Feykir


Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 30

Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 30
2 01 63 0 Sólveig Birna fór til Afríku til að sinna sjálfboðaliðastörfum Fyrir skömmu sögðum við frá veru Sólveigar Birnu Halldórsdóttur í Suður-Afríku þar sem hún vinnur sem sjálfboðaliði í barnaathvarfi. Hana langaði til að halda litlu-jól fyrir börnin sem fæst hafa upplifað jól eins og við þekkjum þau. Sólveig hafði samband við fyrirtæki í Skagafirði og óskaði eftir styrkjum til að kaupa jólagjafir handa börnunum sem sum hver hafa aldrei fengið á sinni ævi. Sólveig segir að hún hafi hvarvetna fengið góð viðbrögð ekki síst frá einstaklingum. Sólveig Birna er 19 ára Skagfirðingur, dóttir Halldórs Gestssonar og Elísabetar Sóleyjar Stefánsdóttur sem þekkt var fyrir skrif sín á Innihalds.is og baráttu sína gegn einelti. Sólveig segir að þegar mamma hennar lést á seinasta ári hafi hún áttað sig á því að hún ætti að láta drauminn rætast um að ferðast. „Ég elska að ferðast og ef ég fer í að bóka ferð til útlanda er ég yfirleitt með tvær, þrjár utanlandsferðir í huga. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara núna, svona ung, og áður en ég menntaði VIÐTAL Páll Friðriksson mig, var held ég bara sú að lífið er stutt og mig hefur alltaf langað að fara í sjálfboðastarf einhverstaðar útí heimi,“ segir Sólveig en þær mæðgur ræddu þessa hluti oft. Hún segir að mamma sín hafi lengi vitað að hana langaði að gera þessa hluti „Ég held að hún sé mjög stolt af mér núna,“ segir hún íbyggin. Hún hefur dvalið í Afríku síðan 1. september og segist hafa kynnst sínum bestu vinkonum til lífstíðar og mun efalaust hitta þá aftur í framtíðinni. „Ég valdi sjálfboðastarf með börnum hérna í Afríku og þetta er besta ákvörðun lífs míns. Vinnan byrjar kl 8:30 en þá fer ég á barnaheimili Siyakhulisa, þar eru börn frá aldrinum átta mánaða til fimm ára. Sum þeirra tala góða ensku önnur ekki. Það sem ég geri á barnaheimilinu er að syngja með þeim, lesa sögu, kenna þeim stafrófið og margt fleira. Eftir hádegi förum við svo í prógramm sem kallað er Ubuntu. Krakkar koma þangað eftir skóla, á öruggan stað, og fá að borða og leika sér saman. Þessir krakkar koma öll frá mjög erfiðum heimilum. Fæst þeirra eiga foreldra en önnur eiga foreldra sem eiga við áfengisvandamál að stríða eða eru dópistar,“ segir Sól- veig en erfiðast þykir henni að horfa uppá sársaukann sem hún sér hjá krökkunum. „Mörg þeirra eiga foreldra sem berja og meiða börnin sín, og það er svo lítið sem maður getur gert. Maður vill geta gert allt til að hjálpa þeim en það er erfiðara en það hljómar. En þá geta þessir krakkar komið í Ubuntu á öruggan stað, fengið sér að borða og leikið sér saman.“ Hverfið sem Sólveig vinnur í heitir Masiphumelele. Hún segir að þar hjálpist allir að, skiptist á fötum og mat og deili því sem þeir eiga. „Þetta hverfi er rosalega fátækt og búið til úr málmplötum og litlum tréspýtum. Fyrir nokkrum vikum brann lítið hús hérna í hverfinu sem 15 fjölskyldur bjuggu í og bókstaflega allt brann. Þá komu nágrannarnir til hjálpar og leyfðu þeim að búa hjá sér. Við sjálfboðaliðarnir gáfum þeim föt og aðrir mat. Þetta er dæmi um hvernig fólkið í Masiphumelele tekur á hlutunum. Hverfið getur einnig verið mjög hættulegt fyrir okkur sem ekki búum í því. Íbúarnir líta á okkur sem ríkt fólk og fylgist með ef við erum með síma eða peninga og þeir hlaupa á eftir því. Þess vegna verður maður að passa allt mjög vel,“ segir Sólveig Birna að lokum. Sólveig Birna á ströndinni með krökkum frá Ubuntu. MYND: ÚR EINKASAFNI Heldur litlu-jól fyrir fátæk börn Eins og segir í inngangi greinarinnar hafði Sólveig samband við fyrirtæki í Skagafirði og óskaði eftir styrkjum til að kaupa jólagjafir handa börnunum. Einnig vakti frétt á Feyki sterk viðbrögð einstaklinga sem vildu taka þátt í verkefninu. „Söfnunin gekk mjög vel. Margt fólk sem ég þekkti ekkert hafði samband við mig og vildi styrkja, sem mér þykir svo rosalega vænt um. Við munum halda litlu jólin 24. nóvember og ætlum að bjóða öllum krökkunum sem hafa verið að mæta í prógrammið í Ubuntu. Við munum syngja jólalög og borða smákökur sem sjálfboðaliðarnir baka og svo opnum við jólagjafirnar. Og þökk sé öllum þeim Íslendingunum sem styrktu verkefnið, munu krakkarnir fá jólagjafir.“ Þennan sama dag mun Sólveig kveðja börnin og samstarfsfólkið þar sem hún fer til Jóhannesarborgar í annað sjálfboðastarf en þá með dýrum. Hún segist kveðja með söknuði krakkana í Ubuntu en um leið er hún spennt fyrir nýju ævintýri. „Svo kem ég heim á Sauðárkrók korter í jól eða 20. desember.“ Litlu jólin í Ubuntu Guðrún á Mælifelli heldur áfram að rifja upp gamla tíma Á meðan ég man – atburðir ævi minnar, 2. bindi „FRÁ BARNSALDRI HEFI ég ætlað að rita minningar mínar og þess vegna geymt öll mín bréf og önnur skjöl. Það var líka vani heima í Ási við Sólvallagötu að varðveita gögn. Þar átti afi líka heima hjá okkur fjölskyldunni, jafnvel við hjá honum fyrst í stað, en hann var fyrsti tengiliður minn við Skagafjörðinn, fæddur í Glæsibæ í Víkurtorfu og alinn upp á Neðra Ási í Hjaltadal. Sigurbjörn Á. Gíslason hét hann og voru foreldrar hans af gömlum skagfirskum ættum,“ segir Guðrún L. Ásgeirsdóttir fyrrum maddama á Mælifelli í Lýtingsstaðarhreppi. Hún sendir frá sér annað bindið af æviminningum sínum fyrir þessi jól. Í þessu bindi tekur prestsetrið þeirra Guðrúnar og Ágústs Sigurðssonar fyrrum prests á Mælifelli í Skagafirði stóran hluta af rýminu, en í lokin segir frá árum fjölskyldunnar í Húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn. Bókin er eingöngu seld hjá höfundi, en í Skagafirði á jólamarkaði Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps í Árgarði sunnudaginn 4. desember. Bókin er 272 bls. og hana prýða á þriðja hundrað myndir, flest litmyndir. 10 ára útgáfuafmæli Gísli Þór með safnljóðabók UM ÞESSAR MUNDIR fagnar Gísli Þór Ólafsson 10 ára útgáfuafmæli, en hans fyrsta ljóðabók, Harmonikkublús, kom út árið 2006. Í kjölfarið komu út fjórar ljóðabækur og fjórir hljómdiskar. Í bókinni,sem nefnist Safnljóð 2006-2016, er úrval ljóða og texta úr bókunum og af hjómdiskunum. „Í tilefni af afmælinu og útgáfunni, er söfnun í gangi á karolinafund.com, en þar má styðja verkefnið og fá bók í staðinn. Einnig eru allar bækurnar í boði, sem og allar bækurnar og allir diskarnir,“ segir Gísli en verkefnið má kynna sér betur á https://www. karolinafund.com/project/ view/1567 Ljóð úr fyrstu bók Gísla, Harmonikkublús: Ást á suðurpólnum Hve oft ætli mörgæsir hafi séð þig sveitta ofan á mér er við nutum ásta á suðurpólnum í engu nema vettlingum Maggi Sig., pabbi Lellu hans Guðmundar á Borginni, var lærður húsasmíðameistari og lengi verkstjóri hjá trésmíðaverkstæði KS. Einhverju sinni pantaði maður á Hofsósi glugga í hús sem hann var að byggja. Maggi fór á staðinn og tók mál fyrir gluggunum, smíðaði þá og sendi yfir í Hofsós. Stuttu seinna kom maðurinn inn á Krók og vatt sér inn á verkstæðisgólf til Magga, alveg brjálaður, hundskammaði hann og sagði að gluggarnir væru of litlir. „Hvað segirðu,“ sagði Maggi steinhissa, „og ég sem hélt að þeir væru of stórir!“ Ein lauflétt skagfirsk skemmtisaga

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.