Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is MEÐ NÝJUM IVECO DAILY LIGGJA LEIÐIR TIL ALLRA 8 Nýr Iveco DAILY með HI-Matic 8 gíra sjálfskiptingunni, er sérstaklega hagkvæmur í rekstri og tryggir hámarksnýtni við allar aðstæður fyrir vél og drifbúnað bifreiðarinnar. Komdu og kynntu þér nýjan Iveco DAILY Nýr Iveco DAILY er sterkur og öflugur sendibíll sem hefur reynst framúrskarandi vel við íslenskar aðstæður, þar sem kraftur, ending og áræðni skipta sköpum. Nýr Iveco DAILY er fyrsti sendibílinn til að bjóða upp á á hina framúrskarandi ZF 8 gíra HI-Matic sjálfskiptingu sem gerir aksturinn einstaklega ánægjulegan. D acia er það bílamerki sem vaxið hefur hvað hraðast á undanförnum árum í Evrópu. Frá því franski bílsmiðurinn Renault tók yfir rúm- enska fyrirtækið árið 2004 eru komnar á götuna tæplega fimm milljónir Dacia-bíla. Sandero er minnstur í fjölskyldunni og jafn- framt söluhæstur; höfðar enda til mjög stórs hóps kaupenda vegna lágs verðs. Til fjölskyldu Dacia heyra einnig Lodgy, Logan, Dokker og Duster. Enn sem komið er hafa aðeins þeir þrír síðastnefndu verið seldir á Ís- landi. Sandero hefur verið meðal söluhæstu bíla í Frakklandi und- anfarin misseri og þar sem annars staðar í Evrópu hefur hann sankað að sér verðlaunum og viðurkenn- ingum fyrir notagildi. Er t.d. far- angursgeymslan 366 lítra sem mun vera það mesta í flokki svonefndra borgarbíla. Sandero er fáanlegur með bensín- eða dísilvél en í sölu hefur sú fyrrnefnda drottnað. Ég prufukeyrði dýrustu útgáfur á frönskum vegum en þar í landi kost- ar Dacia Sandero á bilinu 8-13 þús- und evrur, eða 1,0 til 1,6 milljónir króna, allt eftir hversu mikið er lagt í einstakar útgáfur af alls níu; fimm með bensínvél og fjórar dísil. Þar sem Renault nýtir fyrst og fremst velreynda upprunalega íhluti sína í Dacia-bílana hefur bilanatíðni þeirra reynst minni en allra bíla 19 annarra framleiðenda á markaði í Evrópu, bæði 2015 og 2016. Vel búinn „lágverðsbíll“ Nýjasta Sandero-módelið, sem kom á götuna í ár, hefur tekið nokkrum útlitsbreytingum til hins betra. Hefur það skilað sterkari og dýnamískari áhrifum og aukið á fág- un þessa annars ódýra bíls. Áklæði á sætum er nýtt og þrívíddarofinn þráður hefur á sér yfirbragð fersk- leika og þæginda í Stepway- útgáfunni. Er það módel auk- inheldur enn betur búið en „lág- verðs“-stallbræðurnir. Með til dæmis bakkmyndavél, skriðstilli, Sómasamlegur alþýðubíll 0,9 lítra TCe 90 túrbó 90 hestöfl/150 Nm 5 hraða handskipting 0-100 km/klst.: 11,1 sek. Hámarkshr.: 168 km/klst. Framdrif 16”Oasis Michelin Eigin þyngd: 1.040 kg Farangursrými: 366 lítrar Mengunargildi: 115 g/kg Umboð: BL Dacia Sandero Stepway Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Reynsluakstur Vinnuumhverfi ökumanns í Dacia Sandero Stepway. Sjö tommu aðgerð- arskjárinn á miðstokknum og aðgerðahnappar á stýri. Svipur hins nýja Sandero Stepway er til- komu- og kraftmeiri en áður. Þakbogarnir gera mikið fyrir heildarsvipinn. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirss + Flott og vinalegt útlit Nútíma hjálparbúnaður Rúmgóð farangurs- geymsla – Hikandi gírskipting sem þó tekur vel við sér við meiri inngjöf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.