Feykir


Feykir - 23.11.2016, Page 25

Feykir - 23.11.2016, Page 25
2 52 01 6 Hálsbindi úr fiskiroði Íslenskt hráefni og hönnun Handunnin vara Einstök vara jey.is facebook: J.EY jeyhonnun@gmail.com Eftirlæti Aðalgötu 4 Skr. J.EY hönnun Endalaust fjör! Skagfirskar skemmtisögur í fimmta sinn FIMMTA BINDIÐ af Skag- firskum skemmtisögum hefur litið dagsins ljós hjá Bókaútgáfunni Hólum. Sem fyrr er það Skag- firðingurinn og blaða- maðurinn Björn Jóhann Björnsson sem tekur sögurnar saman. Þær eru orðnar vel á annað þúsund í bindunum fimm og hafa að geyma óborganlegar sögur af Skagfirðing- um til sjós og lands, allt frá ofanverð- um miðöldum til dagsins í dag. Hafa bækurnar hlotið fádæma viðtökur um allt land, ekki bara í Skagafirði, og verið ofarlega á metsölu- listum bókaverslana. Að þessu sinni eru um 200 sögur héðan og þaðan úr Skagafirði, allt frá Fljótum í norðri til Akrahrepps í suðri. Króksarar fyrr og nú koma mikið við sögu, sem og Hofsósingar og nærsveitamenn. Sagt er frá ævin- týralegum hestaviðskiptum við Stebba á Keldulandi og birt smá- sagan Raunir á Reyðarskeri. Í blaðinu er að finna hér og hvar sögur úr bókinni sem höfundur veitti góðfúslegt leyfi til að birta. /PF Afmælisgestir studdu við útgáfuna Flygildi er ljóðabók eftir Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur MÓHEIÐUR HLÍF Geirlaugsdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu ljóða- bók, Flygildi. Móheiður er dóttir Geirlaugs Magnússonar skálds sem kenndi við FNV á Sauðárkróki í rúm 20 ár. Hún dvaldi því oft á Sauðárkróki hjá föður sínum. „Ég hugsa oft til pabba og hann verður alltaf hluti af mér,“ sagði hún, þegar blaðamaður Feykis sló á þráðinn til hennar. Móheiður segist hafa ort ljóð frá unga aldri. „Þetta eru að hluta til ljóð sem ég átti og var búin að dútla við lengi,“ segir Móheiður, aðspurð um tilurð bókarinnar. „Þetta eru frekar persónuleg ljóð Ég ætlaði ekkert endilega að gefa þau út en svo var ég hvött til þess og sló til, segir hún, en í stórafmæli, sem hún hélt nýlega upp á, voru gjafir afþakkaðar, en gestir gátu stutt við útgáfu bókarinnar. /KSE SAUÐÁRKRÓKUR litla fjallið var okkar svo óendanlega stórt þegar litla höndin mín passaði svo vel í þína stóru örugg gengum við upp til að sjá allan heiminn í einu þorpi gekkstu með mér upp þar sem hinir dauðu voru nær himnum og við nær hröfnunum Móheiður ásamt Geirlaugi pabba sínum. Bjart er yfir bænum undir Nöfum bregður ljósi á ísilagða gljá. Gömul minning grafin máðum stöfum gengnar myndir aftur fara á stjá. Gatan okkar gæfu lagði inn góðir vinir léku sérhvern dag. Á aðventunni eftirsjá ég finn allt er nú með öðruvísi brag. Dagar stuttir dregur senn að óttu daprast sýn á það sem þegar höfum. Lýsir okkur leið á dimmri nóttu ljósakross á snæviþöktum Nöfum. Guðmundur Sveinsson Þankabrot á aðventu Gullkorn barnanna í Tröllaborg – Sjá nánar á bls. 33 Lítil stúlka stóð á stól í leikskólanum og sagði: Ég stend á Guði Leikskólakennarinn: Af hverju segir þú það? S: Nú hann er allstaðar. Þegar fjögurra ára drengur kom heim af leikskólanum spurði pabbi hans: Hvað varstu að gera á leikskólanum í dag? D: Ég fór út þrisvar sinnum. P: Gerðirðu eitthvað fleira? D: Já ég fór þrisvar sinnum inn. „Ég stend á Guði“ Gleymdu ekki hárinu fyrir jólin Er farin að taka niður tímapantanir fyrir jól Fjölbreytt úrval af gæða hársnyrtivörum í harða pakkann á góðu verði. Útbý gjafabréf að vali hvers og eins. Verid velkomin Hrönn Kúnst óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir viðskiptin í 26 ár.AÐALGATA 9 - S: 453 5131

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.