasama stelpu sem býr í Reykja- vík á millistríðsárunum og er send ein í afskekkta sveit til dvalar sum- arlangt.“ Leikstjóri er Agens Wild, en leikarar og brúðuleikarar sýning- arinnar eru Nick Candy, Þorleifur Einarsson, Rianna Dearden og Olivia Hirst. Sigrún Harðardóttir, tónskáld og fiðluleikari, og Margrét Harðardóttir harmonikkuleikari sjá um flutning tónlistar. Á eigin fótum snýr aftur í Tjarnarbíó Vinátta Úr Á eigin fótum. Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 8, 10.50 SÝND KL. 2, 4, 6 SÝND KL. 2, 4, 6 SÝND KL. 2 SÝND KL. 4, 6, 8, 10.20SÝND KL. 8, 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.