Feykir


Feykir - 23.11.2016, Side 16

Feykir - 23.11.2016, Side 16
2 01 61 6 „Jólin eru í hjartanu og verða hátíðleg og góð“ VIÐTAL Kristín Sigurrós Einarsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir og Þórarinn Eymundsson í opnuviðtali jólablaðsins Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur á Sauðárkróki og Þórarinn Eymundsson lektor við Hólaskóla, reiðkennari og tamningamaður, eru bæði Skagfirðingar í húð og hár. Um það leyti sem Sigríður lauk guðfræðinámi gafst þeim tækifæri til að flytja aftur í Skagafjörðinn. Hún hefur þjónað sem sóknarprestur á Sauðárkróki síðustu tíu árin og Þórarinn náð góðum árangri í reiðkennslu og tamningum. Þau eiga þrjú börn á grunnskólaaldri og það er því í mörg horn að líta í lífi og starfi. Feykir heimsótti Sigríði og Þórarinn á heimili þeirra í Barmahlíð skömmu fyrir aðventuna, þar sem spjallað var um starf sóknarprestsins, hestamennskuna, jólahaldið og lífið og tilveruna, yfir lagköku og tebolla. „Við erum bæði Skagfirðingar, borin og barnfædd, austan Vatna og vestan Vatna,“ segja þau aðspurð um upp- runann. Sigga er frá Flatatungu á Kjálka en Tóti frá Saurbæ í hinum forna Lýtingsstaðahreppi. Hún gekk því í Akraskóla en hann í Steinsstaðaskóla en síðar gengu þau bæði í Varmahlíðarskóla, þó ekki á sama tíma. „Við hittumst því lítið í barnaskóla og vorum orðin rígfullorðin þegar við kynntumst fyrir alvöru,“ gantast þau með. Eftir stúdentspróf frá FNV tók Sigga sér árshlé en hóf síðan nám í guðfræði við Háskóla Íslands. Hún segir að það hafi blundað í sér og námið verið ákveðin tilraun. „Eftir að ég byrjaði í skólanum var ég ákveðin í að leggja þetta ekki fyrir mig en svo þráaðist ég við og það endaði með því að ég útskrifaðist,“ rifjar hún upp. Leið Tóta lá einnig í FNV og eftir útskrift þaðan fór hann í Hólaskóla og lauk námi sem reiðkennari. Seinna bætti hann við sig kennsluréttindanámi við Háskólann á Akureyri. Um það leiti sem Sigga lauk guð- fræðináminu bauðst Tóta staða reið- kennara við Hólaskóla og þar var hann í fullu starfi í tíu ár en minnkaði svo við sig í hlutastarf. Þau fluttu því í Hóla haustið 2002, þegar hún átti aðeins lokaritgerðina eftir og von var á fyrsta barninu. Börnin eru þrjú; Eymundur Ás 14 ára, Þórgunnur 11 ára og Hjördís Halla 6 ára og eru þau öll í Árskóla. Á Hólum bjó fjölskyldan í þrjú ár en flutti síðan á Sauðárkrók haustið 2005. Segja þau ýmislegt hafa komið til að þau ákváðu að flytja þangað, einkum þó fötlun Eymundar, en hann er með taugasjúkdóm sem heitir SMA og er því alveg bundinn við hjólastól. „Kringum jólin 2003, þegar hann var rúmlega eins árs, fóru að renna á mann tvær grímur, að það væri kannski ekki allt með felldu,“ segir Tóti. „Hann fór ekki að ganga eins og önnur börn og það var eitthvað bogið við það,“ útskýrir Sigga. „Við sáum fram á að hann þyrfti mikla aðstoð og það var ekki boðlegt að keyra með ungt barn, flesta daga, í ýmiskonar þjálfun.“ Á Hólum starfaði Sigga hjá vígslu- biskupnum, sem þá var sr. Jón Aðal- steinn Baldvinsson og fólst starfið m.a. í kirkjuvörslu. Árið 2006 fór svo sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir, þáverandi sóknarprestur á Sauðárkróki, í námsleyfi. „Það stóð nú svo einkennilega á að það var auglýst eftir presti til afleysinga. Ég sótti um, þó ég væri ekki orðin prestur, og reyndist vera eini umsækjandinn. Ég fékk svo vígslu til Sauðárkróks haustið 2006,“ segir hún. Leysti hún Guðbjörgu af til vors, er hún kom úr leyfi, en fljótlega sagði Guðbjörg embættinu lausu og hefur Sigga því gegnt því samfleytt frá 1. ágúst 2007. „Í millitíðinni var ég þrjá mánuði að leysa af á Siglufirði, sem var mjög ánægjulegt, gaman að kynnast líka öðrum söfnuði,“ segir hún. Tímafrekt að ná árangri í hestamennskunni „Ég er með tamningastöð hér í hest- húsahverfinu og er með starfsmann þar. Auk þess er ég að vinna sjálfstætt sem reiðkennari út um hvippinn og hvappinn,“ segir Tóti. Hann heldur námskeið og býður upp á einkakennslu, m.a. í Svíþjóð, Þýskalandi eða Hollandi og er oftast 3-4 daga í einu. Nemendur eru eigendur íslenska hestsins ytra. Eftirspurnin er mikil og segir Tóti að hann gæti verið „í ferðatösku allt árið,“ til að sinna henni. „Það opnast ákveðinn gluggi þegar maður er að keppa á mótum erlendis, það er ákveðin auglýsing, en síðan spyrst orðsporið út,“ útskýrir hann. Fram kemur að margir sem eru með íslenska hesta erlendis séu einnig með ræktum í smáum stíl hér á landi og nefnir Tóti sem dæmi tvenn hjón í Hegranesi, annars vegar í Prestbæ og hins vegar á Hellulandi.“ Það verður ekki rætt við skagfirska hestamenn án þess að spyrja hvað þeir eigi marga hesta. Tóti beinir spurning- unni áfram til konu sinnar og komast þau að þeirri niðurstöðu að þau eigi svona 15- 20 hross, sem Sigga segir sum hver vera séreign eiginmannsins. Hún segist þó „dingla með“ í hestamennskunni, eftir því sem tími gefst til og fara þau meðal annars í árlega hestaferð með vinafólki. „Hestarnir taka náttúrulega mjög mikinn tíma, enda eru þeir ekki bara vinnan, heldur líka helsta áhugamálið,“ segir Tóti og Sigga skýtur því inn í að þetta sé lífsstíll. „Það vita það allir sem stunda hestamennsku að það er mjög tímafrekt að ná árangri. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa og skemmst er að minnast knapaverðlauna sem Tóti sópaði nýlega að sér á uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Skagfirðings. Þýðir ekki að missa sig í smáatriðin „Það er góð spurning,“ segir Sigga, aðspurð um hvað hún geri þegar hún er ekki í vinnunni. „Ég er nú oftast eitthvað að snúast í kringum börnin en svo finnst mér voðalega gott að lesa góða bók endrum og eins og að fara í göngutúr. Einnig hef ég lengi verið í saumaklúbb með gömlum vinkonum mínum úr sveitinni og það er hressandi,“ 2 11

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.