Ægir - 01.01.2018, Blaðsíða 12
12
Akurey AK 10 fór í sína fyrstu reynsluveiðiferð á dögunum eftir að komið var fyrir lestarkerfi og vinnslu-
búnaði í skipið en það kom hingað til lands í júní á síðasta ári frá Tyrklandi þar sem það var smíðað. Ak-
urey leysir af hólmi togarann Sturlaug H. Böðvarsson í fiskiskipaflota HB Granda hf. og segir Eiríkur að
bæði hann og öll áhöfnin sé full tilhlökkunar að færa sig yfir á nýja skipið. Eiríkur hefur verið skipstjóri
á Sturlaugi H. Böðvarssyni frá því 2009 en var áður stýrimaður. Hann segist njóta þeirra forréttinda að
búa á Akranesi og hafa þannig getað fylgst mjög náið með framvindunni um borð í Akurey síðustu sjö
mánuði en sem kunnugt er kemur búnaður í lest og á milliþilfar frá Skaganum 3X á Akranesi.
„Ég hef verið mikið hér um
borð síðustu mánuði og það er
mjög gott að geta fylgst svona
náið með uppsetningu á bún-
aðinum og vita þannig hvernig
þetta virkar allt saman. Þó þetta
kunni að virðast mjög flókið fyr-
ir marga þá finnst mér það ekki
en vissulega er sjálfvirknin
mjög mikil,“ segir Eiríkur í sam-
tali við Ægi.
Nýju togararnir þrír frá HB
Granda marka þau tímamót á
heimsvísu að vera með algjör-
lega sjálfvirka lest, sem þýðir að
sjálfvirkur búnaður færir tóm
kör úr lestinni í hleðslustöðvar á
milliþilfari og síðan staflast kör-
in jafnóðum og þau eru fyllt í 5
kara stæður sem síðan færast
sjálfvirkt til í lestinni eftir því
sem á veiðiferðina líður. Og hitt
stóra atriðið í þessari byltingu
er að ekki er notaður ís til að
Ný Akurey AK hefur veiðar
„Ólýsanleg
bylting í tækni“
segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri
Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey, segir mikla tilhlökkun hjá allri áhöfninni að hefja nú veiðar á þessu tæknivædda og stóra skipi. Viðbrigðin frá
gamla togaranum Sturlaugi H. Böðvarssyni verði mikil.
F
isk
isk
ip