Feykir - 18.04.2013, Blaðsíða 12
12 Feykir 15/2013
REGNBOGINN JÓN BJARNASON SKRIFAR
„Að elska- byggja og treysta á landið“
Regnboginn eru samtök
fólks, sem býður fram til
baráttu fyrir því að halda
sjálfstæði og fullveldi
þjóðarinnar, fyrir sjálfbæra
þróun og náttúruvernd. Við
leggjum áherslu á jafnrétti
fólks óháð búsetu, bætt
lífskjör almennings,
mannréttindi og
félagshyggju.
Við viljum að fullveldi Íslands
sé tryggt. Sjálfstæði þjóðarinnar
er ekki leikfang eða skiptimynt
í samskiptum við erlend stór-
veldi eða ríkjasambönd.
ESB - Hættuspil
Aðildarviðræður við ESB
hófust án vilja þjóðarinnar.
Brýnt er að stöðva aðlögunar-
ferlið að ESB og afturkalla
umsóknina. Annað er leikur að
eldi. Fulltrúar ESB hafa ítrekað
lýst því yfir að ekki verði um
neinar varanlegar undanþágur
af þeirra hálfu frá lögum og
reglum ESB. Aðeins er hægt að
fá tímabundna aðlögun. Minna
þeir á að það var Ísland sem
sótti um aðild að ESB en ekki
öfugt. Að sjálfssögðu vill ESB
ná tangarhaldi á auðlindum
okkar, fiskimiðunum, orkunni
og fá gegnum Ísland aðgang að
Norðurhöfum. Menn geta velt
því fyrir sé hve mikið kæmi í
okkar hlut af makríl ef ESB réði
þar eitt málum.
Í samskiptum við aðrar
þjóðir gerum við tvíhliða
samninga á okkar eigin
forsendum. Gildir það jafnt um
einstök lönd og ríkjasambönd
eins og ESB. ESB viðræðurnar
hafa tekið til sín tíma, afl og
fjármuni og tafið fyrir
endurreisn og uppbyggingu
atvinnulífs eftir hrun. Rekinn
hefur verið áróður fyrir því að
fólk bíði eftir „jólapökkum“ frá
útlöndum. Þeim blekkingarleik
þarf að linna.
Sterkustu hné
geta bognað
Ég hef reynt það á síðustu árum
að hin sterkustu hné bogna
fyrir erlendu valdi og þrýstingi.
Þetta hefur átt sér stað víða í
samfélaginu en einnig á Alþingi
þegar samþykkt var að sækja
um aðild að Evrópusamband-
inu. Í þeirri atkvæðagreiðslu
bognuðu hné sem margir héldu
sterkust fyrir. Á Alþingi eru það
fyrst og síðast einstaklingarnir
en ekki flokkar sem þjóðin
velur sem ráða úrslitum með
atkvæði sínu.
Afstaða mín og barátta gegn
umsókn og aðild að ESB er
öllum kunn. Flokkarnir sem nú
bjóða fram eru annaðhvort ESB
sinnaðir eða forðast að ræða
þetta stærsta mál þjóðarinnar
nú í aðdraganda kosninga. Þótt
einstakir þingmenn eða
frambjóðendur annarra flokka
tali fjálglega um persónulega
andstöðu sína eru innan þeirra
raða einstaklingar sem hafa
stutt aðlögunarviðræður að
ESB til þessa.
„Sjálfstæðið er sívirk auð-
lind“ heitir bók Ragnars
Arnalds fyrrverandi alþingis-
manns og ráðherra sem skrifuð
var til varnar og sóknar fyrir
fullveldi Íslands og sjálfstæði en
gegn umsókn og aðild að
Evrópusambandinu.
Stöndum keik og
treystum á okkur sjálf
Við eigum mikla sóknarmögu-
leika í okkar eigin auðlindum,
fólkinu, hugviti, sögu og
menningu, sjávarútvegi, land-
búnaði og matvælavinnslu,
ferðaþjónustu sem og fjöl-
breyttri ósnortinni náttúru svo
nokkuð sé talið. Þar standa
Skagafjörður og Húnavatns-
sýslur sterkt. Sækjum aftur
skerðinguna á heilbrigðisþjón-
ustunni og stöndum vörð um
grunnstoðir samfélagsins ekki
síst hinna dreifðu byggða.
-Væri ekki nær að þeir
milljarðar sem nú er varið til
ESB umsóknar færu þess í stað
til fjársvelts heilbrigðiskerfis?
Góðir Skagfirðingar
og Húnvetningar
Við skulum treysta og trúa á
okkur sjálf eins og við höfum
gert um aldir og byggjum upp
samskipti við aðrar þjóðir með
gagnkvæmum tvíhliða samn-
ingum.
Ég býð mig fram fyrir sömu
gildi og ég hef ávalt staðið fyrir.
Stjórnmál snúast um traust. Ég
bið um þinn stuðning
Jón Bjarnason
Höfundur er alþingismaður og fyrrv.
sjávar- og landbúnaðarráðherra og skipar
fyrsta sæti Regnbogans í NV-kjördæmi
Jón Bjarnason
oddviti Regnbogans
Leikfélag Sauðárkróks
sýnir í Sæluviku nýtt
leikrit, samið með lög
Geirmundar Valtýssonar í
huga, sem fengið hefur
nafnið Tifar tímans hjól.
Stjórn LS fékk
heimamennina Guðbrand
Ægi Ásbjörnsson og Árna
Gunnarsson til að setja
verkið saman og samdi
Geirmundur eitt lag
sérstaklega fyrir leikritið.
Leikstjóri er Guðbrandur
Ægir.
Tifar tímans hjól er á
léttu nótunum með
skemmtilegum söngvum
sem spinnast saman við
söguþráðinn en þar segir
frá fjölskyldu úti á landi,
sigrum hennar og sorgum.
Tónlist er ríkur þáttur í lífi
hennar og ekki síst í lífi
aðalpersónunnar sem er
annar sonurinn á heimilinu.
Hann kynnist böllunum,
ástinni og sorginni. Hann
flyst til til höfuðborgarinnar,
kynnist kostum hennar og
göllum og kemst að því að
grasið er ekki alltaf grænna
hinumegin.
Hópurinn er stór sem
kemur að uppsetningu
leikfélagsins að þessu sinni
en alls yfir sextíu manns
sinna hinum ýmsum
störfum og af þeim eru um
þrjátíu leikarar sem eru í
hlutverkum. Á svið eru nú
ungir drengir að stíga sín
fyrstu spor með Leikfélagi
Sauðárkróks en einnig
koma gamalreyndir leikarar
við sögu. Tifar tímans hjól
verður frumsýnt í upphafi
Sæluviku þann 28. apríl nk.
/PF
Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks
Tifar
tímans hjól
Fjöldinn allur af leikurum og starfsmönnum koma að sýningunni – hér er hluti af þeim.