Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 18
2 01 61 8
segir Tóti. Sigga segist oft fá aukna orku
við það að messa, aðalmálið sé að vera
vel undirbúin. Messurnar á jóladag eru í
Sauðárkrókskirkju og á Dvalarheimilinu
en á annan í jólum er messað á Skaga,
til skiptis í Ketukirkju og Hvammskirkju.
Stöku sinnum hefur þó orðið messufall
vegna veðurs en Sigga kveðst góðu heilli
aldrei hafa lent í neinum hremmingum
við að komast til kirkju. Messurnar eru
því sex á þremur dögum, auk þess sem
margir kjósa að láta skíra eða gifta sig
um jólin. Þrátt fyrir annirnar segist
Sigga fara í fjölskylduboð milli jóla og
nýárs, þó hún nái því sjaldnast á jóladag.
„Um áramótin er messað klukkan sex á
gamlársdag og þá er ég komin í frí það
sem eftir er árs,“ segir hún.
Gerir vel við hestana um jólin
„Ég segi nú oft við fólk að það séu bara
letingjar sem fara í jólafrí,“ segir Sigga
og enn er stutt í hláturinn. Ég held að ég
myndi ekki kunna að vera í fríi um jólin,
því helgihaldið og það að vera í kirkjunni
er svo stór hluti af minni persónulegu
jólahátíð“ segir Sigga og bætir við að hún
hafi verið vön því frá barnæsku að alltaf
væri farið til kirkju þegar messað var í
sveitinni. „Þetta voru nokkur viðbrigði
fyrir mig að búa með uppteknum presti
yfir jólin en að vísu er ég alinn upp í
sveit og tók mjaltirnar á aðfangadag með
pabba, meðan mamma var inni að græja
matinn. En það er eins með dýrin og
prestsstarfið, það þarf að sinna hlutunum
burt séð frá því hvaða dagur eða tími er,“
segir Tóti. „Mér finnst gaman að gera vel
við hestana á jólunum og ein af mínum
uppáhaldsstundum er þegar ég er búin
að gefa og hlusta á hestana tyggja í takt.
Á jólum finnst manni það vera aðeins
öðruvísi, eitthvað sérstakt í loftinu.“
Að lokum innir blaðamaður prestinn
eftir skemmtilegum sögum úr starfinu.
Tóti rifjar upp að einhvern tímann hafi
komið skrítinn svipur á konuna þegar
ruglingur hafi orðið á messuskránni á
milli organista og sóknarprests. Sjálf
segist hún ekki luma á neinni gamansögu
sem hafandi er eftir en kímir þó og segir
að nýlega hafi hún verið spurð að því
af eldri manni hvort kvenprestar þyrftu
ekki að vera í lopabrók undir skrúðanum
þegar verið væri að messa á veturna.
„Það er alltaf skemmtilegt að geta séð
spaugilegar hliðar á hlutunum. Ég held að
Guð hafi skapað manninn með húmor,
til þess að hann lifði af. En prestar eru
ekki skemmtikraftar, þó húmorinn geti
vissulega hjálpað í erfiðum aðstæðum
og samskiptum almennt,“ segir Sigga að
lokum.
Tóti og Sigga. MYND: KSE
Vredestein eru
hágæða vetrardekk
sem til er í flestum stærðum
fólksbíla, jepplinga og sendibíla.
Leitið tilboða hjá sölufólki okkar
Bílaverkstæði
Sími 455-4570
Hönnuð til að vernda þig
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Snowtrac Wintrac ComTrac Ice
Arctrac
Vredestein eru
hágæða vetrardekk
sem til er í flestum stærðum
fólksbíla, jepplinga og sendibíla.
Leitið tilboða hjá sölufólki okkar
Bílaverkstæði
Sími 455-4570
Hönnuð til að vernda þig
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Snowtrac Wintrac ComTrac Ice
Arctrac
Vredestein eru
hágæða vetrardekk
sem til er í flestum stærðum
fólksbíla, jepplinga og sendibíla.
Leitið tilboða hjá sölufólki okkar
Bílaverkstæði
Sími 455-4570
Hönnuð til að vernda þig
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Snowtrac Wintrac ComTrac Ice
Arctrac
Vredestein eru
hágæða vetrardekk
sem til er í flestum stærðum
fólksbíla, jepplinga og sendibíla.
Leitið tilboða hjá sölufólki okkar
Bílaverkstæði
Sími 455-4570
Hönnuð til að vernda þig
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Snowtrac Wintrac ComTrac Ice
Arctrac
JÓ
LA
FE
YK
IR
2
01
6
Guðjón Sigurðsson, bakarameistari á Sauð-
árkróki, var léttur í lund og ekki hár í loftinu,
eða 1,59 eins og hann sagði sjálfur.
Einhverju sinni mun hann hafa farið niður
í kjallara í bakaríinu en rekið sig upp undir
og meitt sig lítilsháttar á skallanum. Er hann
kom upp strauk hann yfir höfuðið á sér, leit
á blóðið og mælti:
„Mikil lifandis skelfing var þetta dásamlegt.
Það eru mínar sælustu stundir þegar ég rek
mig upp undir.“
- - - - -
Eitt sinn gekk yfir landið skæð flensa sem
manna í millum var gjarnan kölluð norræna
flensan. Þá lágu heilu byggðarlögin í flensu-
pest og fór Sauðárkrókur ekki varhluta af
því.
Guðjón bakari átti erindi á bæjarskrifstofuna
en þar voru bara tvær konur uppstandandi.
Önnur spurði Guðjón:
„Hvernig er þetta með þig, hefur þú alveg
sloppið við flensuna, Guðjón minn?“
„Já,“ svaraði hann að bragði, „hún liggur í
1 og 60.“
Tvær skagfirskar skemmtisögur