Morgunblaðið - 23.09.2017, Side 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2017
LLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
MOSFE
Ert þú búin að prófa
súrdeigsbrauðin okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skelltu ekki skollaeyrum við aðvör-
unum annarra þótt þér finnist þú sigla lygnan
sjó. Taktu stefnuna á menningarlegar og há-
fleygar samræður og samskipti sem vekja
aðdáun.
20. apríl - 20. maí
Naut Miklar breytingar varðandi hagi þinna
nánustu munu eiga sér stað á næstunni. Ein-
hver segir ekki alla söguna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ekki hægt að notfæra sér
fólk sem ekki hefur veikleika, en það er líka
erfitt að láta sér ekki þykja vænt um það. Ein-
hver þér eldri og reyndari kann að hjálpa þér í
dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu einhverjum eitthvað gott, án
þess að hann átti sig á því. Lítill sigur seinni-
partinn gefur þér orku til að halda svona
áfram langt fram á kvöld.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er góður tími til að ræða vanda-
málin við maka þinn eða náinn vin. Hvort sem
þú ert að nota sjötta skilningarvitið eða al-
menna skynsemi þá sérðu strax hvað liggur
að baki gjörðum fólks.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það kann að virðast djarft að ímynda
sér að allt sé jafn fullkomið og það er, en það
gæti vel verið rétt. En stundum gengur allt
upp af sjálfu sér – eins og í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert ekki fyrsta manneskjan sem þarf
að gangast við ljótu leyndarmáli og þú ert
ekki sú síðasta heldur. Gamall vinur þarfnast
athygli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefðu sjálfum þér frí frá því að
pæla í hvað aðrir eru að gera. Minntu þig á að
þú leggur þig alltaf allan fram við það sem þú
tekur þér fyrir hendur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leiðin að mikilleikanum krefst
þess að þú kíkir upp úr djúpinu af og til.
Gættu þess þó að ofmetnast ekki né gleyma
þætti þinna nánustu í velgengni þinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú heldur rétt á spöðunum ætti
þér að takast að koma í framkvæmd öllum
þeim hlutum sem þig dreymir um. Reyndu að
vera ekki of plássfrek/ur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ástríða þín fyrir leyndarmálum
verður þess valdandi að þú munt ekki ræða
um dularfull mál við vini þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þegar þú sérð tækifæri til að tengja
við einhvern, berðu þá fram úthugsaða
spurningu sem krefst álíka svars.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Svefnleysi það ástand er.
Er þá beðið fyrir sér.
Kvöldstund, meðan kveðið var.
Kvöldið fyrir hátíðar.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Eg er stundum andvaka.
Andans vaka líður.
Kvæðastund er kvöldvaka.
Kaþólsk vaka bíður.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa:
Andvakan hreint ömurleg
og líkvakan stundum treg.
Á kvöldvökunni kveðið fullt
og kerti páskavöku gult.
Árni Blöndal leysir þannig:
Vaka er svarið vinurinn.
Vaka er líka svefndrunginn.
Sofnar oft sá er vaka skal,
víst á það við um sprund og hal.
Helgi Seljan svarar:
Enginn geri að andvöku spé,
áður vakan skóp fólki hlé.
Aðdáun ljómandi læt í té,
er les ég Andvökur Stephans G.
Guðmundur skýrir þannig:
Vaka svefni ver þig frá.
Vöku stunda um nætur má.
Kveðið oft á vöku var.
Vaka byrjun hátíðar.
Þá er limra:
Í Mosfellsbæ mikið þeir gala
og mannfólkið vekja af dvala
hanarnir tveir
og með háreysti þeir
sífellt á illdeilum ala.
Hér er svo ný gáta.
Röðull fagur roðar ský,
raddir dagsins óma á ný,
andinn strax kom yfir mig,
er hér gáta fyrir þig:
Nafn, sem margur maður ber.
Málmhylki í gufuvél.
Hola víð og alldjúp er.
Í eldhúsinu þjónar vel.
Þorleifur Kolbeinss á Háeyri orti:
Lífið manns er leiðindi,
lunti, böl og andstreymi
allra mesti óþarfi
sem ekki svarar kostnaði.
Pétur Stefánsson orti:
Enn fer ég að yrkja brag,
andans fró það gefur:
Úrhelli í allan dag
á oss dunið hefur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sæll er sá sem vakir nær
hans herra kemur
„HANN ÁKVAÐ AÐ HÆTTA VIÐ AÐ BORGA
RAFMAGNSREIKNINGINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að snúa sér varlega
svo þú vekir hana ekki
af værum blundi.
TAKK! EKKERT
AÐ ÞAKKA
ÉG ER BARA EKKI Í
STUÐI TIL ÞESS AÐ
GELTA Á ÞIG
ÉG VAR AÐ DÝFA FÓTUNUM
MÍNUM Í VATNIÐ ÞITT
ER ÞESSI KONA VIÐ ENDANN Á
BARNUM AÐ BROSA TIL ÞÍN?
ENNÞÁ BETRA! HÚN ER AÐ
HLÆJA UPPHÁTT TIL MÍN!
PÓSTUR
BLÓMABÚÐ
SEGÐU ÞAÐ
MEÐ BLÓMUM
EÐA REYNDU
AÐ HLUSTA
EINU SINNI
Fólk er ánægðara ef það eyðir pen-ingum í eitthvað sem sparar því
tíma en þegar það kaupir eitthvað fal-
legt fyrir sjálft sig. Þetta er niður-
staða nýrra rannsókna sem greint
var frá í Wall Street Journal. Það að
eyða peningum í þrif eða heimsend-
ingu matvöru veitir fólki meiri
ánægju en ný föt og vín. Einnig kom í
ljós að þó að fólki liði betur að eyða
peningum til að losa um frítíma ákvað
það oftar en ekki að gera það ekki.
x x x
Þetta kemur Víkverja ekki á óvart.Það er ákveðin feimni við að
kaupa sér þrif og aðra aðstoð fremur
en hluti. Fólk er ekki feimið við að
stilla upp nýja sjónvarpinu sínu en fer
hjá sér ef það viðurkennir að einhver
annar þurrki af því.
x x x
Vísindamennirnir Ashley Whillansog Michael Norton, sem gerðu
rannsóknina, skrifuðu sjálfir greinina
í WSJ. Þau gerðu tilraun og buðu 60
útivinnandi fullorðnum að eyða 80
bandaríkjadölum yfir tvær helgar ef
þeir væru til í að fara eftir leiðbein-
ingum um hvernig ætti að eyða pen-
ingunum. Fyrri helgina fengu þátt-
takendur 40 dali, um 4.200 krónur, til
að eyða í eitthvað sem sparaði þeim
tíma. Sumir eyddu í þrif, aðrir í heim-
sendingu matvara. Ein kona borgaði
unglingi í hverfinu fyrir að snattast
fyrir sig og önnur keypti tilbúna ídýfu
fyrir partí sem hún var að undirbúa.
Hina helgina fékk fólk sömu upphæð
til þess að kaupa hluti. Sumir keyptu
föt, aðrir bækur, borðspil eða vín. Í
ljós kom að fólk var hamingjusamara
þegar það eyddi í að kaupa tíma en
hluti. Sömu niðurstöður komu í ljós í
rannsókn á 6.000 manns frá Banda-
ríkjunum, Kanada, Danmörku og
Hollandi.
x x x
Það merkilega er að aðeins 2% þátt-takenda sem fengu peninga frá
vísindamönnunum hefðu eytt þeim í
tímasparnað ef þau hefðu sjálf fengið
að ráða eyðslunni. Niðurstaða vís-
indamannanna er sú að ein ástæða
þess sé að fólk fái samviskubit af því
að borga einhverjum fyrir að gera
eitthvað sem það sjálft hefur ekki
gaman af. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá
sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkri, heldur hafa ljós lífsins.“
(Jóh. 8:12)