Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 14
A
ð mínu mati er Audi Q5
einmitt rétta gerðin af bíl
fyrir íslenskar aðstæður.
Hann er nægilega mikill
jeppi til að ráða við bíltúra út fyrir
bæinn í slæmri færð en nógu nett-
ur til að henta vel sem borgarbíll.
Gott pláss er fyrir hávaxna ís-
lenska vísitölufjölskyldu og heim-
ilishundinn án þess samt að töskur
og pinklar hreinlega hverfi í skott-
inu og ekki svo erfitt að stíga upp í
bílinn að fólk með nokkur aukakíló
um mittið eða háa hæla undir fót-
unum eigi í nokkrum vanda með
það.
Svo skemmir ekki fyrir hvað
Audi gerir falleg ökutæki – en
samt án þess að vera með sýnd-
armennsku og læti. Lágstemmdur
þýskur glæsileiki er nokkuð sem ég
á erfitt með að standast.
Hekla frumsýndi nýja Audi Q5 í
febrúar og mesta synd að það skuli
hafa dregist svona lengi að skrifa
um þennan bráðgóða bíl: Q5 er
nefnilega bíll að mínu skapi.
Það fyrsta sem ökumaður tekur
eftir á bak við stýrið er hvað upp-
lýsingagjöf í mælaborði er skýr og
leiðsögukerfið notendavænt. Allt
virðist vera þar sem það á að vera,
hvort sem um er að ræða takkana
til að stjórna tónlistinni eða snerti-
músina fyrir ofan gírstöngina sem
nota má til að gefa bíltölvunni skip-
anir í einum hvelli. Þráðlaus hleðsla
fyrir farsímann er líka alveg ómiss-
andi þegar maður hefur vanist
þeim lúxus.
Snarpur og klár
Þegar stigið er á bensíngjöfina
fer ekki milli mála að nóg er af
krafti. Audi Q5 er einn af þessum
stórvarasömu bílum sem aka mun
hraðar en maður heldur og ágætt
að hafa a.m.k. annað augað á
hraðamælinum á þeim vegum þar
sem gæti verið von á lögreglu með
radar.
Í akstri er Q5 eins og hugur
manns og nýja quattro-aldrifið fær
ökumann til að halda að ekkert geti
stöðvað þennan bíl. Í stuttum túr
upp í Bláfjöll langaði mig mest að
beygja út af veginum og aka þráð-
beint upp fjallshlíðarnar. Loftpúða-
fjöðrunin, sem kostar 330.000 kr.
aukalega, er líka algjört yndi og
meiriháttar upplifun að finna mun-
inn á fjöðruninni á sportstillingu og
utanvegastillingu þegar ekið er á
rammíslenskum malarvegum.
Reynsluakstursbíllinn var með
480.000 kr. leiðsögukerfi sem virk-
aði fjarska vel þótt dýrt sé. Þeir
sem vilja endilega leiðsögn á
áfangastað gætu viljað reiða sig
frekar á kortakerfið í farsímanum
sínum og nota mismuninn til að
fara í gott frí til útlanda. Aftur á
móti má hiklaust mæla með að Q5
sé pantaður með bakkmyndavél
(sem vantaði í reynsluakstursbíl-
inn) því þótt hann sé ekki risastór
þá eru íslensk bílastæði þröng og
með myndavélinni verður inn-
kaupaferðin í Kringluna eða Skeif-
una mun ánægjulegri.
Hvernig stendur svo á því að
þessi undrajepplingur, sem hakar í
öll boxin, skuli ekki rjúka út?
Helsta skýringin er sú að Q5 fæst
ekki enn í tvinnútgáfu. Aftur á
móti fæst stóri bróðir, Q7, með
tvinnvél og selst mjög vel enda á
sérdeilis góðu verði. Mér skilst að
tvinn-Q5 sé í pípunum og næsta
víst að þegar hann lendir á Íslandi
mun koma góður kippur í söluna
hjá Heklu.
Morgunblaðið/Ásgeir Ingvarsson
Allir vegir færir
Fínt pláss í
öllum sætum.
2,0 lítra dísil
190 hestöfl/400 Nm
7 gíra S-tronic sjálfskipting
0-100 km/klst: 7,9 sek.
Hámarkshr.: 250 km/klst.
AWD
235/60/18
Eigin þyngd: 1.898 kg
Farangursrými: 550 lítrar
Mengunargildi: 129 g/km
Verð frá 7.290.000 kr.
Eins og prófaður: 9.830.000 kr.
5,3 l í blönduðum akstri
Audi Q-5
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Reynsluakstur
Loftpúðafjöðrunin er mjög full-
komin og gerir það að algjörri un-
un að aka á malarvegum.
Skemmir ekki fyrir hvað lág-
stemmdur þýskur glæsileikinn
passar vel við íslenskt landslag.
Nýja kynslóðin er með
skarpari línum, en held-
ur samt tryggð við Q5
erfðaefnið sem sló svo
rækilega í gegn.
Fram- og aftur-
ljósin eru vel
heppnuð.
Bakpokinn
góði til sam-
anburðar og
alveg nóg af
plássi.
Tæknin sem mætir ökumanni
er eins og best verður á kosið.
+
Loftpúðafjöðr-
unin svínvirkar
-
Leiðsögukerfið
er dýr viðbót
14 | MORGUNBLAÐIÐ