Feykir - 23.11.2016, Page 35
3 52 01 6
Sími: 453 5481
Sæmundargata 1, Sauðárkróki
Jól
2016
Jólatilboð
á heimillistækjum
frá Bosch og Siemens
Eyþór sefur ekki í
draumheldum náttfötum
Skáldið frá Uppsölum fer víða í nýrri ljóðabók
ÉG SEF EKKi í
draumheldum
náttfötum er
fjórða ljóðabók
Eyþórs Árnasonar
frá Uppsölum
í Skagafirði. Í
þessari bók fer
hann um og
skoðar ýmsar styttur og minnismerki.
Bregður sér auðvitað norður í
land, lítur við í Vatnsdal, stoppar á
Vatnsskarði og hugar að Konráði
frænda á Löngumýri. Fer svo suður
aftur og endar á bekk við Tjörnina
en þar situr Tómas Guðmundsson
alla daga og fylgist með borginni
sinni. Síðan eru inn á milli í bókinni
tímalausir draumar um allt og
ekkert... /PF
Viðsjárverðir tímar
Ég er alltaf hræddur um að missa
heitu næturdraumana frá mér
því ég sef ekki í draumheldum
náttfötum
Reyni samt að fanga þá
í morgunmöskvana
og fela innanklæða á daginn
Heyri þá vella í brjóstinu
En nú sækja bláköldu
dagdraumarnir fram
með offorsi
Ég steypi yfir mig
brynju úr álfasilki
og bregð sverðinu.
Hressilegar persónur
og dularfull morð
Hildur Sif Thorarensen sendir frá sér sína fyrstu bók
HILDUR SIF
THORARENSEN,
ættuð frá Hrauni
á Skaga, hefur
sent frá sér
sína fyrstu bók,
spennusöguna
Einfara sem
bókaútgáfan
Óðinsauga gefur út. „Amma mín,
sem ól mig að mestu upp, er fædd
og uppalin á Hrauni og stór hluti
fjölskyldunnar minnar býr enn fyrir
norðan. Ég hef því sterka tengingu
norður og eyddi nokkrum sumrum á
Reynistað þar sem ég gaf kálfunum,
hljóp upp Bjarnhnöttin og veiddi síli,“
sagði Hildur Sif, þegar Feykir hafði
samband við hana og forvitnaðist um
hina nýju bók.
Hildur Sif er verkfræðingur að
mennt en er í dag við læknanám í
Osló. Það hafði lengi blundað í henni
að skrifa bók. „Ég hafði oftar en einu
sinni byrjað en þar sem ég sat með
medisinsk statistikk fyrir framan mig
og var að stauta gegnum illskiljanlegt
hrognamál til að undirbúa mig fyrir
læknanámið, fór vinur minn að spjalla
við mig á Facebook og samtalið barst
að franskri stúlku sem hann átti í
sambandi við og vildi meina að væri
vampíra,“ segir Hildur.
Án þess að gefa of mikið upp um
söguþráð bókarinnar varð franska
stúlkan aukapersóna í bókinni.
Sögusviðið er Osló og fjallar bókin
um skemmtilegar og hressilegar
persónur sem þurfa að kljást við
dularfull og hryllileg morð og illa
innrætta morðingja. Verður bókin
kynnt á Iceland Noir í nóvember, þar
sem Hildur Sif verður ein af þeim nýju
höfundum sem þar taka þátt. /KSE
Jólin mín
Þorgils Heiðar Pálsson Hofsósi
Útrými mömmukossunum alltaf fyrst
Jólin eru... á hverju ári.
Hvað kemur þér í jólaskap? Áður fyrr voru
það smákökur og jólatónlist, núna duga
nokkrir góðir jólabjórar.
Hvað er besta jólalagið? Fairytale of New
York.
Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir
hátíðarnar? Það er alveg ómissandi að
lesa góðar bækur og síðan jólaboðin með
fjölskyldunni.
Hvaða langar þig í jólagjöf? Góð bók er
vel þegin.
Bakar þú fyrir jólin? Voða lítið.
Hver er uppáhaldssmákökusortin þín? Ég
útrými mömmukossunum alltaf fyrst.
Gleðileg jól
& farsælt komandi ár.
Takk fyrir árið sem er að líða.
Byggðasafn Skagfirðinga og Áskaffi
öll miðvikudagskvöld kl. 21 á aðventunni
fram að jólum. Heitt kakó, jólate og smákökur.
Núvitund Hugarró Vellíðan
Aðventuflot og nudd
Bóka á booking@infinityblue.is eða 867-2216
Flot 3500kr / Flot og nudd 7500 kr.
Þorgerður Þórhalls nuddar þig
meðan þú ert umlukin heitu vatni.
Jólagjöfina færðu hjá okkur, gjafabréfin góðu eða flothettusett 16.500 kr.
Aðdragandi jólanna er skemmtilegur
tími, tími til að njóta.
Slakaðu á í amstri jólanna.