Morgunblaðið - 23.09.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
Dagur B. Eggertsson borg-arstjóri segir það ekki póli-
tískt mál að fjölga borgarfulltrúum.
Þó er það svo að vinstrimenn hafa í
gegnum tíðina verið afar áhuga-
samir um fjölgun borgarfulltrúa en
aðrir hafa ekki verið það.
Þegar vinstri-menn náðu
meirihluta í borg-
arstjórn á áttunda
áratugnum fjölguðu
þeir til að mynda
borgarfulltrúum úr
15 í 21. Sjálfstæð-
ismenn leiðréttu
það strax á næsta
kjörtímabili og hafa þeir verið 15
síðan.
Vinstristjórn Jóhönnu og Stein-gríms breytti svo lögum á
þann veg að borgarfulltrúar skuli
eftir næstu sveitarstjórnarkosn-
ingar ekki verða færri en 23.
Jón Gunnarsson, ráðherra sveit-arstjórnarmála, reyndi að af-
nema þessa skyldu en líklegt er
ótímabærar þingkosningar hafi
komið í veg fyrir að það mál nái
fram að ganga.
Meirihluti borgarstjórnar sam-þykkti í vikunni, gegn at-
kvæðum sjálfstæðismanna, að
fjölga borgarfulltrúum í 23. Sjálf-
stæðismenn vildu í stað fjölgunar
óska þess af Alþingi að það afnæmi
skylduna til fjölgunar svo að hægt
væri að halda óbreyttum fjölda.
Þetta mega vinstrimenn í borg-arstjórn ekki heyra á minnst.
Þeir telja fjölgun fulltrúa með til-
heyrandi útþenslu kerfisins og
auknum kostnaði jákvæða þróun.
Auðvitað er þessi útþenslustefnapólitískt mál þó að borgar-
stjóri vilji ekki kannast við það.
Dagur B.
Eggertsson
Kerfið þanið út
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 22.9., kl. 18.00
Reykjavík 8 rigning
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 10 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 14 skýjað
Kaupmannahöfn 13 súld
Stokkhólmur 11 þoka
Helsinki 12 skýjað
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 14 skýjað
London 17 léttskýjað
París 19 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 18 léttskýjað
Vín 15 heiðskírt
Moskva 11 heiðskírt
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 22 heiðskírt
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 15 léttskýjað
Montreal 21 léttskýjað
New York 19 heiðskírt
Chicago 23 þoka
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:15 19:26
ÍSAFJÖRÐUR 7:20 19:31
SIGLUFJÖRÐUR 7:03 19:14
DJÚPIVOGUR 6:44 18:56
Veðurspá dagsins í dag býður upp á
krappa lægð með hlýju lofti, miklum
raka, mikilli rigningu, hvassviðri og
stormi. Theodór Freyr Hervarsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu Ís-
lands, segir að mesta hvassviðrið
verði nokkuð staðbundið meðfram
suðurströndinni, einkum í nágrenni
við Skaftafell og undir Eyjafjöllum.
Reiknað er með að hvassviðrið
standi yfir í tvo til þrjá klukkutíma
og ætti það að vera gengið yfir um
klukkan tvö eða þrjú.
Theodór Freyr hvetur ferðafólk
við suðurströndina til að fylgjast vel
með veðri fyrir hádegi og gera við-
eigandi ráðstafanir. Huga þurfi sér-
staklega að ökutækjum sem taka á
sig mikinn vind og eru létt. Það
sama eigi við um tengivagna.
Að sögn Theodórs Freys verður
væta víða um land, mest á Suðvest-
urlandi og í fjalllendi Vatnajökuls og
Mýrdalsjökuls. Rigning verður um
mest allt land og spáð er töluverðri
rigningu á Austurlandi.
Á morgun er gert ráð fyrir rign-
ingu, sérstaklega á Suðausturlandi,
og hita á bilinu 7 til 13 stig. Þurrt
verður að mestu á Norðausturlandi.
Suðlægri átt er spáð fram eftir viku.
Hvassviðri
og storm-
ur í dag
Morgunblaðið/Eggert
Suddi Það má gera ráð fyrir leið-
indaveðri í borginni með vætu.
Kröpp lægð
gengur yfir landið
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2018
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og
tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
Árangursríkar áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.
Árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði.
Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði svefni og hreyfingu.
Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
Verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.
Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið
Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi –
með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016)
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.
Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila
framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017 og skal sótt um á vefsvæði
Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
Matur