Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 52
HUGINN MUNINN SKYRTUR NÝ VEFVERSLUN www.huginnmuninn.is Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is KviKmyndir Kona fer í stríð ★★★★★ Leikstjórn: Benedikt Erlingsson Handrit: Benedikt Erlingsson, Ólafur Egilsson Aðalhlutverk: Halldóra Geir- harðsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Jörundur Ragnarsson Skurðlæknirinn Tómas Guðbjarts- son sagði við í viðtali um Kona sem fer í stríð á Fréttablaðið.is í gær að boðskapur myndarinnar „hitti mann bara beint í hjartað“. Engin ástæða er til þess að rengja lækn- inn, sem þekktur er fyrir að fara sínum fimu fingrum með hnífinn að hjartarótum, í þessum efnum. Kona sem fer í stríð er gersam- lega heillandi, vandlega slípaður lítill demantur. Svo hlaðinn ást, mennsku og hlýju að mann kennir dálítið til í hjartanu þegar maður horfir á hana. Halldóra Geirharðsdóttir leikur kórstjórann Höllu. Tæplega fimm- tuga konu sem býr ein í Reykjavík. Hún lifir þó tvöföldu lífi og undir virðulegu yfirbragði kórstjórans leynist „hryðjuverkamaður“ sem leggur allt í sölurnar til verndar náttúrunni. Þegar hún er ekki að æfa kórinn sinn fer hún um landið og slær út rafmagni hjá álverum og annarri stóriðju. Með þessum skærum ætlar hún að grafa svo undan trausti útlendra stóriðjurisa á Íslandi sem virkjunarkosti. Þessari einnar konu hersveit gengur svo val að takmarkið er innan seilingar. Kínverskir fjárfestar eru að missa þolinmæðina á meðan ríkisstjórnin skelfur og lögreglan er ráð- þrota. E f n a h a g s l e g a r afleiðingar náttúru- hernaðar Höllu, eða Fjallkonunnar eins og hún kallar sig, eru neikvæðar. L á n s h æ f i s m a t landsins er á leið í ruslflokk, verð- hækkanir eru yfir- vofandi og hluti almennings kann terroristanum litlar þakkir. Þessi hagsmuna- árekstur náttúrunnar og efnahags er settur fram í mátulega kómísku ljósi en kristallar í raun alla umræðu um stóriðju á Íslandi þar sem á takast sjónarmið þeirra sem ein- blína á stundarhagsmuni og svo þeirra sem taka ekki í mál að færa óafturkræfar fórnir og leggja nátt- úru landsins undir í fjárhættuspili um skyndigróða. Mitt í öllum ósköpunum setja örlögin strik í „stríðsrekstur“ Fjall- konunnar sem fær óvænt tækifæri til þess að láta gamlan draum um að verða móðir rætast þegar henni býðst að ættleiða lita stúlku frá Úkraínu. Er baráttan fyrir nátt- úrunni þess virði að hún fórni öllu? Töframaðurinn Benedikt Benedikt Erlingsson er einhvers konar alhliða séní þegar kemur að sviðslistum og kvikmyndum. Hann sýndi vald sitt á kvikmyndinni með Hross í oss og Kona fer í stríð er þéttur blómvöndur í hnappagat hans. Handritið er vitaskuld alltaf frumforsenda góðrar bíómyndar og handrit hans og Ólafs Egilssonar er listaverk í sjálfu sér. Sérlega vel pælt og svo vel slípað að frekar ein- föld sagan springur út í risastóra sögu sem snertir okkur öll. Kvikmyndataka Bergsteins Björgúlfssonar er mögnuð, eins og við var að búast og myndmálið allt svo fallegt og merkingarþrungið að mann sundlar á köflum. Tón- listin er dásam- leg og fléttað s a m a n v i ð s ö g u n a a f á k v e ð n u hugrekki en um leið hug- kvæmni þann- ig að hún verður beinlínis virkur þátttakandi í sögunni. Plássfrek og skemmtileg persóna. Halldóru þáttur Geirharðsdóttur Halldóra Geirharðsdóttir er frá- bær leikkona en sennilega er hún að toppa sjálfa sig í myndinni sem þegar upp er staðið hvílir fyrst og fremst á herðum hennar. Hún dansar fimlega allan tilfinninga- skalann. Er í senn harmræn, fynd- in, grimm, sterk, veik og hlý. Halla er sem sagt í meðförum hennar algerlega ekta persóna. Margbrotin manneskja eins og við erum öll. Jóhann Sigurðarson og Jörundur Ragnarsson eru í mikilvægustu aukahlutverkunum og skila sína með sóma. Jörundur getur leikið taugahrúgur blindandi og Jóhann er bara kletturinn sem hann er. Þéttur á velli og fjalltraustur í hlutverki bónda sem ann nátt- úrunni og kann að lifa af landinu gnæfir hann eins og fulltrúi horf- inna kynslóða, Íslendingsins sem þurfti að finna jafnvægið í samlífi manns og náttúru. Heillandi per- sóna í hráum hlýleika sínum. Rambó í skautbúningi Saga Höllu er alvarleg, átakanleg á köflum, en húmorinn er aldr- ei langt undan þótt hann sé lág- stemmdur. Og þótt konan sé í stríði þá er enginn djöfulgangur þar á ferðinni. Breytir því þó ekki að þegar Fjallkonan er hundelt af lögreglu, þyrlum og drónum úti í náttúrunni þá reikar hugurinn aftur til upp- gjafahermannsins Rambó í First Blood 1982. Berskjölduð á berangri notar Halla náttúruna bæði sem vopn og skjól. Alveg sérstaklega skemmti- legur og spennandi kafli. Samt eins og myndin öll laus við tilgerð, stæla og oflæti. Sjáið þessa mynd, látið heillast og fellið nokkur tár. Ef Kona sem fer í stríð hreyfir ekki við ykkur mæli ég með að þið pantið tíma hjá Lækna-Tómasi og biðjið hann um að finna í ykkur hjart- að. Þórarinn Þórarinsson niðurstaða: Ofboðslega fal- leg kvikmynd þar sem heillandi myndmál, frábær leikur, falleg saga, meitlað handrit og mergjuð notkun tónlistar renna saman í náttúruafl sem Benedikt Erlingsson virkjar með einhverjum óræðum galdri. Kona sem fer í stríð er lítið, krúttlegt náttúruafl. Rambó skellir sér í skautbúning Halldóra Geirharðsdóttir fer með himinskautum fram og aftur um allan skala mannlegra tilfinninga í hlutverki um- hverfisterroristans Höllu. Mann skortir eiginlega orð! Benedikt Erlingsson er upp á sitt besta og spilar á tilfinningar áhorfenda eins og hörpu. 3 1 . m a í 2 0 1 8 F i m m t u d a G u r32 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 3 1 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F F 4 -F A B C 1 F F 4 -F 9 8 0 1 F F 4 -F 8 4 4 1 F F 4 -F 7 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.