Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 2
Veður Vestlæg átt í dag, víða 3-8, en heldur hvassara á Vestfjörðum og allra syðst. Skýjað að mestu og yfirleitt þurrt, en bjart með köflum á austan- verðu landinu. sjá síðu 26 Sumarboði í Hallargarðinum IVECO BUS - KAUPTÚNI 1 - SÍMI 575 1200 / 825 5215 - WWW.BL.IS IVECO DAILY MINIBUS (Rútur fyrir allt að 19 farþega + 2) Kr. 9.900.000 m/vsk sAMFÉLAG Allt gistirými í Árnes- hreppi er uppbókað þessa dagana en þar dvelur nú um 80 manna hópur erlendra gesta. Um er að ræða hóp á vegum Kanadamanns- ins Stephens Jenkinson sem rekur skólann Orphan Wisdom. Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi hefur veg og vanda af skipulagningunni en hún hefur stundað þennan skóla í nokkur ár. „Þetta er margbrotinn skóli þar sem áhersla er lögð á sögu í stóru samhengi. Hvernig maður er gestur í öðru landi en ekki bara túristi. Þráð- ur í gegnum þetta er hvernig fólks- flutningar hafa átt sér stað í okkar sögu og hvernig maður nálgast nýtt land af virðingu,“ segir hún. Elín Agla segir að fyrir tveimur árum hafi 25 manna hópur á vegum skólans verið á Íslandi og þar hafi kviknað sú hugmynd að halda nám- skeið í Árneshreppi þar sem kennt yrði um Bjólfskviðu. Staðurinn hafi verið valinn af kostgæfni. Nú er þessi hugmynd orðin að veruleika og mun hópurinn dvelja á staðnum í fimm daga. Elín Agla segir allt hugsanlegt húsnæði nýtt undir gistingu, þar á meðal skólahúsið en einnig muni um 10 manns gista í tjöldum. „Þessi hópur kemur að mestu leyti frá Bretlandi og Írlandi en skipuleggj- endur koma frá Kanada. Við leggj- um mikið upp úr því að hópurinn kynnist staðnum og fólkinu hér. Við verðum með sútun á lambagærum frá bændum í sveitinni og munum bjóða upp afurðir héðan, bæði hangikjöt og fisk.“ Aðspurð segir Elín Agla að stemn- ingin í Árneshreppi í kjölfar sveitar- stjórnarkosninganna sé mjög góð eins og venjulega en deilur um Hvalárvirkjun og lögheimilisflutn- inga voru áberandi í aðdraganda kosninganna. Hún viðurkennir þó að koma hópsins sé góð tilbreyting frá því amstri sem kosningunum fylgdi. „Hér eru allir að vinna að því að taka á vel á móti þessu fólki. Það eru allir í hreppnum allir af vilja gerðir að hjálpa til. Það er sól, fisk- ur á bryggjunni, lömbin eru úti og góðir gestir komnir. Nú er ég bara að hugsa um það sem skiptir mestu máli, lífið og fólkið. Lífið gæti ekki verið betra.“ sighvatur@frettabladid.is Streyma í Árneshrepp til að læra um Bjólfskviðu Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi segir íbúa Árneshrepps samstíga í að taka vel á móti 80 manna hópi sem er kominn til að læra um Bjólfskviðu og kynnast staðnum og fólkinu þar. Allt hugsanlegt húsnæði er nýtt til að hýsa hópinn. Kanadamennirnir Daniel og James í sólinni í Norðurfirði í gær. myND/ElíN AglA BriEm Clara sem kemur frá Wales leikur á fiðlu fyrir sjómenn í Norðurfirði. myNDir/ElíN AglA BriEm Núna er ég bara að hugsa um það sem skiptir mestu máli, lífið og fólkið. Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi uMhverFisMáL Starfsfólk Náttúru- stofu Norðausturlands (NNA) gekk nýlega fram á kjóapar sem hafði verið skotið. Í frétt á vef NNA kemur fram að starfsfólkið hafi heilsað upp á parið á hverju ári frá 2009. Kjóar eru alfriðaðir nema við friðlýst æðarvörp á varptíma en slíkt varp er hvergi í grenndinni. Hér er því um klárt lög- brot að ræða. „Þeir eru skotnir þarna í algjöru til- gangsleysi og algjörum óþokkaskap. Maður veit ekki hvað býr innra með mönnum sem gera svona,“ segir Þorkell Lindberg, for- stöðumaður NNA. „Þeir koma ár eftir ár á sömu óðölin,“ bætir hann við um þennan langferðafugl en hér lýkur kjóinn 14 þúsund kílómetra ferðalagi sínu úr suðri. – gþs Skotin eftir langt flug heim Starfslið Brúðubílsins undirbýr nú sumarið af kappi og var við æfingar í gær en fram undan er 38. starfsárið. „Nú erum við að fara leggja í hann. Við frum- sýnum sýninguna Lögin hans Lilla í Hallargarðinum mánudaginn 4. júní kl. 14,“ segir Helga Steffensen, stjórnandi Brúðubílsins. FrÉTTABlAÐiÐ/SigTryggUr Ari KosninGAr Formlegar viðræður um myndun meirihluta í borginni milli Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna hefjast í dag. Markmiðið er að samstarfssáttmáli meirihlutans liggi fyrir áður en fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar verður haldinn 19. júní. Þetta tilkynnti Þór- dís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Við- reisnar, í gærkvöldi. Helstu áherslur VG í komandi meirihlutaviðræðum liggja greini- lega fyrir. „Þú getur lesið um okkar stefnumál á vg.is,“ segir Líf Magn- eudóttir, oddviti VG, í samtali við Fréttablaðið þegar hún er spurð um hvað flokkurinn leggi áherslu á í við- ræðunum. „Kvenfrelsi, félagshyggja og umhverfisvernd,“ segir Líf. „Við erum bjartsýn um að ná þeim málum að í samstarfinu.“ Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, segir þessar viðræður ekki endurspegla niðurstöðu kosninganna. „Ég held að þessar viðræður séu falskur tónn miðað við niðurstöður kosninganna sem voru skýrar. Það voru fjórir nýir flokkar með fimm borgarfulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur. Það að framlengja líf borgarstjórnar- meirihluta sem kolféll bendir ekki til þess að fólk sé að hlusta á kjósend- ur,“ segir Eyþór. „Þetta bendir til þess að stólarnir skipta meira máli en vilji fólksins,“ bætir hann við. „Sjálfstæðisflokkurinn er til að breyta og þeir sem vilja vera með okkur í því, við viljum vinna með þeim. Viðreisn er þarna fjórða hjólið undir vagni sem komst ekki lengra,“ segir Eyþór að lokum. – gþs, la Viðræður hefjast í Reykjavíkurborg Eyþór Arnaldslíf magneudóttir 3 1 . M A í 2 0 1 8 F i M M T u D A G u r2 F r É T T i r ∙ F r É T T A B L A ð i ð 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F F 4 -E 6 F C 1 F F 4 -E 5 C 0 1 F F 4 -E 4 8 4 1 F F 4 -E 3 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.