Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ Þ egar ég falaðist eftir að fá bíl að láni frá Caterham var það mest í gríni gert. Ég hugsaði með mér að ég gæti fengið ágætis útrás fyrir athyglisþörfina í agnarsmáum, opn- um, tveggja sæta sportbíl á götum Lundúnaborgar. Annars átti ég ekki von á miklu frá þessu ökutæki, enda er Caterham bíll sem virðist fastur í fortíðinni; laus við alla nú- tímatækni og nær óbreyttur í útliti frá því á 6. áratugnum. Bíllinn sem beið eftir mér á plan- inu hjá Caterham var enn minni en ég átti von á – náði mér varla upp að hné – og ég glotti út í annað á meðan sölustjórinn sýndi mér hvernig á að taka þakdúkinn af og festa hann aftur á. „Og þú getur líka tekið hurðirnar af, en ég mæli með því að þú hafir þær á sínum stað á hraðbrautunum því annars myndast straumsveipur í farþega- rýminu og þú getur ekki andað,“ sagði hann. Ég smokraði mér ofan í níð- þröngt ökumannssætið, spennti beltið, setti í bakkgír og snéri þungu stýrinu til að reyna að kom- ast út úr stæðinu. Ég fann að þegar stigið var á bremsuna var ekkert sem hægði á bílnum nema vöðv- arnir í fótleggnum. Hvernig átti ég núna að komast heim í Pimlico, alla leið frá Gatwick, með ekkert GPS kerfi? Nokkrum dögum síðar beið ég á rauðu ljósi í Chelsea, umkringdur Bentleyum og Lamborghíníum, og þá rann það upp fyrir mér: ég var á langskemmtilegasta bílnum á svæð- inu og gæti ekki hugsað mér að skipta við ökumennina í kringum mig. 60 ára gömul hönnun Saga Caterham byrjar, merkilegt nokk, hjá Lotus þar sem sportbíll- inn Lotus 7 varð til árið 1957. Þetta lipra og ódýra leikfang sló strax í gegn hjá kappakstursáhugamönn- um. Það gerði bílinn enn ódýrari að kaupendur gátu fengið að setja hann saman sjálfir og þannig spar- Þegar minna er meira Vélin í veikasta Caterham 7 framleiðir bara 80 hestöfl og þarf að þenja hana vel, sem er yndislegt. + Með meiri persónuleika en nokkur annar bíll – Pedalarnir aðeins fyrir nettustu fætur 660 cc Suzuki m. túrbó 80 hö / 107 Nm 5 gíra sjálfskiptur 0-100 km/klst: 6,91 sek. Hámarkshr.: 160 km/klst. Afturhjóladrifinn 13’’ Eigin þyngd: 490 kg Farangursrými:samasem ekkert Mengunargildi: 114 g/km Verð: 4.700 þús. kr. eins og prófaður. 4,1 l í blönduðum akstri Caterham 7 Seven 160 S Pack Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Reynsluakstur Hvar sem ekið var vakti Caterham Seven 160 lukku. Við Parker’s Piece í Cambridge. Skottið rétt rúmar þakdúkinn. LV Keepall 45 til samanburðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.