Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 2
Veður
Vestlæg átt í dag, víða 3-8, en heldur
hvassara á Vestfjörðum og allra
syðst. Skýjað að mestu og yfirleitt
þurrt, en bjart með köflum á austan-
verðu landinu. sjá síðu 26
Sumarboði í Hallargarðinum
IVECO BUS - KAUPTÚNI 1 - SÍMI 575 1200 / 825 5215 - WWW.BL.IS
IVECO DAILY MINIBUS
(Rútur fyrir allt að 19 farþega + 2)
Kr. 9.900.000 m/vsk
sAMFÉLAG Allt gistirými í Árnes-
hreppi er uppbókað þessa dagana
en þar dvelur nú um 80 manna
hópur erlendra gesta. Um er að
ræða hóp á vegum Kanadamanns-
ins Stephens Jenkinson sem rekur
skólann Orphan Wisdom. Elín Agla
Briem þjóðmenningarbóndi hefur
veg og vanda af skipulagningunni
en hún hefur stundað þennan skóla
í nokkur ár.
„Þetta er margbrotinn skóli þar
sem áhersla er lögð á sögu í stóru
samhengi. Hvernig maður er gestur í
öðru landi en ekki bara túristi. Þráð-
ur í gegnum þetta er hvernig fólks-
flutningar hafa átt sér stað í okkar
sögu og hvernig maður nálgast nýtt
land af virðingu,“ segir hún.
Elín Agla segir að fyrir tveimur
árum hafi 25 manna hópur á vegum
skólans verið á Íslandi og þar hafi
kviknað sú hugmynd að halda nám-
skeið í Árneshreppi þar sem kennt
yrði um Bjólfskviðu. Staðurinn hafi
verið valinn af kostgæfni. Nú er
þessi hugmynd orðin að veruleika
og mun hópurinn dvelja á staðnum
í fimm daga.
Elín Agla segir allt hugsanlegt
húsnæði nýtt undir gistingu, þar á
meðal skólahúsið en einnig muni
um 10 manns gista í tjöldum. „Þessi
hópur kemur að mestu leyti frá
Bretlandi og Írlandi en skipuleggj-
endur koma frá Kanada. Við leggj-
um mikið upp úr því að hópurinn
kynnist staðnum og fólkinu hér. Við
verðum með sútun á lambagærum
frá bændum í sveitinni og munum
bjóða upp afurðir héðan, bæði
hangikjöt og fisk.“
Aðspurð segir Elín Agla að stemn-
ingin í Árneshreppi í kjölfar sveitar-
stjórnarkosninganna sé mjög góð
eins og venjulega en deilur um
Hvalárvirkjun og lögheimilisflutn-
inga voru áberandi í aðdraganda
kosninganna. Hún viðurkennir þó að
koma hópsins sé góð tilbreyting frá
því amstri sem kosningunum fylgdi.
„Hér eru allir að vinna að því að
taka á vel á móti þessu fólki. Það
eru allir í hreppnum allir af vilja
gerðir að hjálpa til. Það er sól, fisk-
ur á bryggjunni, lömbin eru úti og
góðir gestir komnir. Nú er ég bara
að hugsa um það sem skiptir mestu
máli, lífið og fólkið. Lífið gæti ekki
verið betra.“ sighvatur@frettabladid.is
Streyma í Árneshrepp til
að læra um Bjólfskviðu
Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi segir íbúa Árneshrepps samstíga í að taka
vel á móti 80 manna hópi sem er kominn til að læra um Bjólfskviðu og kynnast
staðnum og fólkinu þar. Allt hugsanlegt húsnæði er nýtt til að hýsa hópinn.
Kanadamennirnir Daniel og James í
sólinni í Norðurfirði í gær.
myND/ElíN AglA BriEm
Clara sem kemur frá Wales leikur á fiðlu fyrir sjómenn í Norðurfirði.
myNDir/ElíN AglA BriEm
Núna er ég bara að
hugsa um það sem
skiptir mestu máli, lífið og
fólkið.
Elín Agla Briem, þjóðmenningarbóndi
uMhverFisMáL Starfsfólk Náttúru-
stofu Norðausturlands (NNA) gekk
nýlega fram á kjóapar sem hafði
verið skotið. Í frétt á vef NNA kemur
fram að starfsfólkið hafi heilsað upp
á parið á hverju ári frá 2009. Kjóar eru
alfriðaðir nema við friðlýst æðarvörp
á varptíma en slíkt varp er hvergi í
grenndinni. Hér er því um klárt lög-
brot að ræða.
„Þeir eru skotnir þarna í algjöru til-
gangsleysi og algjörum óþokkaskap.
Maður veit ekki hvað býr innra með
mönnum sem gera svona,“
segir Þorkell Lindberg, for-
stöðumaður NNA.
„Þeir koma ár eftir ár á
sömu óðölin,“ bætir
hann við um þennan
langferðafugl en
hér lýkur kjóinn 14
þúsund kílómetra
ferðalagi sínu
úr suðri. – gþs
Skotin eftir
langt flug heim
Starfslið Brúðubílsins undirbýr nú sumarið af kappi og var við æfingar í gær en fram undan er 38. starfsárið. „Nú erum við að fara leggja í hann. Við frum-
sýnum sýninguna Lögin hans Lilla í Hallargarðinum mánudaginn 4. júní kl. 14,“ segir Helga Steffensen, stjórnandi Brúðubílsins. FrÉTTABlAÐiÐ/SigTryggUr Ari
KosninGAr Formlegar viðræður um
myndun meirihluta í borginni milli
Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata
og Vinstri grænna hefjast í dag.
Markmiðið er að samstarfssáttmáli
meirihlutans liggi fyrir áður en fyrsti
fundur nýrrar borgarstjórnar verður
haldinn 19. júní. Þetta tilkynnti Þór-
dís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Við-
reisnar, í gærkvöldi.
Helstu áherslur VG í komandi
meirihlutaviðræðum liggja greini-
lega fyrir. „Þú getur lesið um okkar
stefnumál á vg.is,“ segir Líf Magn-
eudóttir, oddviti VG, í samtali við
Fréttablaðið þegar hún er spurð um
hvað flokkurinn leggi áherslu á í við-
ræðunum.
„Kvenfrelsi, félagshyggja og
umhverfisvernd,“ segir Líf. „Við erum
bjartsýn um að ná þeim málum að í
samstarfinu.“
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, segir
þessar viðræður ekki endurspegla
niðurstöðu kosninganna. „Ég held
að þessar viðræður séu falskur tónn
miðað við niðurstöður kosninganna
sem voru skýrar. Það voru fjórir nýir
flokkar með fimm borgarfulltrúa og
Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur.
Það að framlengja líf borgarstjórnar-
meirihluta sem kolféll bendir ekki til
þess að fólk sé að hlusta á kjósend-
ur,“ segir Eyþór. „Þetta bendir til þess
að stólarnir skipta meira máli en vilji
fólksins,“ bætir hann við.
„Sjálfstæðisflokkurinn er til að
breyta og þeir sem vilja vera með
okkur í því, við viljum vinna með
þeim. Viðreisn er þarna fjórða hjólið
undir vagni sem komst ekki lengra,“
segir Eyþór að lokum. – gþs, la
Viðræður hefjast í
Reykjavíkurborg
Eyþór
Arnaldslíf magneudóttir
3 1 . M A í 2 0 1 8 F i M M T u D A G u r2 F r É T T i r ∙ F r É T T A B L A ð i ð
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
4
-E
6
F
C
1
F
F
4
-E
5
C
0
1
F
F
4
-E
4
8
4
1
F
F
4
-E
3
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K