Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2018, Side 20

Ægir - 01.01.2018, Side 20
20 „Tíminn verður að leiða í ljós hver afköstin verða en ég von- ast til að við getum unnið 30 tonn af flökum á sólarhring þegar allt verður búið að slípast til,“ segir Sigurður Kristjánsson, skipstjóri á frystitogaranum Berlin NC-105 en hann var áður skipstjóri á Baldvin NC hjá DFFU og á að baki langan feril í skips- stjórn. Skipstjóri á móti honum er Sigurður Hörður Kristjánsson en yfirvélstjórar eru þeir Kristó- fer Kristjánsson og Sigurpáll Hjörvar Árnason. Sigurður segir spennandi að fá nú þann möguleika inn í vinnsluna um borð að skera beinagarðinn úr flökunum og flökin í bita, auk þess sem skipið sé með fésvél til vinnslu á haus- um og nýrri tækni til að vinna í mjöl og lýsi. Þó flakafrystingin sé um margt líkt vinnsluferli og hefðbundið er á frystitogurum þá sé sjálfvirknin meiri og aukn- ir möguleikar til nýjunga í af- urðum og nýtingu á hráefninu. Nýr búnaður stærðarflokkar „Síðan erum við með nýja út- færslu á stærðarflokkun á fiskin- um sem er búnaður frá Slippn- um Akureyri og fyrstu prófanir á þeim búnaði voru mjög já- kvæðar. Þessi búnaður gróf- flokkar fiskinn eftir hausun og áður en hann fer inn á flökunar- vélarnar. Þær koma frá Vélfagi í Ólafsfirði og er önnur með sér- staka áherslu á mjög stóran fisk. Í raun eru þó notkunarsvið vélanna mjög mikil þannig að þær koma til með að vera báðar Berlin NC -105. Áhugaverðar nýjungar í vinnslutækninni um borð segir Sigurður Kristjánsson, skipstjóri á Berlin NC-105 Útfærslan er Berlin NC miðast við flakavinnslu. Í skipinu er FleXicut vatnsskurðarvél frá Marel, sem hér er í forgrunni. Þetta er fyrsta FleXicut vélin sem Marel setur um borð í skip úti á sjó. N ý fisk isk ip

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.