Feykir


Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 3

Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 3
32 01 6 Það breyttist margt við fæðingu Jesú Krists. Jólin eru um komu hans í þennan heim og kristin jól eru allra. Mér er saga ofarlega í huga núna þegar jólin nálgast. Hún er líka hugvekja og er á þessa leið. Maður einn hét því algenga nafni Jakob og hann var vitur maður, enginn var eins vitur og hann sagði fólk. Jakob gat ráðið gátur og hvers konar kenningar með stærðfræði og ráðið allskonar leyndardóma. Hann hafði lesið margar merkilegar bækur og átti reyndar mikið safn bóka, sagði fólk. Og jafnvel skrifað þó nokkrar bækur sjálfur. Jakob var dáður og virtur. Margir komu um langan veg til að leita ráða hjá honum eða spyrja hann spurninga um hin ýmsu málefni. Jakob gat leyst úr öllum gátum og hann vissi öll svörin sama hver spurningin var. -Þar til einn dag að lítil stúlka kom til hans, hún leit upp til hans og hann beygði sig niður að henni og hún sagði: „Ég er með spurningu sem enginn hefur enn getað svarað. Mér var sagt að koma til þín, þú átt að geta svarað öllu.“ Jakob brosti og sagði: „Hver er spurning þín?“ „Hvernig lítur Guð út?“ sagði þá litla stúlkan. Jakob gat ekki svarað henni en lofaði að finna svarið þótt hann yrði að fara um alla jörðina þvera og endilanga. Hann afboðaði allar heimsóknir og fundi, hætti öllum rannsóknum, lokaði stofu sinni og húsi og hélt af stað út í heim með nokkrar bækur og landabréf. Hann var staðráðinn í að komast að því hvernig Guð liti út. Hann hugsaði með sér af hverju þessi spurning hefði ekki komið upp fyrr. Hafði hann virkilega aldrei velt því fyrir sér hvernig Guð liti út. Guð er Guð þannig hafði hann alltaf hugsað það og þar við sat. Spurning litlu stúlkunnar greip huga hans. Jakob fann að hann mundi aldrei verða sáttur með sjálfum sér nema hann fyndi svarið. Jakob fékk sér hjálparmann, aðstoðarmann og farskjóta og vistir og annað sem þurfti í langt ferðalag. Hann fór til Mesopótamíu sem er í Vestur -Asíu, landsvæði milli tveggja stórfljóta þeirra Efrat og Tigris. Þar leitaði hann uppi mestu fræði- mennina sem þar var að finna. Þeir voru að vísu mjög áhugasamir um spurningu hans en enginn þeirra gat svarað henni. Jakob fór til Babylóníu helstu borgar Mesopótamíu og þar leitaði hann í þeirri stóru borg að einhverjum sem gæti hjálpað honum. Babylónía átti sitt velmegunarskeið og sína gullöld, sá tími átti allan hug fólksins, þar gat heldur enginn svarað honum. Jakob fór líka til Haran sem er borg í efri Mesopótamíu þar sem núna er Tyrkland. Haran var mikil verslunarborg á leiðinni austur vestur en borgin var staðsett milli fljótsins Tigris og Miðjarðarhafsins sem er jú austur af Tigris. Þar hlaut einhver að hafa heyrt eitthvað eða haft spurnir af því hvernig Guð liti út. Borgin var þó í alfaraleið. En allt kom fyrir ekki, enginn gat svarað spurningunni sem hafði gripið huga Jakobs. Hann fór til Ninevah borgar sem staðsett var í landi sem nú er Írak. Jakob hafði heyrt um mikilfeng þeirrar borgar og hann fór líka til Nuzi borgar sem einnig var í Írak. Jakob hafði heyrt um gamlan fræðimann sem fundið hafði þar í jörðu merkilegar töflur eða plötur úr leir sem á voru letraðar dularfullar sögur. Jakob og fræðimaðurinn gamli lögðust yfir töflurnar en fundu ekkert sem gat svarað spurningunni um Guð, hvernig hann liti út. Að lokum fór Jakob til borgarinnar Jerikó sem var sögð elsta borg í heimi staðsett við ána Jórdan í Ísrael. Þar fann hann gamla konu sem kunni sitthvað fyrir sér í stjörnufræði. Hún sagði honum frá skærri stjörnu sem væri staðsett beint yfir lítilli borg suðvestur af Jerikó. Jakob fylltist áhuga þegar gamla konan sagði nafnið á borginni. Hann hafði heyrt um Betlehem, borg Davíðs og að því hafði verið spáð að þar mundi fæðast sérstakur gestur í þennan heim. Jakob fór strax af stað ásamt hjálparmanni sínum til Betlehems, þó það væri áliðið dags og komið kvöld en stjörnunnar lýstu upp himinhvolfið. Og eins og konan hafði sagt var ein stjarna sérstaklega skær. „Förum þang- að sem hún er,“ sagði Jakob við hjálparmann sinn. Þeir fóru upp hæð og niður í dal. Í dalnum voru hellar í klettaveggjum þar sem borgarbúar geymdu kvikfénað sinn. Þar var stjarnan skærust beint yfir einum hellinum. Jakob fór af farskjóta sínum og hljóp við fót að munna hellisins, hann beygði sig og leit inn. Þar voru kona og maður við fóðurstall eða jötu og í henni lá nýfætt barn. Konan horfði á Jakob, hún brosti og sagði: ,,Velkominn ókunni maður, komdu inn til okkar og sjáðu hvernig Guð lítur út”. Sr. Sveinbjörn Einarsson Sr. Sveinbjörn Einarsson Sóknarprestur í Blönduóskirkju Hvernig Guð lítur út ÚTGEFANDI Nýprent ehf. Sauðárkróki Sími 455 7176, feykir@feykir.is RITSTJÓRI & ÁBM. Páll Friðrikssn palli@feykir.is BLAÐAMAÐUR Kristin Sigurrós Einarsdóttir kristin@feykir.is LAUSAPENNAR Óli Arnar Brynjarsson oli@feykir.is FORSÍÐUMYND Óli Arnar Brynjarsson AUGLÝSINGASÖFNUN Sigríður Garðarsdóttir UMBROT & PRENTUN Nýprent ehf. Jólablaðið er prentað í 3600 eintökum og er dreift frítt í öll hús í Skagafirði og í Húna- vatnssýslum. 20 16 Jólin koma... Lovísa Heiðrún Sauðárkróki ... þegar jólaljós sveita Skagafjarðar lýsa upp leiðina heim á Melstað á aðfangadag. Dýrindis bröns borinn á borð í hádeginu ásamt möndlu- graut, síðast en ekki síst þegar þegar dýrin hafa fengið seinni „jóla“gjöf á aðfangadagskvöld áður en klukkurnar hringja inn jólin. Hildur Þóra Magnúsdóttir Ríp Skagafirði ... þegar tvíreykta hangilærið er komið á krókinn í eldhúsinu. Á okkar heimili elska allir að skera sér flís og flís af lærinu alla aðventuna. Annars hringja kirkjuklukkur inn jólin á okkar heimili eins og mörgum klukkan sex á aðfangadag. Jólin mín Þuríður Þorbergsdóttir Glaumbæ í Skagafirði „Ef ég nenni“ besta jólalagið Jólin eru... hinn dá- samlegi tími, þegar fjölskyldan safnast saman, gleðst og fagnar. Hvað kemur þér í jólaskap? Það sem kemur mér í jólaskap er ilmur af kanil og eplum, söng æfingar fyrir aðventu og jól og svo bökunarilmur. Hvað er besta jóla- lagið? Besta jólalagið er, Ef ég nenni, með Helga Björns. Ekki biðja mig að útskýra það nánar, skil það ekki sjálf. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðarnar? Um hátíðirnar finnst mér ómissandi að mæta í messur, syngja jólasálma, hitta fjölskylduna og drekka heitt súkku- laði. Hvaða langar þig í jólagjöf? Mig langar ekki í neitt í jólagjöf (elsku fjölskylda, ekki taka þetta svar alvarlega). Bakar þú fyrir jólin? Ég baka alltaf fyrir jólin, mismikið, en alltaf svolítið. Hver er uppáhalds- smákökusortin þín? Ég á ekki beinlínis uppáhalds smáköku- sort, en baka alltaf mikið af smartíssmá- kökum, uppskriftin er á pokanum sem litlu smartísin eru seld í, ég tvöfalda hins vegar uppskriftina en set bara einfalt af smartísinu og súkku- laðinu. Þetta geymi ég í græna bauknum frá mömmu minni og það er yfirleitt fyrsta verk lítilla handa að gá hvort eitthvað sé í bauknum. Sigrún Svansdóttir Skeiðsfossi ... þegar vinir og vandamenn mæta í skötu á Þorláksmessu en þegar messan byrjar klukkan sex á aðfangadag þá eru þau endanlega komin. Þá finnst mér friður og ró færast yfir alla. Sólveig Pétursdóttir Hofsósi ... klukkan sex á aðfangadagskvöld. Við fjöl- skyldan mætum til messu í kirkjuna okkar og helgi jólanna tekur yfir. Anna Margrét Valgeirsd. Blönduósi ... þegar ég stend við eldavélina og hræri í sósunni og heyri klukkurnar hringja inn jólin á Rás 1. Erling að blanda ölið og Jóhanna að kveikja á kertunum. [Anna er til vinstri á mynd]

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.