Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 14

Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Óskum eftir bílum á söluskrá, höfum laus sölustæði, kíktu við! Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Hjólin verða að rúlla hratt,“ sagði Hrafnkell Á. Proppé, svæðis- skipulagsstjóri Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu, á ráð- stefnu í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær um fyrirhugaðar áætlanir um að ryðja veg reiðhjólsins á Íslandi. Ráðstefnan, Hjólum til framtíðar – ánægja og öryggi, var haldin í til- efni loka samgönguviku. Rætt var um framtíð hjólreiðasamgangna á Íslandi og kosti og galla þess að fjár- festa í innviðum fyrir hjólreiðastíga. Hrafnkell benti á að árum saman hefði nær öll opinber fjárfesting í samgöngum farið í stofnvegakerfið. Ef fjárfestingar yrðu með sama móti næstu árin mundi heildarakstur aukast um fjórðung í takt við áfram- haldandi íbúafjölgun, en jafnframt mundu tafir á umferð aukast fram úr öllu hófi. Einu leiðirnar til að halda umferðarteppum niðri væru að margfalda fjármagn til vegagerð- ar eða að víkka áherslurnar til að gera ráð fyrir öðrum farartækjum en bifreiðum. Markmiðið sagði Hrafnkell því vera að draga úr vægi bíla og að þrefalda vægi vistvænna samgöngukerfa. Ýmis verkefni eru þegar í bígerð til að auðvelda hjólreiðar á Íslandi. Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, steig á svið til að ræða um hjólastíg sem unnið er að meðfram Grindavíkur- vegi áleiðis til Selskógar. Ármann viðurkenndi að sér hefði verið snið- inn þröngur stakkur við gerð vegar- ins og að öll ráð hefðu verið nýtt til að gera lagninguna eins ódýra og mögulegt væri. Vegurinn hefði t.d. verið gerður úr endurunnu, köldu malbiki og færi á köflum yfir möl. Þéttbýliskjarnar tengdir Berglind Halldórsdóttir, umferð- arverkfræðingur hjá Verkís, steig næst á svið og ræddi möguleikann á því að leggja hjólahraðbrautir á Íslandi með hraðbrautir erlendis til hliðsjónar. Yfirleitt væri markmiðið með slíkum hraðbrautum ekki að hjóla hratt heldur að tengja saman tvo þéttbýliskjarna. Niðurstaða Verkís var sú að verulegar breyt- ingar þyrfti til að leggja slíka hrað- braut hérlendis. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti einn- ig ávarp þar sem hann benti á að vin- sældir reiðhjóla hefðu aukist mjög á Íslandi og að Vegagerðin hefði fjár- magnað nýja hjólastíga á höfuð- borgarsvæðinu. Á næstunni mundu sveitarfélög á landsbyggðinni einnig standa að lagningu hjólastíga í aukn- um mæli. Hjólreiðar ættu að vera greiður og öruggur ferðamáti. Hugað að hjólahraðbrautum  Ráðstefna haldin um reiðhjólasamgöngur og lagningu hjólastíga á Íslandi Morgunblaðið/Eggert Bæjarbíó Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri SSH, flytur ávarp sitt. Akurnesingar hafa sótt um byggða- kvóta til sjávarútvegsráðuneytisins á yfirstandandi fiskveiðiári í ljósi breyttrar stöðu fiskvinnslu á staðn- um, en HB Grandi hætti um síðustu mánaðamót fisk- vinnslu á Akra- nesi. Sævar Freyr Þráinsson, bæjar- stjóri á Akranesi, segir að það sé vilji heimamanna að styrkja höfn- ina sem fiskihöfn, auka sjósókn frá Akranesi og auka fiskvinnslu í landi til framtíðar. Hann bendir á að Akurnesingamið skammt frá landi séu á meðal gjöfulustu fiskimiða landsins. Akurnesingar hafa áður sótt um byggðakvóta, en ekki fengið. Sævar segir að á síðasta áratug hafi orðið mikil breyting í útgerðar- bænum Akranesi. Nú séu það eink- um minni útgerðir og krókabátar sem sæki sjóinn, oft með leigukvóta eða á strandveiðum. Það sé vissulega fagnaðarefni að Ísfiskur sé að hefja starfsemi á Akranesi, en fyrirtækið hafi fyrst og og fremst keypt fisk á markaði til vinnslu í landi. Mikill samdráttur Í bréfi bæjarstjóra til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarút- vegsráðherra, segir meðal annars að útgerð og fiskvinnsla hafi frá fornu fari verið meginþáttur í atvinnulífi Akurnesinga. „Undanfarin ár hefur dregið veru- lega úr löndun á Akranesi og er afla nú landað í Reykjavík og á Vopna- firði þó skip og aflaheimildir séu skráðar á Akranesi. Löndun á árinu 2016 er því einungis um 9% m.v. löndun 2007 og um 13% af löndun ársins 2006. Bolfiskveiðiskipin landa engum afla á Akranesi og er nánast öllu landað í Reykjavík eða á Vopna- firði til vinnslu eða útflutnings,“ seg- ir í bréfi Sævars Freys. aij@mbl.is Skagamenn óska eftir byggðakvóta  Vilja styrkja veiðar og vinnslu á Akranesi Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Breytingar Minni bátar eru áber- andi í sjósókn frá Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðræður standa yfir um sameiningu Sorpu bs. og Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. (Kölku). Málið var kynnt á eigendafundi Kölku síðdegis í fyrradag. Einnig er búið að kynna það hjá öllum sveitarfélögunum á höf- uðborgarsvæðinu nema tveimur. Farið var yfir málið á kynningar- fundinum á Suðurnesjum en engin ákvörðun tekin þar, að sögn Jóns Norðfjörð, framkvæmdastjóra Kölku. Til fundarins mættu m.a. Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, Sigrún Ágústsdóttir frá Umhverfisstofnun og ráðgjafar frá Capacent sem unnið hafa með við- ræðunefndum beggja fyrirtækjanna. „Nú er fyrst og fremst verið að skoða það að sameina fyrirtækin og hvort það geti orðið hagkvæmt,“ sagði Jón. „Sveitarfélögin eru skuld- bundin til að eyða úrgangi. Það er alltaf verið að þrengja að þessum mál- um, bæði umhverfislega og á annan hátt. Það er brýnt að fylgjast vel með og taka ákvarðanir í samræmi við það.“ Talsverð samvinna er nú þegar á milli Sorpu og Kölku. Sem kunnugt er urðar Sorpa úrgang í Álfsnesi en Kalka er með sorpbrennslustöð. Jón sagði fyrirhugað að reka brennslu- stöð Kölku áfram. Verið er að herða reglur um urðun, eins og reglur Evr- ópusambandsins segja fyrir um. Gera þarf ýmsar breytingar varðandi urð- un sorps á næstu árum. Jón sagði menn sjá fyrir sér að flokkun sorps mundi aukast, með það að markmiði að minnka sóun og nýta úrgang betur en nú er gert. „En alltaf verður eitt- hvað eftir sem þarf að brenna eða urða,“ sagði Jón. Aukin hagkvæmni markmiðið Björn H. Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, sagði að undir- tektir sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu við hugmyndum um sam- einingu Sorpu og Kölku hefðu almennt verið varfærnislegar og já- kvæðar. „Við sjáum framundan sterkari og meiri kröfur á þessu sviði,“ sagði Björn. „Brennsla er ein lausn í úr- gangsmálum sem verður að vera fyrir hendi. Sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu hafa ekki slíkt í dag en Kalka hefur það. Með stærri einingu verður vonandi hægt að gera þetta á hag- kvæmari hátt en nú.“ Ekki hefur verið gerð tímaáætlun varðandi mögulega sameiningu. Framhaldið mun ráðast af viðbrögð- um eigenda. „Við viljum komast að niðurstöðu sem fyrst,“ sagði Björn. Hann sagði að urðun í Álfsnesi væri háð takmörkunum og því væri verið að leita að öðrum urðunarstað. Einnig væri gas- og jarðgerðarstöð, sem framleiða mun metan úr lífrænum úr- gangi, í undirbúningi í Álfsnesi. Markmiðið með sameiningu fyrir- tækjanna væri að leysa sorpmálin á sem hagkvæmastan hátt. Ræða samein- ingu um sorp Morgunblaðið/Þórður Sorpbrennsla Kalka rekur sorpbrennslustöð á Suðurnesjum en Sorpa urð- ar sorp í Álfsnesi. Nú er kannað með sameiningu fyrirtækjanna.  Sameining Sorpu og Kölku skoðuð  Strangari kröfur um sorpförgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.