Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 19
Í ritgerð sinni „Prentfrelsi og nafn-leynd“ í Úlfljóti 1969 lýsir Ólafur Jóhannesson, lagaprófessor og síðar forsætisráðherra, þeirri skoðun að blaðamenn og heimildarmenn þeirra njóti nafnleyndar að lögum. Nöfn heimildarmanna eru vernduð á þeirri forsendu að tjáningarfrelsi blaðamanna væri einskis virði án nafnleyndar eða nafnleyndarskyldu. Um ritfrelsi blaðamanna segir Ólafur: „Sé prentfrelsi ... takmarkað er lýð- ræðið í hættu. Prentfrelsi má því með réttu kallast einn af hyrningarsteinum stjórnfrjálsra þjóðfélaga.“ Ólafur Jóhannesson minnir á að í Svíþjóð njóti prentréttarlöggjöf vernd- ar í stjórnarskrá. Á Íslandi sé þetta hins vegar undir almennri löggjöf komið en fyrst og fremst prentlögum og meiðyrðalöggjöf. Almenna reglan hér heima virðist vera sú að höfundi prentaðs máls (eða ónefndum heim- ildarmanni) sé óskylt að nafngreina sig. „Blöð gegna mikilvægu hlutverki í lýðræðislandi,“ segir Ólafur í grein sinni. „Þau eiga að vera frjálsir frétta- miðlar, halda uppi gagnrýni á því, sem miður fer í þjóðfélaginu, og veita stjórnvöldum og öðrum forráða- mönnum aðhald. Góð blöð eiga að leita sannleikans og segja hann, þegar við á, hver sem á í hlut.“ Ólafur heldur áfram: „Nafnleyndar- réttur á ekki aðeins að taka til greina sem ritaðar eru í blað, heldur og til þeirra heimildarmanna blaðamanna, er gefa þeim munnlegar upplýsingar. Hér á ekki aðeins að vera um rétt að ræða heldur og skyldu til leyndar.“ (bls. 309 -322). Frjáls fjölmiðlun hvílir á trúnaðar- sambandi blaðamanna og heim- ildarmanna þeirra. Þetta samband tryggir m.a. tjáningarfrelsið. Þess vegna kveður nýja stjórnarskráin sem Alþingi á enn eftir að staðfesta á um vernd blaðamanna, heimildar- manna og uppljóstrara í stjórnarskrá. Orðið „uppljóstrari“ kemur fyrst fyrir í Klausturpóstinum á ofanverðri 19. öld og er nú notað um þá sem afhjúpa óheiðarlega eða ólöglega háttsemi. Orðið rataði inn í frumvarpið skv. ábendingu frá sérfræðingi sem benti á að slæleg vernd uppljóstrara leiddi iðulega til óheilbrigðrar leyndar um ýmis mikilvæg þjóðmál. Bandaríski hæstaréttardómarinn Louis Brandeis 1916-1939 orðaði sömu hugsun vel: „Birta … er bezta sótthreinsunarlyfið.“ Réttur blaðamanna til að leyna heimildum sínum og heimildarmönn- um er annars eðlis en þagnarskylda lækna og bankastarfsmanna. Þagnar- skylda læknis og bankastarfsmanns er skylda til að deila ekki með öðrum – jafnvel fyrir rétti – upplýsingum sem þeir hafa komizt að um einstaklinga í starfi sínu. Hlutverk blaðamanns er þvert á móti að greina frá því sem hann veit. Leyndin sem lögin krefjast handa blaðamanninum og þarfnast verndar nær ekki til upplýsinganna sem blaða- maðurinn hefur aflað, heldur aðeins til uppruna þessara upplýsinga, þ.e. til heimildarmanns. Þessi greinarmunur er grundvallaratriði. Með lögum þarf að útfæra hvenær réttlætanlegt sé að aflétta nafnleynd en henni skyldi aldrei aflétt nema í tengslum við rannsókn alvarlegustu sakamála. Að öllu jöfnu myndu ríkir einkahagsmunir ekki geta réttlætt það að nafnleynd væri aflétt skv. undanþáguheimild í stjórnarskrá. Þegar stjórnarskráin hefur hlotið stað- festingu þarf að endurskoða lög til að torvelda málsóknir á hendur blaða- mönnum. Pentagon-skjölin sem Daniel Ells- berg hagfræðingur lak til bandarískra fjölmiðla 1971 afhjúpuðu lygar stjórn- valda um gang stríðsins í Víetnam og vöktu almenna hneykslan. For- setinn og menn hans vissu að stríðið var tapað en sendu unga menn samt áfram út í opinn dauðann. Ríkisstjórn- in höfðaði mál gegn New York Times og Washington Post og krafðist lög- banns gegn birtingu skjalanna. Hæsti- réttur Bandaríkjanna hafði snör hand- tök og staðfesti lagalegan rétt beggja blaða til að birta skjölin aðeins tveim vikum eftir að fyrsti hluti skjalanna var birtur. Við héldum prentfrelsinu í gíslingu 15 dögum of lengi, sagði Hugo Black hæstaréttardómari og bætti við: „Með prentfrelsisákvæðum stjórn- arskrárinnar veittu höfundar hennar frjálsum fjölmiðlum þá vernd sem þeir verða að njóta til að rækja grundvallar- hlutverk sitt í lýðræðisskipan okkar. Fjölmiðlum var ætlað að þjóna fólk- inu, ekki stjórnvöldum. Vald ríkisins til að ritskoða fjölmiðla var afnumið til að tryggja þeim varanlegt frelsi til að gagnrýna stjórnvöld. Fjölmiðlum var veitt vernd svo þeir gætu afhjúpað leyndarmál stjórnvalda og upplýst fólkið. Aðeins frjálsir og óheftir fjöl- miðlar eru þess megnugir að afhjúpa blekkingar stjórnvalda.“ [Mín þýðing, ÞG.] Skömmu fyrir þingkosningarnar 2017 fengu bankamenn framgengt lögbanni gegn Stundinni sem hafði birt upplýsingar úr leknum gögnum um meint innherjaviðskipti for- manns Sjálfstæðisflokksins í hruninu. Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði 2. febrúar sl. öllum kröfum Glitnis HoldCo í málinu og hafði þá haldið prentfrelsinu í gíslingu frá því um miðjan október. Og nú hefur Hæsti- réttur tekið sér marga mánuði enn til að fjalla um málið. Afstaða sumra hæstaréttardómara til prentfrelsis ætti þó varla að koma neinum á óvart enda hefur einn dómarinn nýlega höfðað meiðyrðamál gegn fv. dóm- ara í réttinum. Hvar annars staðar skyldu hæstaréttardómarar standa í málaferlum hver við annan? Hvergi á byggðu bóli – nema á Íslandi. Ég held ég viti hvað Ólafi Jóhannessyni hefði fundizt um þessa dómara o.fl. Hæstiréttur og prentfrelsið Þorvaldur Gylfason Í dag skattur.is Álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga 2018 eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra rsk.is og skattur.is. Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna álagningar verður greidd út 1. júní. Upplýsingar um greiðslustöðu veita tollstjóri og sýslumenn. Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskatt stjóra dagana 31. maí til 14. júní 2018, að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti lýkur 31. ágúst 2018. 442 1000 rsk@rsk.is Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Álagningu skatta á einstaklinga er lokið 2018 S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 3 1 . M a Í 2 0 1 8 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F F 4 -F F A C 1 F F 4 -F E 7 0 1 F F 4 -F D 3 4 1 F F 4 -F B F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.