Ægir - 01.01.2018, Side 22
22
í mikilli notkun. En þessi stærð-
arflokkun á fiskinum skiptir
miklu máli fyrir vinnsluferilinn í
heild,“ segir Sigurður en skipið
var prufukeyrt í nokkra daga við
Noreg í desember og að því
loknu voru nokkur atriði yfirfar-
in áður en haldið var til Þýska-
lands fyrir nafngiftahátíð skip-
anna nú í janúar. Þann 18. janú-
ar hélt svo Berlin NC á nýjan leik
á miðin úti fyrir Noregsströnd-
um.
Stórt og öflugt skip
„Mér fannst skipið koma mjög
vel út í þessum prufutúr þó að
ekki sé hægt að meta það til
fulls fyrr en maður kynnist skip-
inu þegar það er meira lestað.
En þetta er mjög spennandi,
skipið er stórt og öflugt. Ég
reikna síðan með að við verð-
um fyrst og fremst að veiðum
við Noreg, það er að minnsta
kosti lagt upp með þá verka-
skiptingu milli skipanna en svo
ráða auðvitað kvótastaða og
aflabrögð miklu um þau verk-
efni sem við erum í hverju
sinni,“ segir Sigurður Kristjáns-
son.
Vinnuaðstaða skipstjórans í brúnni. Þar, líkt og víðar í skipunum, komu íslenskar tæknilausnir við sögu en fiskileitar- og siglingatæki eru frá fyrir-
tækinu Brimrún.
Slippurinn Akureyri hannaði og framleiddi stóran hluta af vinnslulín-
unni og m.a. er í Berlin ný gerð af stærðarflokkara. Hér sjást færibönd
og í flökunarvélarnar tvær.
Aðalvélar skipanna eru frá Rolls Royce en það fyrirtæki hannaði skipin.
Hausarar og flökunarvélar eru mikilvægir þættir í vinnslubúnaði á skip-
um sem þessum. Tveir hausarar og tvær flökunarvélar eru í hvoru skipi,
allt búnaður frá fiskivinnsluvélaframleiðandanum Vélfagi í Ólafsfirði.
Hér sjást hausarnir.