Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13 að sér háa skatta sem bresk stjórn- völd lögðu á nýja bíla. (Í dag má enn spara pening með því að púsla sportbílnum saman sjálfur, og það sem meira er: ekki eru gerðar jafn strangar öryggis- og tæknikröfur til samsetjanlegra bíla svo að ekki þarf t.d. að hafa krumpusvæði í framenda bílsins, eða loftpúða í stýrinu.) Lotus smíðaði Lotus 7 fram til ársins 1972 og seldi þá framleiðslu- réttinn til lítils bílaverkstæðis í bænum Caterham í Surrey. Bíllinn fékk um leið nafnið Caterham 7 og hefur borið það alla tíð síðan. Stjórnendur Lotus misreiknuðu sig greinilega þegar þeir héldu að vin- sældum Lotus 7 hlyti senn að ljúka. Núna, nærri hálfri öld síðar, er langur biðlisti eftir þeim 600 bílum sem Caterham framleiðir árlega. Um helmingur bílanna fer til breskra kaupenda og helmingur er seldur út í heim. Harkan sjö Það fyrsta sem maður finnur þegar sest er ofan í Caterham er hvað bíllinn er berstrípaður. Það er ekki einu sinni klukka í mælaborð- inu. Stefnuljósunum er stýrt með litlum takka á mælaborðinu, og líkt og á mótorhjóli þá slökknar ekki sjálfkrafa á stefnuljósinu eftir beygju. Sætið er svo smátt að það þarf að smokra sér ofan í það eins og þrönga líkkistu, og fæturnir rúmast varla á pedölunum. Plássið fyrir fæturna er af svo skornum skammti að eftir eins dags akstur voru komnar svartar rákir á hliðarnar á hvítu strigaskónum mínum, sem höfðu nuddast utan í gúmmíið á pe- dölunum í hvert skipti sem ég bremsaði eða gaf í. Eftir klukku- tíma undir stýri er líkamann farið að verkja undan hörðu sætinu og skottið rúmar ekki mikið meira en þakdúkinn. Sem betur fer var gott veður alla helgina sem ég hafði bílinn, því ég hefði ekki lagt í það að reyna að smokra mér inn í hann með þakið á. Þess utan hættir Caterham 7 til að fyllast af móðu þegar rignir enda miðstöðin léleg og þakdúk- urinn veitir varla nokkra einangrun – en blessunarlega er þó framrúðan upphituð. Bíllinn sem ég fékk að láni er litla barnið í Caterham-fjölskyld- unni: Seven 160. Vélin er frá Su- zuki, og framleiðir ekki nema 80 hestöfl með forþjöppu. En þar sem bíllinn er lítill og léttur dugar þessi veiklulega vél til að ná 60 mílna hraða á 6,9 sekúndum. Caterham má líka fá með stærri vél, eins og Seven 620 R sem nær, þökk sé 310 hestöflum undir húddinu, að fara upp í 60 mílurnar á bandbrjáluðum 2,79 sekúndum. Græni gleðigjafinn Á blaði hljómar Seven 160 eins og algjör hörmung, en á blíðviðr- isdegi er þessi bíll algjör draumur. Þó hann fari ekki af stað eins og raketta, þá fer hann samt alveg nógu hratt og upplifunin eins og ek- ið sé mun hraðar. Það þarf að þenja vélina, svo hún gefur frá sér frá- bært hljóð. Ökumaður og bíll eru eitt. Ekki skemmir heldur fyrir hvað Caterham 7 vekur mikla gleði veg- farenda. Kannski er það vegna þess að þakið var galopið að fólk var ófeimið að gefa sig á tal við mig á rauðu ljósi, eða gaf velþóknun sína til kynna með tveimur þumlum. „Þetta er eitthvað sem ég gæti al- veg vanist,“ sagði ein eldri konan við mig þar sem hún kom aðvífandi á rafmagnsstólnum sínum. „Gæti ég nokkuð fengið far?“ sagði önnur, á miðjum aldri, og virtist þá og þegar reiðubúin að yfirgefa börnin sem hún hafði í eftirdragi. „Hvað ertu eiginlega með stóra vél í þessum?“ spurði strætóbílstjóri mig á rauðu ljósi á Whitehall. „Alveg agn- arsmáa“ svaraði ég og greinlegt að maðurinn vildi ekki trúa mér. Sumarið 2016 fékk ég að prófa Lamborghini Huaracán og lýsti „litla“ ofursportbílnum frá ítalska bílaframleiðandanum sem „lífsgleði á hjólum“ – ökutæki sem gleður bæði ökumann og vegfarendur. Það sama má segja um Caterham 7, nema hvað nýr Lamborghini kostar í kringum 50 milljónir, á meðan hrár Seven 160 myndi kosta (ósam- settur) um 3,5-4 milljónir kominn til Íslands. Það kostar um 350.000 kr til viðbótar (fyrir skatta) að láta bílasmiði Caterham sjá um sam- setninguna, og um 490.000 kr ofan á það að fá „S-pakkann“, en í hon- um er m.a. framrúðan, leðursætin, hurðir og þakdúkur. Sjálfur myndi ég fara upp um einn eða tvo stærðarflokka; upp í Seven 270 eða Seven 310, sem eru með 135 og 152 hestafla vélum en kosta ekki svo mikið meira. Fyrir þá sem langar að skella sér á Seven má það fylgja með að end- ursöluverð Caterham þykir mjög gott. Segir það bæði til um eft- irspurnina, og líka hvað eigendur þessara bíla eru óviljugir að láta þá frá sér. Ljósmyndir/Ásgeir Ingvarsson Töffaralegt púströrið myndi sóma sér vel í sínfóníuhljómsveit. Hann sómir sér vel við breskan herra- garð og var auðsótt að fá að mynda Ca- terham við Audley End House. Aksturs- upplifunin er hrein og óspillt gleði. Caterham 7 gat átt erfitt með hraðahindranir en passar vel í stæði. Sætin eru ofboðslega þröng og faðma ökumaninn þétt. Fætur rúmast vart á pedölunum. Húddið er fest niður með smellum og losnar í heilu lagi. Útlit Caterham 7 hefur varla breyst í rösklega hálfa öld. Skrítnir takkar stýra ljósum og vél.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.