Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 16
2,0 lítra dísil 177 hö / 380 Nm CVT sjálfskipting 0-100 km/klst: 9,4 sek. Hámarkshr.: 196 km/klst. AWD 225/65R17 Eigin þyngd kg: 1.762 Farangursrými: 565 lítrar Mengunargildi: 158 g/km Verð á sjálfskiptum fjórhjóla- drifnum: frá 5.590.000 kr. 6,0 l í blönduðum akstri Nissan X-Trail X Tronic CVT Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is ReynsluaksturÍ flestum bókum um nýsköpun er að finna tilvitnun í Henry Ford, sem á að hafa sagt eitthvað á þá leið að það væri af og frá að leita til viðskiptavinanna eftir hug- myndum að nýjum vörum. „Ef ég hefði spurt fólkið hvers konar far- artæki það vildi, þá hefði það beðið um hraðskreiðari hest,“ sagði Ford – en sagði samt ekki því fræðimenn hafa ekki enn getað sannreynt að ummælin séu frá honum komin. Mottóið hjá Nissan er alveg í hina áttina: Hlustum á það sem fólkið vill, og sköffum það. Árangurinn fer ekki milli mála: Nissan X-Trail er mest seldi sportjeppi í heimi og frá því X- Trail (sem heitir Rogue á Banda- ríkjamarkaði) fór fyrst á markað árið 2000 hafa yfir 3,7 milljónir eintaka af þessum fjölskylduvæna og praktíska bíl runnið út af færibandínu. Í júní voru bílablaðamenn boðaðir til Vínarborgar á kynningu á upp- færðum X-Trail og nýjum Qashqai. Skrifað var um Qashqai í Bílablaði Morgunblaðsins í júlí, en bann var á umfjöllun um X-Trail fram í október og því ekki fyrr en nú að segja má lesendum frá þessari nýjustu end- urholdgun óskabarns Nissan- fjölskyldunnar. Reffilegur Japani Ekki er hægt að segja að ráðist hafi verið í róttækar breytingar á X- Trail, en margt smátt gerir eitt stórt og fyrir vikið er óhætt að kalla nýja módelið allt aðra skepnu. Útlits- breytingarnar gera nýja X-Trail vöð- vastæltari og t.a.m. er búið að stækka grillið og gera það töff- aralegra (og í leiðinni fela alls kyns skynjara á smekklegan hátt) og ný fram- og afturljós gefa vel heppn- aðan augnsvip. Að innan er líka búið að skerpa á útlitinu og t.d. hægt að velja sérlega vel heppnuð sæti sem hafa verið saumuð í nokkurs konar „þrívíddar- áferð“ svo að sætisbakið minnir mest á magavöðvana á Robocop. En það sem á eftir að verða til þess að selja 3,7 milljónir eintaka til viðbótar af X-Trail eru notendavænu tæknibreytingarnar hér og þar. Til dæmis er búið að bæta hljóðeinangr- unina og hljómtækin svo að ökumað- ur og farþegar geta ferðast í meiri ró og heyrt betur í uppáhaldstónlistinni. Myndavélar og skynjarar hjálpa við að leggja í stæði og lækka háu ljósin ef bíll kemur á móti. Svona má lengi telja. Allt eru þetta eiginleikar sem finna má í dýrari sportjeppum, en ekki er algengt að finna svona tækni í bílum í sama verðflokki og X-Trail. Ekinn var stuttur hringur út fyrir Vínarborg og spanað á malarslóða sem skógarhöggsmenn nota til að grisja brattar fjallshlíðarnar í aust- urrísku sveitasælunni. Er skemmst frá því að segja að ekkert truflaði: Vel fór um ökumann og farþega í öll- um sætum, útsýni gott og aksturseig- inleikar prýðilegir. Otsukaresamadesu er eitt af þess- um undarlegu japönsku orðum sem hafa ólíka merkingu eftir aðstæðum. Japanir nota þetta orð til að kasta kveðju á kollega sína á vinnustaðnum til að þakka þeim fyrir vel unnin störf og þýðir þá lauslega „þú hefur unnið mikið og hlýtur að vera lúinn“, eða öllu heldur „vel gert!“. Sama orð er notað í lok vinnudags þegar haldið er út á karaoke-klúbbinn og skálað með vinnufélögunum. Um Nissan X-Trail má segja það sama: Vel gert og skál: Otsukaresamadesu. Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson Þegar hlustað er á það sem fólkið vill Nýtt og karlmannlegt grillið felur skynjara sem vakta veginn. Ekki vantar plássið undir farangur og auðvelt að fella sæti niður. Nissan X-Trail tekur sig vel út með sá malarvegaryk á bakrúðunni. Í austurrískri sveitasælu. Útlitið veldur ekki vonbrigðum og aksturseiginleikar prýðilegir. Ljósmyndir/Nissan 16 | MORGUNBLAÐIÐ HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástSnickers vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.