Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 52
HUGINN MUNINN
SKYRTUR
NÝ
VEFVERSLUN
www.huginnmuninn.is
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
KviKmyndir
Kona fer í stríð
★★★★★
Leikstjórn: Benedikt Erlingsson
Handrit: Benedikt Erlingsson,
Ólafur Egilsson
Aðalhlutverk: Halldóra Geir-
harðsdóttir, Jóhann Sigurðarson,
Jörundur Ragnarsson
Skurðlæknirinn Tómas Guðbjarts-
son sagði við í viðtali um Kona sem
fer í stríð á Fréttablaðið.is í gær að
boðskapur myndarinnar „hitti
mann bara beint í hjartað“. Engin
ástæða er til þess að rengja lækn-
inn, sem þekktur er fyrir að fara
sínum fimu fingrum með hnífinn
að hjartarótum, í þessum efnum.
Kona sem fer í stríð er gersam-
lega heillandi, vandlega slípaður
lítill demantur. Svo hlaðinn ást,
mennsku og hlýju að mann kennir
dálítið til í hjartanu þegar maður
horfir á hana.
Halldóra Geirharðsdóttir leikur
kórstjórann Höllu. Tæplega fimm-
tuga konu sem býr ein í Reykjavík.
Hún lifir þó tvöföldu lífi og undir
virðulegu yfirbragði kórstjórans
leynist „hryðjuverkamaður“ sem
leggur allt í sölurnar til verndar
náttúrunni.
Þegar hún er ekki að æfa kórinn
sinn fer hún um landið og slær út
rafmagni hjá álverum og annarri
stóriðju. Með þessum skærum
ætlar hún að grafa svo undan
trausti útlendra stóriðjurisa á
Íslandi sem virkjunarkosti.
Þessari einnar konu hersveit
gengur svo val að takmarkið er
innan seilingar. Kínverskir
fjárfestar eru að missa
þolinmæðina á meðan
ríkisstjórnin skelfur
og lögreglan er ráð-
þrota.
E f n a h a g s l e g a r
afleiðingar náttúru-
hernaðar Höllu,
eða Fjallkonunnar
eins og hún kallar
sig, eru neikvæðar.
L á n s h æ f i s m a t
landsins er á leið
í ruslflokk, verð-
hækkanir eru yfir-
vofandi og hluti
almennings kann
terroristanum litlar
þakkir.
Þessi hagsmuna-
árekstur náttúrunnar
og efnahags er settur
fram í mátulega kómísku
ljósi en kristallar í raun
alla umræðu um stóriðju
á Íslandi þar sem á takast
sjónarmið þeirra sem ein-
blína á stundarhagsmuni og svo
þeirra sem taka ekki í mál að færa
óafturkræfar fórnir og leggja nátt-
úru landsins undir í fjárhættuspili
um skyndigróða.
Mitt í öllum ósköpunum setja
örlögin strik í „stríðsrekstur“ Fjall-
konunnar sem fær óvænt tækifæri
til þess að láta gamlan draum um
að verða móðir rætast þegar henni
býðst að ættleiða lita stúlku frá
Úkraínu. Er baráttan fyrir nátt-
úrunni þess virði að hún fórni öllu?
Töframaðurinn Benedikt
Benedikt Erlingsson er einhvers
konar alhliða séní þegar kemur að
sviðslistum og kvikmyndum. Hann
sýndi vald sitt á kvikmyndinni með
Hross í oss og Kona fer í stríð er
þéttur blómvöndur í hnappagat
hans.
Handritið er vitaskuld alltaf
frumforsenda góðrar bíómyndar
og handrit hans og Ólafs Egilssonar
er listaverk í sjálfu sér. Sérlega vel
pælt og svo vel slípað að frekar ein-
föld sagan springur út í risastóra
sögu sem snertir okkur öll.
Kvikmyndataka Bergsteins
Björgúlfssonar er mögnuð, eins og
við var að búast og myndmálið allt
svo fallegt og merkingarþrungið
að mann sundlar
á köflum. Tón-
listin er dásam-
leg og fléttað
s a m a n v i ð
s ö g u n a a f
á k v e ð n u
hugrekki en
um leið hug-
kvæmni þann-
ig að hún
verður beinlínis virkur þátttakandi
í sögunni. Plássfrek og skemmtileg
persóna.
Halldóru þáttur Geirharðsdóttur
Halldóra Geirharðsdóttir er frá-
bær leikkona en sennilega er hún
að toppa sjálfa sig í myndinni sem
þegar upp er staðið hvílir fyrst
og fremst á herðum hennar. Hún
dansar fimlega allan tilfinninga-
skalann. Er í senn harmræn, fynd-
in, grimm, sterk, veik og hlý. Halla
er sem sagt í meðförum hennar
algerlega ekta persóna. Margbrotin
manneskja eins og við erum öll.
Jóhann Sigurðarson og Jörundur
Ragnarsson eru í mikilvægustu
aukahlutverkunum og skila sína
með sóma. Jörundur getur leikið
taugahrúgur blindandi og Jóhann
er bara kletturinn sem hann er.
Þéttur á velli og fjalltraustur í
hlutverki bónda sem ann nátt-
úrunni og kann að lifa af landinu
gnæfir hann eins og fulltrúi horf-
inna kynslóða, Íslendingsins sem
þurfti að finna jafnvægið í samlífi
manns og náttúru. Heillandi per-
sóna í hráum hlýleika sínum.
Rambó í skautbúningi
Saga Höllu er alvarleg, átakanleg
á köflum, en húmorinn er aldr-
ei langt undan þótt hann sé lág-
stemmdur. Og þótt konan sé í stríði
þá er enginn djöfulgangur þar á
ferðinni.
Breytir því þó ekki að þegar
Fjallkonan er hundelt af lögreglu,
þyrlum og drónum úti í náttúrunni
þá reikar hugurinn aftur til upp-
gjafahermannsins Rambó í First
Blood 1982.
Berskjölduð á berangri notar
Halla náttúruna bæði sem vopn og
skjól. Alveg sérstaklega skemmti-
legur og spennandi kafli. Samt eins
og myndin öll laus við tilgerð, stæla
og oflæti.
Sjáið þessa mynd, látið heillast
og fellið nokkur tár. Ef Kona sem
fer í stríð hreyfir ekki við ykkur
mæli ég með að þið pantið tíma
hjá Lækna-Tómasi og biðjið
hann um að finna í ykkur hjart-
að.
Þórarinn Þórarinsson
niðurstaða: Ofboðslega fal-
leg kvikmynd þar sem heillandi
myndmál, frábær leikur, falleg
saga, meitlað handrit og mergjuð
notkun tónlistar renna saman í
náttúruafl sem Benedikt Erlingsson
virkjar með einhverjum óræðum
galdri. Kona sem fer í stríð er lítið,
krúttlegt náttúruafl.
Rambó skellir sér í skautbúning
Halldóra Geirharðsdóttir fer með himinskautum fram og aftur um allan skala mannlegra tilfinninga í hlutverki um-
hverfisterroristans Höllu. Mann skortir eiginlega orð!
Benedikt Erlingsson er upp á sitt besta
og spilar á tilfinningar áhorfenda eins
og hörpu.
3 1 . m a í 2 0 1 8 F i m m t u d a G u r32 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Bíó
3
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
F
4
-F
A
B
C
1
F
F
4
-F
9
8
0
1
F
F
4
-F
8
4
4
1
F
F
4
-F
7
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K