Ægir - 01.01.2018, Síða 16
16
„Frystitogarinn Cuxhaven NC er meira hugsaður fyrir heilfrystingu,
fyrst og fremst á karfa og grálúðu en er líka með flökunarlínu. Út-
færslan á Berlin NC er aftur á móti meira hugsuð út frá flaka-
vinnslu, m.a. með bitaskurðarvél frá Marel, þeirri fyrstu sem fyrir-
tækið setur í vinnsluskip úti á sjó. Engu að síður getur Berlin líka
farið á heilfrystingu þannig að skipin geta nýst í öll verkefni. En
fyrst og fremst erum við að horfa til útgerðarformsins með þessum
áherslum í uppsetningu skipanna. Cuxhaven kemur þannig til með
að verða meira í verkefnum við Grænland en Berlin verður fyrst og
fremst á flakavinnslu við Noreg og í Barentshafi,“ segir Óskar
Ævarsson, útgerðarstjóri Deutche Fishfang Union, DFFU, dóttur-
félags Samherja hf. í Cuxhaven í Þýskalandi um nýju frystitogarana
tvo sem fyrirtækið hefur nú tekið í fullan rekstur. Cuxhaven NC-100
hóf veiðar í ágúst síðastliðnum en Berlin NC-105 fór í nokkurra
daga reynslutúr skömmu fyrir jól. Nú um miðjan janúar var haldin
mikil hátíð í Cuxhaven þar sem skipunum voru formlega gefin nöfn
og komu til þeirrar athafnar um 400 boðsgestir frá 17 þjóðlöndum.
Íslenskar tæknilausnir áberandi
Skipin eru hönnun frá Rolls
Royce og frá þeim framleið-
anda eru einnig aðalvélar skip-
anna. Þetta eru 81 metra langir
frystitogarar, 16 metra breiðir.
Kleven Myklebust skipasmiða-
stöðin í Álasundi í Noregi hafði
smíði skipanna með höndum
en sjálfir skrokkarnir voru smíð-
aðir í Póllandi.
Mörg íslensk fyrirtæki komu
að smíðinni, fyrst og fremst að
vinnslubúnaði og tæknilausn-
um. Þar má nefna siglinga- og
fiskileitartæki frá Brimrún hf. í
brú, frystikerfi og frystilagnir
eru frá Kælismiðjunni Frost og
Slippurinn Akureyri hafði með
höndum hönnun og smíði á
stórum hluta vinnslulínunnar á
millidekki en hluti vinnslulín-
unnar, vöruhótel og frystar eru
frá Optimar.
Flökunarvélar og hausarar í
báðum skipum eru frá Vélfagi í
Ólafsfirði og í Berlin NC er vél-
búnaður frá Héðni hf. til að
bræða bein og slóg í mjöl og
lýsi.
Eins og áður segir er FleXi-
cut vatnsskurðarvél frá Marel í
Berlin NC og Mesa fésvélar eru
frá ÁM Sigurðssyni í báðum
skipunum. Þá er háþrýsti-
þvotta- og sápukerfi í skipun-
um frá Skaganum 3X. Veiðar-
færanemar í skipunum eru frá
Marport.
Vistarverur eru fyrir allt að
35 manns í áhöfn og allur að-
búnaður fyrir áhöfn eins og
best verður á kosið. Fjöldi í
áhöfn verður þó breytilegur eft-
ir verkefnum þeirra en að jafn-
aði 26-30 í túr.
Betri aðstaða fyrir áhafnirnar
aðalatriðið
Auk frystingarinnar er ætlunin
að Cuxhaven geti einnig tekið
ferskfisktúra og þá verður þeim
Þann 12. janúar síðastliðinn var mikið um dýrðir í Cuxhaven þegar skipunum tveimur voru formlega gefin nöfn. Um 400 boðsgestir komu til athafn-
arinnar og við það tækifæri fluttu bæði fulltrúi þýska landbúnaðarráðuneytisins og borgarstjóri Cuxhaven ræður. Hér eru gestir og forsvarsmenn
DFFU og móðurfélagsins Samherja hf. við skipshlið við þetta tækifæri. Frá vinstri: Óskar Ævarsson útgerðarstjóri DFFU og eiginkona hans Andrea
Vikarsdóttir, Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja og eiginkona hans Kolbrún Ingólfsdóttir, Dr. Ulrich Getsch, borgarstjóri Cuxhaven, Har-
aldur Grétarsson framkvæmdastjóri DFFU og eiginkona hans Harpa Ágústsdóttir, Kai-Uwe Bielefeld héraðsstjóri Cuxhaven, Helga Steinunn Guð-
mundsdóttir í stjórn í Samherja, Ståle Rasmussen forstjóri Kleven/Myklebust skipasmíðastöðvarinnar og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Sam-
herja.
Cuxhaven kemur til með að veiða ferskan fisk hluta úr sumri og landa á
Íslandi. Hluti lestarinnar í því skipi getur því verið með kælingu þó á
öðrum tímum ársins sé eingöngu fryst um borð.
N
ý
fisk
isk
ip