Morgunblaðið - 23.09.2017, Page 21

Morgunblaðið - 23.09.2017, Page 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is ton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur. opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn. auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu rnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin Rex Þau Þau hey Velta í virðisaukaskattsskyldri starfsemi var 757 milljarðar króna í maí og júní, sem er ein- ungis 0,4% hækkun miðað við sama tímabil árið 2016. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Á tímabilinu júlí 2016 til júní 2017 jókst veltan í virðisauka- skattsskyldri starfsemi, fyrir ut- an ferðaskrifstofur og farþega- flutninga á vegum sem voru felld undir virðisaukaskatt í ársbyrjun 2016, um 2,7% miðað við síðustu tólf mánuði þar áður. Ekki er enn hægt að bera sam- an tölur á ársgrundvelli fyrir þjónustu ferðaskrifstofa og ferða- skipuleggjenda þar sem greinin er tiltölulega nýorðin virðisauka- skattsskyld. Hins vegar bendir Hagstofan á að velta í þeirri at- vinnugrein var 4,4% hærri í maí og júní 2017 en í sömu mánuðum í fyrra. Tölur benda til þess að hægt hefi verulega á vexti í ferða- þjónustu, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Velta í þeim lið í gögnum Hagstofunnar sem skráður er undir heitinu „byggingastarf- semi, mannvirkjagerð, námu- gröftur og vinnsla jarðefna“ hækkaði um 10,2% í maí og júní miðað við sömu mánuði í fyrra. Segir í frétt Hagstofunnar að gögn bendi til þess að verulega hafi dregið úr vexti á þessu sviði einnig. Hægir á vexti í þjónustu Ferðamenn Hægt hefur verulega á vexti í ferðaþjónustu segir Hagstofa. Fjármálaeftirlitið setti inn á vef sinn tvær tilkynningar seint í gær, föstu- dag, um að það hefði metið vogunar- sjóðinn Taconic Capital Advisors LP og tengda aðila hæfa til að fara með virkan eignarhlut sem nemur allt að 33% í Arion banka og að Kaupþing ehf. væri metið hæft til þess að fara með virkan eignarhlut í sama banka sem nemur allt að 33%. Í tilkynningunni vegna Taconic segir að við matið hafi FME lagt mat á hæfi lúxemborgska fjárfestinga- félagsins TCA New Sidecar III S.à r.l. til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka með beinni hlutdeild en það félag fer nú með um 9,99% hlut í bankanum. Þá lagði eftirlitið mat á hæfi lúxemborgsku fjárfest- ingafélaganna TCA Opportunity In- vestments S.à r.l., TCA Event Invest- ments S.à r.l. og TCA Sidecar II S.à r.l. til að fara með virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild. Þessi félög fara nú samanlagt með um 40,67% hlut í Kaupþingi, eða sem nemur um 23,35% óbeinum hlut í Arion banka. Varðandi hæfi Kaupþings segir að ákvörðunin taki gildi þegar hluta- bréf í Arion banka hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum verð- bréfamarkaði. Fram að því munu skilyrði FME um eignarhald í gegn- um Kaupskil gilda óbreytt. Kaup- þing fer nú með 57,42% hlut í Arion banka í gegnum Kaupskil. Segir FME að við matið hafi sérstaklega verið horft til fyrirhugaðs skamms eignarhalds Kaupþings í Arion banka. Seint á föstudegi í síðustu viku var sett sambærileg tilkynning á vef FME um að vogunarsjóðurinn Atte- stor Captial LLP og tengdir aðilar væru metnir hæfir til þess að fara með allt að 20% hlut í Arion banka. Morgunblaðið/Eggert Eign FME hefur gefið grænt ljós á eign vogunarsjóða á Arion banka. Mega eiga Arion banka Kaupþing mun ekki taka ákvörðun um mögulegt hlutafjárútboð Arion banka og skráningu í Kauphöll fyrr en að alþingiskosningum liðn- um og ný ríkisstjórn hefur verið mynduð, segir í yfirlýsingu. Kaupþing, sem á 58% hlut í Ar- ion banka, hafði stefnt að hluta- fjárútboði í ár. Morgunblaðið hafði eftir Ásgeiri Jónssyni, deild- arforseta hagfræðideildar við Há- skóla Íslands, á miðvikudaginn að ólíklegt væri að af hlutafjárútboði yrði á þessu ári eftir að rík- isstjórnin féll. „Mörkuðum er illa við óvissu og því munu fjárfestar halda að sér höndum. Ekki er ljóst hvernig ríkisstjórn mun taka við,“ sagði hann. Kaupþing tók sambærilega ákvörðun í tengslum við þingkosn- ingar í fyrra og setti sölu á Arion banka í bið. helgivifill@mbl.is Bíða með skráningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.