Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 16
2,0 lítra dísil
177 hö / 380 Nm
CVT sjálfskipting
0-100 km/klst: 9,4 sek.
Hámarkshr.: 196 km/klst.
AWD
225/65R17
Eigin þyngd kg: 1.762
Farangursrými: 565 lítrar
Mengunargildi: 158 g/km
Verð á sjálfskiptum fjórhjóla-
drifnum: frá 5.590.000 kr.
6,0 l í blönduðum akstri
Nissan X-Trail
X Tronic CVT
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
ReynsluaksturÍ
flestum bókum um nýsköpun er
að finna tilvitnun í Henry Ford,
sem á að hafa sagt eitthvað á þá
leið að það væri af og frá að
leita til viðskiptavinanna eftir hug-
myndum að nýjum vörum. „Ef ég
hefði spurt fólkið hvers konar far-
artæki það vildi, þá hefði það beðið
um hraðskreiðari hest,“ sagði Ford –
en sagði samt ekki því fræðimenn
hafa ekki enn getað sannreynt að
ummælin séu frá honum komin.
Mottóið hjá Nissan er alveg í hina
áttina: Hlustum á það sem fólkið vill,
og sköffum það. Árangurinn fer ekki
milli mála: Nissan X-Trail er mest
seldi sportjeppi í heimi og frá því X-
Trail (sem heitir Rogue á Banda-
ríkjamarkaði) fór fyrst á markað árið
2000 hafa yfir 3,7 milljónir eintaka af
þessum fjölskylduvæna og praktíska
bíl runnið út af færibandínu.
Í júní voru bílablaðamenn boðaðir
til Vínarborgar á kynningu á upp-
færðum X-Trail og nýjum Qashqai.
Skrifað var um Qashqai í Bílablaði
Morgunblaðsins í júlí, en bann var á
umfjöllun um X-Trail fram í október
og því ekki fyrr en nú að segja má
lesendum frá þessari nýjustu end-
urholdgun óskabarns Nissan-
fjölskyldunnar.
Reffilegur Japani
Ekki er hægt að segja að ráðist
hafi verið í róttækar breytingar á X-
Trail, en margt smátt gerir eitt stórt
og fyrir vikið er óhætt að kalla nýja
módelið allt aðra skepnu. Útlits-
breytingarnar gera nýja X-Trail vöð-
vastæltari og t.a.m. er búið að
stækka grillið og gera það töff-
aralegra (og í leiðinni fela alls kyns
skynjara á smekklegan hátt) og ný
fram- og afturljós gefa vel heppn-
aðan augnsvip.
Að innan er líka búið að skerpa á
útlitinu og t.d. hægt að velja sérlega
vel heppnuð sæti sem hafa verið
saumuð í nokkurs konar „þrívíddar-
áferð“ svo að sætisbakið minnir mest
á magavöðvana á Robocop.
En það sem á eftir að verða til
þess að selja 3,7 milljónir eintaka til
viðbótar af X-Trail eru notendavænu
tæknibreytingarnar hér og þar. Til
dæmis er búið að bæta hljóðeinangr-
unina og hljómtækin svo að ökumað-
ur og farþegar geta ferðast í meiri ró
og heyrt betur í uppáhaldstónlistinni.
Myndavélar og skynjarar hjálpa við
að leggja í stæði og lækka háu ljósin
ef bíll kemur á móti. Svona má lengi
telja. Allt eru þetta eiginleikar sem
finna má í dýrari sportjeppum, en
ekki er algengt að finna svona tækni
í bílum í sama verðflokki og X-Trail.
Ekinn var stuttur hringur út fyrir
Vínarborg og spanað á malarslóða
sem skógarhöggsmenn nota til að
grisja brattar fjallshlíðarnar í aust-
urrísku sveitasælunni. Er skemmst
frá því að segja að ekkert truflaði:
Vel fór um ökumann og farþega í öll-
um sætum, útsýni gott og aksturseig-
inleikar prýðilegir.
Otsukaresamadesu er eitt af þess-
um undarlegu japönsku orðum sem
hafa ólíka merkingu eftir aðstæðum.
Japanir nota þetta orð til að kasta
kveðju á kollega sína á vinnustaðnum
til að þakka þeim fyrir vel unnin störf
og þýðir þá lauslega „þú hefur unnið
mikið og hlýtur að vera lúinn“, eða
öllu heldur „vel gert!“. Sama orð er
notað í lok vinnudags þegar haldið er
út á karaoke-klúbbinn og skálað með
vinnufélögunum. Um Nissan X-Trail
má segja það sama: Vel gert og skál:
Otsukaresamadesu.
Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Þegar hlustað er á það sem fólkið vill
Nýtt og karlmannlegt grillið felur skynjara sem vakta veginn.
Ekki vantar plássið undir farangur og auðvelt að fella sæti niður.
Nissan X-Trail tekur sig vel út með
sá malarvegaryk á bakrúðunni.
Í austurrískri sveitasælu.
Útlitið veldur ekki vonbrigðum
og aksturseiginleikar prýðilegir.
Ljósmyndir/Nissan
16 | MORGUNBLAÐIÐ
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í